miðvikudagur, desember 31, 2003

Ég er að spá í árið sem er framundan um leið og ég hugsa til þess sem er að líða.
Óljós áramótaheit skulu ekki vera strengd þetta árið. Nú verða raunhæf markmið sett og þeim náð!!
Það eru mörg markmiðin sem mig langar til að ná en fyrst vil ég setja þau niður á blað á skipulegan hátt.
Gleðilegt nýtt ár!!!

mánudagur, desember 29, 2003

Það er blindbylur úti og er búinn að vera í allann dag. Hef ekki lennt í svona veðri í mörg ár. Soldið spennandi. Fór á bílnum hennar Mömmu og átti að skila honum í morgun en veðrið var of vont til þess. Svo ég þarf að moka hann út núna og skutla honum niður á Skúlagötu til hennar þegar ég er búin að vinna. Ég hef ekki lennt í því að moka bíl út síðan ég veit ekki hvenær.
Fór á djammið á fös og laug núna um helgina. Það er helv. mikið fyrir mig nú orðið. var gaman.
Endaði á að gamna mér með einum sem var ekki vel til þess fallinn. Má ekki drekka svona mikið, alla vega var ég ekki þunn.

miðvikudagur, desember 24, 2003

GLEÐILEG JÓL !! <;0)

Úti er allt hvítt, drauma jólaveðrið. Eða næstum því, ef það væri aðeins lygnara.
Ég var náttúrulega á spaninu í allt gærkvöld, en náði samt ekki að klára allt. Verð því að hlaupa af stað eftir vinnu og ná í eina bók sem ég var búin að láta taka frá fyrir mig.

Peace, love and happyness!!

mánudagur, desember 22, 2003

Hef ekki verið dugleg að skrifa í desember.
Enginn sérstök ástæða fyrir því svo sem nema þessi venjulegu aðventuannir og vinnan náttúrulega.
Ekkert spes varð úr neinum af þessum deitum hjá mér. Legg það allt á ís þar til eftir áramót.
Líka atvinnuleitina og öll önnur góð fyrirheit og áætlanir.

Stundum tekur hugsun hjá mér allt aðra stefnu en ætlað var. Ég var í heimsókn um daginn og yfir kvöldkaffinu og jólasmákökunum, vorum við að tala um þá staðreynd lífsins að alltaf skuli maður finna frábærustu hlutina þegar maður hefur ekki efni á þeim.
Ég var að reyna að nota annað hvort orðatiltækið "að eiga ekki krónu með gati" eða "að eiga ekki bót fyrir boruna á sér" og út úr mér vellur "þegar maður á ekki krónu fyrir gatið á sér".
hi hi sumir eru ekki enn hættir að hlæja.

þriðjudagur, desember 09, 2003

Sá fína mynd í gær Purely Belter.

mánudagur, desember 08, 2003

Sejum svo að fólk sé að hittast í annað skiptið, date 2. Video heima hjá honum. Konan á að velja myndina, hann segir bara eitthvað létt en mikið er ekki vitað um hvað hann hefur séð áður né á hverju hann hefur áhuga. Þá verður frú að vera vandlát á myndina sem hún kemur með. Þetta gæti útlagst sem nokkurskonar persónleika próf. Smekkur fólks fyrir kvikmyndum getur sagt manni heilmikið, eitthvað í léttari kantinum. Já gamanmyndir eru oftast nær einhverskonar, rómantík kómedía. Sem gefur of mikið til kynna er ekki hentugt upphafi kynna.
Þá eru það heimskulegu heimskupörin, sem segja lítið um mann, er gæti verið túlkað sem innsýn í gáfnafarið. Ef maður hefur kannski alltof gaman að einhverjum bandarískum skólavitleysum.
Þá er úr vöndu að ráða, Það er vonandi að leigan hafi skemmtilegt úrval af viti.

fimmtudagur, desember 04, 2003

Sauður get ég verið, ég ´fór að bræða kertavax fyrir kerti í gærkvöldi og var svo klaufaleg að u.þ.b 1/2 af bræddu kertavaxi helltist niður og út um allt.
Þvílíkt vesen, eyddi stórum part kvöldisins í að hreinsa þetta af gólfinu og innréttingunni.
Sleppti að hreinsa fötin mín, það þarf ég að gera þegar ég kem heim. Lovely, ég set hérmeð allt kertavesen í bið þar til eftir jól.

miðvikudagur, desember 03, 2003

Brrrr, það er ansi mikið rok úti og það er svo gott að vera komin heim og geta haft það bara nokkuð huggó heima. Kveikja á kertum og elda (til tilbreytingar).
Nenni ekki að taka til eins og planið var fyrir þetta kvöldið.

mánudagur, desember 01, 2003

Helgin viðburðarík svona miðað við þær flestar hjá mér. Sat heima yfir sjónvarpinu á föstudag. Fór og keypti mér jólakjól á laugardag fór svo á Jólahlaðborð með saumaklúbbnum.
Blind date á Ara Í ögri í gærkvöldi.
Mjög myndarlegur maður 5 árum yngri en ég. Okkur gekk ágætlega að tala saman, ekki eins auðveldlega og það gekk þegar ég hitti hinn á fimmtudag.
Þetta hófst nú samt allt saman, ég spurði og hann svaraði, það er pirrandi. Honum tókst mjög vel að tala um sjálfan sig en gat ekki spurt mig þess sama.

föstudagur, nóvember 28, 2003

Fór á blind date í gær, stórfínt, líkar hann vel.

Fer á annað á sunnudag líka.
Mín bara orðin karlaóð??
Fór á kaffihúsadeit í gær, alveg stórfínt.
Leist mjög vel á drenginn, 33, háskólamenntaður, greindur, gaman að tala við hann og sprorðdreki eins og ég líka. Á íbúð og er barnlaus. Getur varla verið betra, sjáum nú til.
Svo er annað svona deit á sunnudag, hvað er að gerast ??

fimmtudagur, nóvember 27, 2003

blind date í kvöld, reyndar búin að sjá mynd af honum en þetta er samt hálf stressandi.
jamm sjáum til

miðvikudagur, nóvember 26, 2003

Ég er svo stressuð og upptjúnnuð, að það er alveg að fara með mig.
Vinnan er mjög stressandi þessa dagana, þetta er sá tími og lagast ekki aftur fyrr en í febrúar.
Í dag var svo líka annað að pirra mig og það var veitingahúsið Argentína.
Hið árlega jólahlaðborð saumaklúbbsins míns ætlaði þangað á laugardaginn var. Við pöntuðum borð í september og héldum að við værum örruggar með borð. En nei, þegar ég svo hringi til að láta vita að okkur fækkaði úr 13 manna hóp í 10 manna hóp kemur í ljós að borðapöntunin okkar var týnd.
Og nú er málið að reyna að redda þessu einhvern veginn á þann hátt að það henti öllum. Sem er stressandi, hringja í alla og reyna að finna út úr því hvernig, hvar og blahhh. Garg. Ég vildi gjarnan losa um einhverja kergju við fólkið þarna á Argentínu. En yfirþjónninn (hún, nota bene) var bara svo næs í símann að það var ekki hægt að vera algjört bitch við hana.
Jæja nú fer ég á hlaupunum heim í gegnum snjóinn og reyni að losa mig við pirringin með því að þrífa heima hjá mér.

þriðjudagur, nóvember 25, 2003

og annað á sunnudag, christ hvað er ég að gera ?

mánudagur, nóvember 24, 2003

fer á kaffihúsadeit á fimmtud. kannski annað í vikunni líka.

miðvikudagur, nóvember 19, 2003

Argg, maður getur stundum verið úr hófi fram klaufalegur.
Ákvað í gær að taka af mér hárin á efri vörinni með vaxi.
Mæti í vinnuna í morgun eins og ég hafi verið á svaka sjens og var spurð að því hvað ég hafi verið að gera því ég líti út eins og ég sé skeggrifinn.
Já einmitt, ég er það í annari merkingu en ætlaðri. Ég var sem sagt að rífa af mér skeggið, ég hefði líklega átt að láta þetta vera þarna áfram. Enda ekki sjáanlegt nema við ákv. birtuskilyrði. Mér fannst samt keyra um þverbak þegar mamma sá þetta á mér, þá hlyti þetta að vera orðið meira áberandi því hún er hálf sjónlaus eiginlega.
Bólgan hlytur að hjaðna þegar líður á daginn.

þriðjudagur, nóvember 18, 2003

Það er heilmikið að gera hjá mér núna´. Mála fyrir mömmu og heilmikil yfirvinna. Mjög fínt þá get ég kannski horfst í augu við yfirlitið frá bankanum um næstu mánaðarmót. En ég verð ansi þreytt á því í leiðinni og þarf smá tíma fyrir mig.

mánudagur, nóvember 17, 2003

Feel neglected and forgotten
Vil ekki þurfa að minna fólk á mig, en hefði þótt vænt um nokkrar línur í maili. Eða bara netkort, þó að afmælið mitt gleymist, þá má senda slíkt einhverjum dögum síðar. Það þurfa ekki allir að hringja í mann, þó það væri gaman.

föstudagur, nóvember 14, 2003

Ég hef ekki verið að skrifa neitt hér, í heldur langan tíma.
Hélt upp á afmælið á einfaldan hátt, mútta og bræðurnir komu í kaffi. Saumó kom í gær. Fékk færri símtöl en ég átti von á, kannski er það ekki meir en ég átti skilið. Ég er sjálf ekki alltaf sú duglegasta að halda sambendi.
Nú fer ég að koma þessari tölvu minni loksins á netið. Búin að fá staðfestingu á grun mínum að það hefði ekki verið neitt módem hvort eð var. Fæ nýtt. Fer að koma þessu í gang.

föstudagur, október 17, 2003

Ég er að taka til í tölvuræksninu hjá mömmu. Hreinsa út yfir 1000 mail til mín. Fara í gengum þetta og hreinsa út allt rusl og vista á diskum allt mikilvægt.
Kella er nefnilega á tölvunámskeiði fyrir eldri borgara. Eins gott að setja tækið upp á sem einfaldastan hátt svo að hún hræðist ekki að eyðileggja eitthvað fyrir mér.
Djö.mikið drasl safnast fyrir á svona dóti ef maður hugsar ekki um það.

Allavega hefur þessi seta fyrir framan tölvuna aukið hjá mér löngun til að fá mér alvöru tölvu aftur. Ég bara verð að fá mér nothæfa tölvu heim, þetta ástand gengur ekki lengur. Þarf ekki að vera það allra nýjasta bara skikkanlegt, það sem er nýlega orðið úrelt.

miðvikudagur, október 15, 2003

Sybbinn og þreyttur Ausi mættur enn á ný, svefninn er mér afar mikilvægur eins og hægt hefur verið að lesa hér á þessari síðu oft áður.
Dreymdi illa, kunnugur maður dó og margt var í uppnámi í þessum draumi. Það er ekki sniðugt að vakna á REM stiginu. Líklega verð ég að tímasetja það
betur með því að fara fyrr að sofa en vanalega.
Ég hef margoft reynt að lifa með minni svefn en 7 tíma á nóttu. Margir segjast ekki þurfa meir en 5-6 tíma svefn á nóttu, í tímaþröng vil ég það líka.
En það hefur bara slæm áhrif á einbeitinguna og annað. Ég hef reynt að þjálfa þetta upp hjá mér, sérstaklega þar sem ég er hvað athafnamest á kvöldin. Sannkölluð B manneskja en á móti krefst samfélagið þess að maður hegði sér sem A manneskja og taki þátt í lífinu á morgnana, mæti í vinnu og annað eins. Ekki hefur þetta gengið upp enn. 'Eg bara er algerlega óhvíld og ílla upplögð af því að fara á fætur eftir 5-6 tíma svefn. Baugar eru snemma komnir fram hjá mér, sem og önnur þreytumerki.
Ég verð bara að gefast upp á þeirri hugmynd að ég geti þjálfað mig í annað mynstur en líkami minn fer fram á.
Hvað svefnin varðar í það minnsta.

Ég er enn að drepast í hnénu eftir fallið´fyrir viku, í vinstra hnéð verkjar mig líka. Það er samt eingöngu mar.

Ég var nú samt að vinna alla helgina við leiðsögn, nú er ég að reyna að komast í sem mest af helgarferðum til að næla mér í aukapening.
Ég ætla að klára allan aukakostnað vegna íbúðarinnar í mars. Þá er komið ár og ég á þá 30 % íbúðarinnar sjálf, þá er þetta bara piece of cake það sem eftir er. Lægra en leiga, í það minnsta. Ég vonast til að hafa efni á breytingunum svona upp úr miðju næsta ári. Kannski eftir sumarið. Og jafnvel fyrr ef ég kemst loksins í alvöru vinnu sem borgar mér í hlutfalli við verðleika.

fimmtudagur, október 09, 2003

Ég er öll lemstruð eftir að hafa dottið í fyrstu hálku haustins á hjólinu. Á leiðinni í vinnuna í gærmorgun rann hjólið undann mér og ég féll framfyrir mig á svellið á bílastæði FÁ.
Afleiðingin er sú að ég meiddi mig íllilega á hægra hnénu, ég kramdi og marði einhvern liðpoka. Nú er ég aftur mætt í vinnuna eftir að hafa tekið 1/2 dag í veikindafrí. Eftir slysó í gær lá ég heima með kælingu á hnénu það sem eftir var dags. Það var það eina sem hægt er að gera. Kæla fyrsta daginn en ekki lengur, svo bara bíða og þjást. Þetta er helv. vont. aðallega ef ég beygji hnéð sem ég forðast að gera. En svo koma stundum svona surprise stingir án þess að ég hreyfi mig. Bölvað #$%#$&//($$$#&$% grrrr.
Svo til að bæta gráu ofan í svart, komst líklega við höggið eitthver hreyfing á rófubeinið svo ég er kvalinn þar líka. Sem sagt ekki mín besta hlið sem ég sýni á mér núna.

miðvikudagur, október 01, 2003

Hmm er að drepa sjálfa mig úr hvítlauksfýlu. Ég fékk mér spagettí í gær með slatta af hvítlauk útí. Það böggar mig ekki neitt yfirleitt, en ég held ég þjáist útaf þessu núna vegna þess að hann var orðinn gamall. Enda helst svona ekki lengi ferskt í venjulegum ískáp.
Ég hef ekki skrifað neitt lengi, ég viðurkenni það alveg að ég er ekki að standa mig í þessu.
Ástæðan er ekki sú að það sé bara ekkert að frétta, því það er enginn afsökun. Né heldur að ég hafi of mikið að gera, því svo mikið er það ekki búið að vera. Hmm ég er kannski bara í leit að innblástri. Ég vil ekki eingöngu skrifa upp lista einfaldra daglegra verka og atburði hvunndagsins. Ég vil nýta þetta sem tækifæri til að hverfa frá hvunndeginum að einhverju leyti.
Mig vantar ennþá eiginlegan innblástur til þess.
Linda mín ef þú lítur inn þá er ég farin að sakna þín en að sjálfsögðu ertu á kafi í breytingum lífs þíns og bloggar þegar þú mátt vera að. Bara að þú vitir það þá bíð ég spennt eftir frásögninni af nýju íbúðinni og nýju vinnuni.
Nú þegar Larissa er farin er ég soldið einmana, ég var svo glöð að fá að hafa hana í nokkrar vikur. Nú bíð ég bara eftir að Linda komi heim um jólin.
Ég bauð Larissu og Sollu í brunch áður en L fór. Það var ágætis dagstund, maður þarf ekki endilega að bjóða fólki í kaffi& Kökur eða kvöldmat. Maður getur boðið upp á aðra möguleika.
Sari mágkona mín gaf mér 3 af listaverkum sínum, þau eru að tæma kjallarann hjá sér. Það er svo lágt til lofts þar og nú ætlar brósi að brjóta upp gólfið og skapa þannig betur nýtanlega lofthæð. Þannig að þau þurftu að losna við ýmislegt. Ég er þakklát fyrir verkin og geymi nokkur í viðbót fyrir þau líka.

miðvikudagur, september 17, 2003

Mér sýnist Linda vera orðin örvæntingafull, nei segi svona. Hún er í það minnsta að kvarta yfir því að allir aðrir séu hættir að blogga. Ég veit ekki hvort ég sé sá eða sú sem átti að taka þetta til sín en ég geri það nú.
Ég er núna annan daginn í röð í þann veginn að verða veik. Er með byrjunareinkenni flensunnar sem allir hafa fengið hérna. Virðist ekki ætla vera meira en smá byrjunareinkenni. Lucky me.
Nú er bara vika í að Larissa hverfi aftur á braut. Uhu uhu hu. :0(
Ég er að hugsa um að halda smá Brunch um helgina fyrir hana, bjóða líka Sollu, Gyðu og Júllu. Kannski fleiri kerlingum!!
Mútta er í Svíþjóð og er það mjög fínt, ég hef getað verið á bílnum hennar allann tímann. Maður er mjög fljótur að venja sig á þennan óþarfa og keyrir stystu vegaleiðir, sick.

miðvikudagur, september 10, 2003

Ég fór með Larissu á breska bíódaga í Háskólabíói í gærkvöldi. Við sáum myndina The Magdalena Sisters og má segja að ég mæli með þessari mynd.
Hún er mjög áhrifamikil og greinir frá raunverulegum mannlegum örlögum. Hún er sannsöguleg og fjallar um kaþólsk upptökuheimili á írlandi fyrir ungar konur sem eru á skjön við fróma kaþólska heimsmynd umhverfisins. Hvort sem þær hafi orðið óléttar, verið nauðgað eða voru einfaldlega of fallegar. S.s. fyrirbyggjandi áður en þær freista karlmanna, ef skaðinn er ekki skeður.
Að sjálfsöðgðu er dvölin sérlega erfið, nunnurnar eru reglu- og refsiglaðar. Veiklyndasta og einfaldasta stúlkan er misnotuð kynferðislega af prestinum. Vonin um að komast í burtu er það eina sem heldur flestum gangandi en margar hverjar komust aldrei í burtu og eyddu heilli mannsævi í þrældómi fyrir brot sitt.
Það er ef enginn fjölskyldumeðlimur fór fram á að þær yrðu látnar lausar. Í langflestum tilvikum snýr fjölskyldan bakinu við stúlkunni sem bakar þeim skömm. Afneitar henni og þar með eru örlögin innsilgluð, dvöl hjá Magdalenu systrunum um aldur og æfi. Hryllingur um fangelsun án dóms og laga sem viðgekkst til 1996 á Írlandi.

miðvikudagur, september 03, 2003

Ég er svo þreytt, ég hef farið of seint að sofa undanfarið. Ég verð að fara snemma að sofa í kvöld. Hef staðið mig ágætlega í að mæta á skikkanlegum tíma í vinnuna, undanfarna daga. En betur má ef duga skal.
Horfði á Sódómu með Larissu á video í gær. Frábært, þvílík della. Sem betur fer hefur þessi mynd ekki elst of illa. Er samt fyndin, kannski vegna þess að hún er bara della. Er ekki bundin við neinn raunveruleika sem maður þekkir.
Nema hvað að það fóru samt af stað ákveðnar upprifjunartilraunir. Við fórum allt í einu að pæla í skemmtistöðunum sem voru í den. Út frá lókalnum sem myndin á sér stað á. For your information nokkur nöfn sem poppuðu upp við þessa heilabúsæfingu:
Pan (pan hópurinn), Traffik (hvað annað), Keisarinn (lokasprettur staðsetningarinnar) ,Villti tryllti Villi, Casablanca, Broadway ( í Mjódd), uppi og niðri ( eða hvað það nú hét þar sem síðan var Spotlight), Hollywood (við náðum því nú eiginlega ekki)Yfir strikið(sama staðsetning), Evrópa (áður Klúbburinn), Tunglið, Borgin. Nú man ég ekki fleiri í augnarblikinu og svo nokkrir pöbbar sem maður sótti á þessum árum Duus huus, Glaumbar og Gaukurinn, hey einu nöfnin sem eru enn á lífi. Jamm það var nú djamm.he he
Fór til læknis í vikunni til að fá sjúkraþjálfun vegna rófubeinsins, ekki eðlilegt að þetta hafi ekki lagast á þessu rúma hálfa ári.
Er að fara í cranio meðferð út af þessu í kvöld klukkan 8. Svo þarf líka að kýkja á kólesterólið.

þriðjudagur, september 02, 2003

Mikið assgoti getur svona venjulegur vinnudagur verið langur og leiðinlegur.
Kannski er ég bara þunglynd án þess að gera mér grein fyrir því. Ég hélt að ég væri bara í fínu lagi miðað við allt og alla. Nema hvað að mér finnst vinnan vera leiðinlegri en vanalega auk þess sem að flestir þeir sem mér finnast pínu leiðinlegir eru að fara meir í taugarnar á mér en vanalega. Það er nú kannski ekki að furða miðað við allt það sem ekki gengur sinn vanagang í dag. Það er eitthvað að hjá öllum þeim fyrir tækum sem ég átti von á sendingum frá í dag. Bullshitt þetta getur ekki verið tilviljun.
Sem sagt klukkan er 15:50 og það eru 70 mín. þar til ég fæ að fara heim.
"I feel like I am imprisoned" blahh. Ekki taka því þannig að allt sé virkilega ómögulegt, þetta líður hjá ég efast ekki um það. Mér líður betur um leið og vinnan er búin í dag. he he.
Allavega, ég er svo óheppinn að allir sem koma inn í þessa skrifstofu sjá á skjáinn minn, sem veldur því að það var sett út á ótæpilega netnotkun mína í vinnuni. Ekki er ég svo viss um að hún sé eitthvað meiri en annara, en það sést til mín og það er málið. Nú jæja ég tek þá netið af dagskrá í vinnuni og hvað geri ég þá.Þá hef ég enga ástæðu til að vinna verkin eins hratt og áður, þar sem ég verðlaunaði mig fyrir verkin með pínu neti.
Nú hvað annað en skrifa bloggið og allt annað sem þarf í mailfomi. Upplausnin er hvort eð er það há á skjánum að það sér nánast enginn á hann. Þá er ég ekki lengi á viðkomandi síðu í einu.
Ég tek mig saman hvað morgunsvefnin varðar, mæti tímanlega.
Gat loksins borgað flesta reikningana mína sem ég var búin að safna síðusta 1 1/2 mánuð. Ég vil helst ekki lenda aftur í því að geta ekki borgað einn einasta reikning, eðlilegt að skiptast á, að bíða með þetta eða hitt, en allt saman í einu er ekki gaman. Hnútur í hálsi og maga.
En ég á ennþá eftir að fá slatta borgað, fyrir löngu ferðina, þá léttist loks á yfirdrættinum og ég get andað léttar fram að síðustu afborgun í des.

Ég ætla að gefa sjálfri mér trít, fyrir leiðinlegan dag og fara í góða hirðirinn að versla áður en ég fer í mat til mömmu.

föstudagur, ágúst 29, 2003

Það getur hjálpað gífurlega að skrifa niður það sem ergir mann.
Ég er í hálfgerðu áfalli, ég verð að horfast í augu við sannleikann um mig. Én ég má samt ekki taka gagnrýnina sem ég hef fengið undanfarið svo alvarlega að ég kikni. En það er verulega óþæginlegt að horfast í augu við eigin galla.
Mér líður illa tilfinningalega séð núna, fyrst fékk ég tiltal í í reglulegu vinnuni. Aðvörun sem getur endað í uppsögn ef mér tekst ekki að bæta það sem að er á næstu 6 vikum. Úff það var alveg nógu slæmt svo ekki bætist við upplýsingar og kvartanir kúnna úr aukavinnunni í sumar.
Ég er með magann í hnút og veit ekki hvað ég geri.
-Fyrst og fremst verð ég að takast á við mætinguna hjá mér, þetta er mér mjög neyðarlegt og kemur mér alltaf í meiri og meiri vandræði.
- Það er ekki eðlilegt hversu morgunsvæf ég er, þessi galli minn er rótin að ýmsu öðru.
- Satt best að segja hef ég hef verið löt við að framkvæma ýmislegt sem mér finnst leiðinlegt, sem veldur því að ég er kannski soldið óundirbúin að ýmsum sviðum. Þetta þarf ekki að vera svona.
-Ég þarf ekki að vera best skipulagðasta manneskja í heimi en ég get bætt úr ýmsu.

Hvernig sem því líður, líður mér mun betur núna, þegar ég er búin að skrifa svolítið um þetta, ég þarf svo kannski að ræða þetta aðeins við einhvern góðann vin og þá líður mér mjög vel aftur.

Ég vil ekki draga úr réttlæti gagnrýninnar sem ég hef orðið fyrir, mest allt hefur við rök að styðjast en eins og svo oft er þá eru kannski einhverjir punktar sem manni finnast vera sérlega ósanngjarnir. Kannski vegna þess að það er ekki rétt eða vegna þess að aðrir hegða sér eins og fá ekki tiltal vegna þessa.

Sem sagt sorg og reiði til skiptis. En einnig hálfgerð uppgjöf einnig.

Það getur hjálpað gífurlega að skrifa niður það sem ergir mann.
Ég er í hálfgerðu áfalli, ég verð að horfast í augu við sannleikann um mig. Én ég má samt ekki taka gagnrýnina sem ég hef fengið undanfarið svo alvarlega að ég kikni. En það er verulega óþæginlegt að horfast í augu við eigin galla.
Mér líður illa tilfinningalega séð núna, fyrst fékk ég tiltal í í reglulegu vinnuni. Aðvörun sem getur endað í uppsögn ef mér tekst ekki að bæta það sem að er á næstu 6 vikum. Úff það var alveg nógu slæmt svo ekki bætist við upplýsingar og kvartanir kúnna úr aukavinnunni í sumar.
Ég er með magann í hnút og veit ekki hvað ég geri.
-Fyrst og fremst verð ég að takast á við mætinguna hjá mér, þetta er mér mjög neyðarlegt og kemur mér alltaf í meiri og meiri vandræði.
- Það er ekki eðlilegt hversu morgunsvæf ég er, þessi galli minn er rótin að ýmsu öðru.
- Satt best að segja hef ég hef verið löt við að framkvæma ýmislegt sem mér finnst leiðinlegt, sem veldur því að ég er kannski soldið óundirbúin að ýmsum sviðum. Þetta þarf ekki að vera svona.
-Ég þarf ekki að vera best skipulagðasta manneskja í heimi en ég get bætt úr ýmsu.

Hvernig sem því líður, líður mér mun betur núna, þegar ég er búin að skrifa svolítið um þetta, ég þarf svo kannski að ræða þetta aðeins við einhvern góðann vin og þá líður mér mjög vel aftur.

Ég vil ekki draga úr réttlæti gagnrýninnar sem ég hef orðið fyrir, mest allt hefur við rök að styðjast en eins og svo oft er þá eru kannski einhverjir punktar sem manni finnast vera sérlega ósanngjarnir. Kannski vegna þess að það er ekki rétt eða vegna þess að aðrir hegða sér eins og fá ekki tiltal vegna þessa.

Sem sagt sorg og reiði til skiptis. En einnig hálfgerð uppgjöf einnig.

miðvikudagur, ágúst 27, 2003

Batnandi fólki er best að lifa er oft sagt og það er eitthvað sem ég hef oft tekið mér fyrir hendur án þess þó að standa almennilega við það sem ég ákvað að bæta.
Nú vil ég verða skipulegri og vera ein af þeim sem tekur fram fötin fyrir morgundaginn og hefur allt tilbúið þegar farið er á fætur. Það getur hjálpað þegar maður á erfitt með að fara á fætur tímanlega. Og er alltaf í panik á hverjum morgni við að finna eitthvað til að vera í.
Ég kom videotækinu loks í gang, ég var hingað til ekki búin að nenna að leita að rásinni. Undarleg leti það. Nema hvað fór út í leigu og splæsti á mig Lylja 4-ever og Angelas Ashes sem fríspólu. Ég grenjaði yfir Lylju, eins og við var að búast. Hún er að draugast um í huga mínum núna, sem sagt ekki of kát í dag.
Kýki á hina þegar ég kem heim í dag. Svo kem ég DVD spilararnum í samband við sjónvarpið.
Sólin skýn og veðrið er frábært.
Lindin er búin að vera ódugleg við skriftir og sakna ég hennar.

þriðjudagur, ágúst 26, 2003

Ég rakst á mjög áhugaverða síðu, sem ég veit að þið öll hafið áhuga á að kýkja á http://www.kissthisguy.com/ er bráðskemmtileg síða. Hún fjallar um eitthvað sem kemur fyrir okkur öll, að misheyra texta.
Ég kom við hjá Larissu í gær eftir vinnu, í smá ammæliskaffi. Jummí, og já Binna frænka mundi nú eftir mér og þekkti svipinn. Frakkastígssvipinn fræga, önnur frænka þarna þekkti þar líka til og sagði okkur eiga sameiginlegt ættmenni. Barnabarn hennar væri barnabarnabarn hans Pálma bróður hans Pabba.
jæja.
Við skruppum svo aðeins í bæjinn um kvöldið, það virtist vera slatti af fólki í bænum á mánudagskvöldi. Mig grunar að það hafi verið um ferðamenn að ræða nær eingöngu.
Og eins sorglegt og það er þá er það í sumar eina fólkið sem ég hef getað heilsað á götum úti í miðbænum ferðamenn. Er það eina fólkið sem ég þekki í mínum eigin heimabæ og uppeldisstöðvum. Hversu sorglegt er það.

mánudagur, ágúst 25, 2003

Larissa á ammæli í dag, ég ætla að kýkja í kaffi til hennar á leiðinni heim. Ég verð nú að koma með einhverja gjöf, en hvað????
Svo er hugmyndin að skreppa á kaffihús í kvöld.
Huxa að ég muni slappast á morgun og sé og lasin til að vinna!!
Nú er ausinn helv. þreyttur
Nenni ekki að vinna en hef samt nóg að gera.
Guidaði alla helgina og er ekki sátt við að það sé komin mánudagur. Kominn tími á mína að fá frí í einn dag, ég tek þá engin verkefni að mér næstu helgi, ég nenni því ekki. þarf mína hvíld.
Ég get ekki einbeitt mér að vinnuni, er alveg úti að aka.
Nenni engu. Frábært það er ekki langt í matartímann.
Brill.

föstudagur, ágúst 22, 2003

Það er líklega að lifna yfir atvinnumarkaðnum, því ég fann annað starf í dag sem ég vil endilega sækja um og líst vel á.


Tækniháskóli Íslands óskar að ráða alþjóðafulltrúa í fullt starf. Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs með möguleika á framlengingu.

Starfssvið:
Umsjón með alþjóðasamskiptum skólans.
Sjá um umsóknir og skýrslugerð vegna þeirra erlendu samstarfsáætlana sem skólinn tekur þátt í sem og vegna rannsóknaverkefna.
Umsjón með nemendaskiptum og kennaraskiptum undir formerkjum þeirra samstarfsáætlana sem skólinn tekur þátt í.
Eftirfylgni og skýrslugerð t.d. til stjórnvalda.
Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur:
Háskólapróf, B.A. próf eða sambærilegt hið minnsta.
Fullkomið vald á íslensku, ensku og einu norðurlandamáli.
Góðir samskiptahæfileikar, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Reynsla af Evrópusamstarfi og/eða dvöl erlendis er æskileg.

fimmtudagur, ágúst 21, 2003

Ég fæ lánaða tölvu tímabundið, júhú.
Reyndar gamla og eflaust frekar hægfara, en ég get setið ein við hana og skrifað það sem mér dettur í hug, án þess að einhver líti yfir öxlina á mér. He he Og hlytur að vera betri en mömmu talva.
Reyndar er hún ekki með módem en því er hægt að redda.
Matarboð hjá mér annað kvöld, stóra spurningin er hvað skal elda. Mexikóski kjúklingarétturinn sem ég var að spá í er ekki lengur finnanlegur á netinu, grrr.
Á eftir að taka til og allt það náttúrulega.
Always the same.

miðvikudagur, ágúst 20, 2003

læsti mig úti í morgun, he he allir aukaliyklarnir sem eiga að vera á víð og dreif eru þarna inni.
SAUÐUR

þriðjudagur, ágúst 19, 2003

Ég tók eftir því að ég var farin að staðna og farin að sætta mig við vinnuna, þegar ég fór að ímynda mér hversu skemmtilegt störfin sem mig langar að sækja um gætu orðið.
Ég verð að drífa mig í að fá meðmælabréf hjá Siggu og Óla. Ég ætla að standa vel að þessu. Endurrita ferilsskrána og hella öllum sköpunarkraftinum í þessa umsókn. (innan vissra marka þó!!)
Það er auka plús að þetta starf er í næsta húsi, Þá er ég ennþá í hjólafæri.
Ég hata það hvað maður vinnur sig smámsaman upp í eftirvæntingu þegar maður stendur í svona löguðu. Þó maður viti það að oftast verði maður fyrir vonbrigðum. Og maður segir sjálfum sér að taka svona hluti ekki svona alvarlega þá gerir maður það samt. Vonin að fá það sem maður óskar sér lætur ekki berja sig niður.

mánudagur, ágúst 18, 2003

Góð kjör í fjölbreyttu starfi
Þetta er sú auglýsing sem helst vakti athygli mína,

Upplýsingastjóri BHM
BHM (www.bhm.is) er heildarsamtök 24ra stéttarfélaga háskólamanna og reka samtökin einnig orlofssjóð, starfsmenntunarsjóð, sjúkrasjóð og styrktarsjóð með sjálfstæðum stjórnum. Á skrifstofunni starfa nú framkvæmdarstjóri, fjármála- og rekstrarstjóri, bókari, deildarstjóri styrkveitinga, orlofs- og þjónustufulltrúi og upplýsingastjóri.
Bandalag háskólamanna (BHM) auglýsir laust til umsóknar starf upplýsingastjóra sem heyrir undir framkvæmdarstjóra. Starfið er fjölbreytilegt og krefjandi og felur einkum í sér
· upplýsingamiðlun og
· upplýsingastjórnun.
Upplýsingamiðlun
Starf upplýsingastjóra felur í sér miðlun upplýsinga - innan samtakanna og utan - um starf og stefnu bandalagsins og starfsemi sjóðanna. Helstu miðlar sem upplýsingastjóri hefur umsjón með, auk námskeiða, eru:
· heimasíða
· vefrit sem nú kemur út mánaðarlega og
· BHM-tíðindi sem nú koma út 3svar á ári
· auk útgáfu á trúnaðarmannahandbók og bæklingum.
Upplýsingastjórnun
Upplýsingastjóri hefur einnig umsjón með stjórnun upplýsinga, þ.m.t. vörslu og skráningu gagna í samræmi við auknar kröfur um verndun persónuupplýsinga.
Hæfisskilyrði
Áskilið er háskólapróf og reynsla sem nýtist í starfi, svo og góð tölvukunnátta. Hlutaðeigandi þarf að hafa til að bera áhuga, frumkvæði, ritfærni, sjálfstæði og samskiptahæfileika.
Um kjör fer eftir kjarasamningi hlutaðeigandi stéttarfélags háskólamanna við fjármálaráðherra en starfið raðast í launaramma C. Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst nk. og er þess vænst að upplýsingastjóri hefji störf sem fyrst. Skriflegar umsóknir berist til Bandalags háskólamanna, Lágmúla 7, 108 Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Gísli Tryggvason framkvæmdarstjóri í síma 581 20 90 # 4 eða tölvupósti gt@bhm.is. Öllum umsóknum verður svarað bréflega þegar ákvörðun hefur verið tekin.


Þetta er ein þeirra auglýsinga sem vöktu athygli mína.


Góð kjör í fjölbreyttu starfi
Upplýsingastjóri BHM
BHM (www.bhm.is) er heildarsamtök 24ra stéttarfélaga háskólamanna og reka samtökin einnig orlofssjóð, starfsmenntunarsjóð, sjúkrasjóð og styrktarsjóð með sjálfstæðum stjórnum. Á skrifstofunni starfa nú framkvæmdarstjóri, fjármála- og rekstrarstjóri, bókari, deildarstjóri styrkveitinga, orlofs- og þjónustufulltrúi og upplýsingastjóri.
Bandalag háskólamanna (BHM) auglýsir laust til umsóknar starf upplýsingastjóra sem heyrir undir framkvæmdarstjóra. Starfið er fjölbreytilegt og krefjandi og felur einkum í sér
· upplýsingamiðlun og
· upplýsingastjórnun.
Upplýsingamiðlun
Starf upplýsingastjóra felur í sér miðlun upplýsinga - innan samtakanna og utan - um starf og stefnu bandalagsins og starfsemi sjóðanna. Helstu miðlar sem upplýsingastjóri hefur umsjón með, auk námskeiða, eru:
· heimasíða
· vefrit sem nú kemur út mánaðarlega og
· BHM-tíðindi sem nú koma út 3svar á ári
· auk útgáfu á trúnaðarmannahandbók og bæklingum.
Upplýsingastjórnun
Upplýsingastjóri hefur einnig umsjón með stjórnun upplýsinga, þ.m.t. vörslu og skráningu gagna í samræmi við auknar kröfur um verndun persónuupplýsinga.
Hæfisskilyrði
Áskilið er háskólapróf og reynsla sem nýtist í starfi, svo og góð tölvukunnátta. Hlutaðeigandi þarf að hafa til að bera áhuga, frumkvæði, ritfærni, sjálfstæði og samskiptahæfileika.
Um kjör fer eftir kjarasamningi hlutaðeigandi stéttarfélags háskólamanna við fjármálaráðherra en starfið raðast í launaramma C. Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst nk. og er þess vænst að upplýsingastjóri hefji störf sem fyrst. Skriflegar umsóknir berist til Bandalags háskólamanna, Lágmúla 7, 108 Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Gísli Tryggvason framkvæmdarstjóri í síma 581 20 90 # 4 eða tölvupósti gt@bhm.is. Öllum umsóknum verður svarað bréflega þegar ákvörðun hefur verið tekin.



Æ æ, nú er mín sko þreytt og er íllt í rófunni.
Svaf ekki allan minn venjulega skammt um helgina, þurfti líka að fara snemma á fætur báða dagana.
Ég komst að því að hryllingsferðin, þ.e. stoppið okkar á Sprengisandi er orðið frægt í starfstétt bílstjóra og leiðsögumanna. Ég heyrði fólk vera tala um þetta útundan mér. Án þess þó að vita að ég hefði verið í þessari ferð. hi hi.
Bílstjórinn minn í gær sem og fleiri í þessum stéttum vita hverra manna ég er án þess að ég hafi kynnt mig þannig séð. Svipurinn leynir sér ekki er mér sagt.
Það voru 3 störf í sun. mogganum sem mér fannst nógu áhugaverð til að sækja um, slíkt hefur ekki átt sér stað mjög lengi. Júhú


föstudagur, ágúst 15, 2003

Lengi hefur hugur minn leitað til skrifta. Ég mikla löngun til að skrifa eitthvað, en hef aldrei komið því í verk að reyna að koma hugmyndum mínum í eitthvert form. Það má kannski rekja til þess að ég hef oft á tíðum verið mjög vanvirk, geri minna en ég get og vil. :Það er alltaf einhver partur af mér að reyna að halda aftur af mínu raunverulega sjálfi. Skv. Freud hefði ég þá óvenju sterkt súperego sem heldur öllu öðru niðri.
Ég þyrfti að læra að sleppa mér öðruvísi í raun, ekki þetta yfirborðslega drukkna sleppa sér, heldur hleypa hlutum í dagsljósið sem meira að segja mér eru huldir. Litla viðkvæma sálin sem er það viðkvæm fyrir gagnrýni að hún lætur ekki sjá sig til þess eins að þurfa ekki að lifa með áliti annara.
Ég er upptekin alla helgina við vinnu, verð sem sagt ekki mikið á róli á menningarnótt. Bláa Lónið á morgun og Gullfoss á sunnud.
Þó að enginn peningur sé til hjá mér núna og ég hafi það á tilfinningunni þess vegna að öll þessi vinna sé til einskins. þá kemur peningurinn á endanum.
Hvernig í andsk. stendur á því að fólk í öllum heiminum er svona upprifið vegna rafmagnsleysis í USA. Eins og fólk hafi ekki þurft að sitja í myrkri áður. So what, rafmagn er mikilvægt öllum vestrænum ríkjum.

fimmtudagur, ágúst 14, 2003

Gerði mest lítið eftir vinnu í gær, fékk mér kvölmat snemma og eyddi kvöldinu með annað augað á sjónvarpinu og hitt ofan í bók. Ósköp venjuleg pocket krimmi "unnatural exposure" því miður ekki bresk. Ég klára hana samt þó hún sé hrikalega amrísk með óbeinum tilvitnunum í nýlega atburði með "small pox" í stað anthrax.
Seinna um kvöldið kom Larissa, í pilsner en ekki kaffi, það var svoo gaman að sjá hana.

miðvikudagur, ágúst 13, 2003

Allt vitlaust að gera hérna, stressið magnast og ekki bætir úr skák að búa við þennann hávaða hérna.
Það er verið að rífa allt út úr húsinu við hliðina og lætin eru ærandi.
grrr.
Júhú Larissa er komin til landsins og verður í 3 vikur.
Hún hringdi meira að segja í morgun ósofin og allt. Fæ að sjá hana líklega í kvöld að loknum matarboðum.
Vinnan er hreint brjálæði núna, skólatörnin að gera alla vitlausa.
Hjördís fer að hætta og finnst mér það miður, ég á eftir að sakna hennar hér. En það er best fyrir hana að fara í eitthvað annað, fá loksins að gera eitthvað sem henni finnst skemmtilegt.

þriðjudagur, ágúst 12, 2003

Síminn verður kominn í samband seinni partinn.
Larissa er að koma til landisins. Æði,
En ég hata að vera svo blönk að ég þarf að skipuleggja hverja krónu. Og allir reikningarnir sem sitja á hakanum. Dammn :-(

mánudagur, ágúst 11, 2003

Nú er ég orðin leið á þögninni sem fylgir því að vera ekki með heimilissíma, fólk hringir bara í neyð í mig og er ekkert að spjalla vegna þess hversu dýrt það er með gemsa, svo ekki sé talað um símtöl til útlanda. Sem ég hef ekki gert mikið af síðan ég kom heim.
Allavega pantaði ég mér síma í dag og fæ tenginguna fljótlega. Þarf að komast að því hvaða númer var seinast í íbúðinni. Til þess að spara mér það að fá einhvern kall heim til að tengja og það kostar 7 þús aukalega.
Uneventfull weekend, í meira lagi. Meirihlutinn af tíma mínum var varið í rúmminu. Alone.
Þurfti greinilega að sofa fyrir marga daga í einu. Ég var frekar þreytt þegar ég kom heim á föstudag. Hékk yfir leiðinlegu sjónvarpi. Og las bók á þýsku sem ég fann í kassa fyrir framan góða hirðinn, lokað til 15.Ágúst. Ég sökkti mér í þessa bók þó að ég fílaði hana ekki. Það er eitthvað við hana. Ég er að verða hálfnuð með 400 síðurnar. Spurning hvort ég eigi að gera mér þetta áfram eða finna mér eitthvað annað að lesa.
Júhú Hjördís þessi elska, ákvað að taka til í bókakosti sínum og ég fékk hjá henni 3 krimma. Þá vitum vi'ð hvað ég geri í kvöld.
Á laugardagskvöldinu var ég í partyí í breiðholtinu. Mási varð 30 og var haldið upp á það með surprise partýi.
Já 20 ára afmælið hans var um leið kveðjupartíð mitt frá Hagkaup þegar ég fór út. Það eru að verða komin 10 ár frá því að ég flutti út. Þann 24 Ágúst 1993. Ég er nú með passann minn til að minna mig á það. Hann rennur út þann 23.ágúst. hi hi ef einhver hér þekkir þá sögu. Annars er hægt að spyrjast fyrir.
Allavega var ætlunin að fara í bæjinn á eftir en stemmningin skapaðist ekki fyrir því. Svo ég fór með Ingu Mariu. Við kýktum í Partí í blokkinni hennar áður en við ætluðum í bæinn. Inga María hætti svo við að fara og ég lét liðið sem fór í bæinn skutla mér heim. Ekkert spes í sjálfu sér en samt helv. þynnka daginn eftir. Ég hélt mig við bjór mestmegnis en asnaðist í eitt rommglas sem var of mikið held ég og lá ég bara fyrir allann sunnudaginn.
Svo fór mín snemma á fætur í morgun, kl. 6:30 til að skutla Múttu á Rvk flugvöll til að fá bílinn næstu 2 daga meðan hún er fyrir norðan.
Jamm þetta er hægt en er ekki þæginlegt. Not my time of day.



föstudagur, ágúst 08, 2003

Mér leiðist í vinnuni, ekki í fyrsta sinn. Nenni ekki að koma neinu í verk.
Hangi á netinu, en finn ekkert sem mér finnst gaman að. Er bara letin uppmáluð. Blahh, gott að það er föstudagur.
Mér er boðið í mat í kvöld hjá Hjördísi og partý hjá Mása á morgun. Svo að ég verð að finna mér einhvern annan tíma til að vera svo leiðinleg sem ég vil vera núna.
Það var verið að bjóða mér að taka ferð á morgun, Á ÍSLENSKU. Nei takk, fer ekki með íslendinga.

Ég er stundum að hugsa um það hvort eitthvað sé að mér, sem ég er ekki búin að gera mér grein fyrir ennþá. Ég skil stundum ekki hversu mikill loner ég er í raun orðin. Ég er bara ósköp fegin því að vera bara ein méð sjálfri mér oftast nær, en ég er ekki viss um að það sé heilbrigt. Sérstaklega þegar maður er félagslyndur að upplagi. Það þarf að draga mig út og ég geri ekkert að eigin frumkvæði til að lífga upp á félagslíf mitt. Ég veit ekki hvort þetta er bara hluti af þunglyndinu sem hefur reyndar ekki verið að bögga mig undanfarið, enda er ég góð stelpa og tek inn lyfin mín. Hugsanlega er þetta bara hluti af stærra máli sem er ekki leyst með því einu að taka inn lyf.
En það er auðveldast og er þar með besta lausnin að mati flestra þunglyndissjúklinga sem eiga í öllum tilfellum erfitt með að takast á við hlutina og vilja einföldu lausnina. En jæja ég nenni ekki að fást um það núna. fuck

fimmtudagur, ágúst 07, 2003

Jamm, fór á fætur kl 6 í morgun. hver ég ???
Fór í ferð með skipafarþega í morgun og síðan settist ég á skrifstofuna og verð hér mína 8 tíma sem sagt helv. langur dagur í dag. Ég er nú samt að hugs um að fara núna eftir 6 tíma hér enda búin að vera að vinna í 12 tíma. Ég vinn upp hina tvo einhverntíamnn seinna.
Það er svona að vera svona blönk, ég á eftir að fá borgað slatta. Ég hef ekki efni á öllum reikninum þessa mánaðar, því miður. Ég þoli ekki að draga reikninga svona áfram, en það er ekki hægt annað. Afborgun af íbúðinni gengur fyrir. Á meðan lifi ég bara með yfirdráttinn í botni á vísa. ha ha, hvur kannast ekki við það. Fínt að fara í svona ferð í dag, borðaði morgun og hádegismat í Eden. Svo fékk ég mér nesti í Perlunni líka. No extra costs. Fínt til að drýgja launin, éta á sig forða ha ha ha .

þriðjudagur, ágúst 05, 2003

Það er stutt stórra högga á milli.
Ég fann til löngunar til að vinna og klára öll verkefnin á borðinu og var alveg til í að vera hér fram á kvöld. Bara kraftur í minni, og svo datt letin ofan í mig og ég rétt nenni að halda út 8 tímana mína hérna.
Fór á KaffihúsadeiT á laugardag með einum sem ég hef verið að chatta við á Private.is.
Ég er ekki neitt sérlega spennt fyrir honum, en ég hugsa að ég sjái hann aftur bara til að ganga úr skugga um það hvort ég sé ekki bara fordómafull gagnvart honum. Keep an open mind segi ég.
En það er soldið að hræða mig hvað hann virðist vera sannfærður eftir eitt treff, scary eiginlega. Vildi hittast aftur strax næsta dag, mér fyndist það of snemmt og svo var ég upptekin líka. En svo er hann að segja mér að hann sé búin að taka auglýsinguna sína á Private úr umferð, vegna þess að það var svo gaman að hitta mig. Og svo hellir hann yfir mig hrósi. Ég er skeptísk á hrós almennt, en meira ef einhver kann sér ekki hóf. Þá læðist strax að mér grunur um að það geti annað hvort ekki verið einlægt, eða að viðkomandi sé ekki alveg í lagi.
Nú og svo er það með ákveðin komment sem mér finnast ósmekkleg. En ég verð að fara varlega í að dæma fólk eftir svona stutt kynni.
Ég leyfi mér það ekki og ætla að hitta hann einhvern tímann aftur, kannski einhverntímann í vikunni.

fimmtudagur, júlí 31, 2003

Lítur út fyrir að ég sé að fara á kaffihúsadeit á laugardaginn. Er soldið spennt.
jæja
er búin að vera að chatta við nokkra á private.is og er nú orðin spennt fyrir einum. En það er nú svo stutt síðan við fórum að skrifast á að maður veit ekkert. Allavega eins og er er þetta spennandi fyrir mig.

Ætla ekki að gera neitt um helgina, bara slaka á og gera eitthvað í íbúðinni. Er alveg ´hætt að gera eitthvða um verslunarmannahelgina.

mánudagur, júlí 28, 2003

Var að koma heim eftir 14 daga ferð á þýsku, var mjög þreytandi enda gekk þó nokkuð á.
Tek það fyrir næst þegar ég má vera að.
Bara skrifa smá til að láta vita að ég sé á lífi.
kv.
Ausi

föstudagur, júlí 04, 2003

Júhú er að fara á lífið í kvöld, með Lindu og kó.
Bjútí
Ég er ansi spennt fyrir því að komast á séns í kvöld þó ég hafi í raun engann tíma fyrir það núna.
Þörfin er til staðar.
Lennti í því að fá SMS frá einhverjum Robba sem sendi á rangt númer. Lennti í smá texti við gæjann. Ég hélt nú fyrst að um einhvern 15 ára væri að ræða en sem betur fer er hann 10 árum eldri en það. ´
Ég tek þessu sem tákni um betri tíð á þessum vettvangi hi hi. Hef það allavega gaman í kvölld og hana nú.
Það er aldrei að vita nema maður skelli sér bara á einn onenightara, frekar en ekkert.

fimmtudagur, júlí 03, 2003

Hitti Guðdísi í gær, gaman að sjá hana en blessunin er að drepast úr kvefi og ægilega mikið stress á henni, hlaupandi frá einum stað til annars.
Hún fór snemma heim í rúmið.
Börkur bróðir var hjá mér í gærkvöldi að hengja upp hillur, lánaði mér borvélina sína. Ég er að læra á þetta verst hvað veggirnir hjá mér eru erfiðir til að bora í. Helvítis vesen bara. Sem sagt það var ekki það að ég væri svo klaufaleg við að negla nagla í veggina hjá mér heldur eru veggirnir allt of sterkir hi hi.
Er að chatta við ágætan gæja á private, kannski fer ég að hitta hann einhvern daginn, væri ekki vitlaust.
Ætla að fá Lindu til að klippa á mér hárið í kvöld, annað hvort hún eða Jenn vinkona hennar. Ætla´líka að ná mér í lit. Set hann samt ekki strax í.
Dagurinn fer að verða búinn, gott.
Ég verð svo stutt í vinnuni á morgun, þarf að fara í jarðaförina hennar Láru föðursystur minnar. Ég verð líklega að koma eitthvða að vinna hér á laugardaginn. Því það er svo lítill tími sem ég hef í næstu viku og ég verð að vinna svo mikið upp áður en ég fer í næstu langferð.
Fer í skipaferðir á sunnudag, mánudag og miðvikudag, bæjarferð á fimmtudag og í 14 daga langferð á föstudag. Auk þess þarf ég að finna tíma til að undirbúa mig fyrir langferðina. Og klára uppgjörið í húsfélaginu.
24 tímar á sólarhring duga mér ekki núna. Ég ætlaði líka að vera´búin að gera íbúðina klára fyrir krakkana þegar þau koma á meðan ég er í ferðinni. grr, ég er að verða stressuð.

miðvikudagur, júlí 02, 2003

Alltaf kvabba ég hér yfir svefnleysi hjá mér, ég er aftur ansi þreytt. Það er smá skýring, ég drakk kaffi með Lindu í gær kvöldi. Algjör unaður að fá að hafa hana aftur hjá sér. Mjög skemmtilegar umræður með nágrönnunum. Kaffið hefur áhrif á svefninn hjá mér en það er ekki allt. Ég er svo hissa á því hvað ég hrekk alltaf upp á sama tíma, kl 4. Og það er ekki eins og ég þurfi að fara á klósettið eða eitthvað slíkt. Very strange indeed.
Annars er lífið bara eintóm gleði. Það er svo mikið að gerast núna. Allir í heimsókn og alles.
Skápurinn sem ég hirti í gær er mjög svo forvitnilegt húsgagn, ég er ekki enn búin að finna út til hvers þetta er hugsað. Hvaða not þetta átti að hafa. En allavega er þetta harðviður í gegn og ég sé marga notkunarmöguleika. Bara láta hugarflugið reika, það er skemmtunin.

þriðjudagur, júlí 01, 2003

Hmm hvernig stendur á því að ég hef alltaf mestu þörfina til að skrifa þegar ég er ekki sem kátust.
Grrrrr, er soldið pirruð. Kannski vegna svefnleysis, það voru einhverjar martraðir að pirra mig í nótt. Mánaðarmót eru líka erfið í vinnuni, ég verð komin í fínt skap þegar ég kem héðan út.
Ég er svo dugleg, ég skipti um bremsuklossa á hjólinu mínu hjálparlaust í gærkvöldi. Ég er stolt af mér. Reyndar tók ég sexkantinn með mér ef vera skyldi að ég þyrfti eitthvað að stilla þær eða að herða á þeim. Þess var ekki þörf, alveg brill.
Þá er það bara að fá lánaða borvél til að klára það sem bora þarf. En ekki í dag.
Ég vil endilega hitta útlendingana mína, þ.e. Guðdísi sem var að koma til landsins og Lindu sem kemur í dag.
Jyppi jey
Sótti um vinnu á netinu í dag, kannski kannski.

Sá sætan skáp sem verið er að henda í næsta húsi, kýkji á hann kannski get ég hirt hann.

mánudagur, júní 30, 2003

Letihelgi sumarsins er liðinn. Ég fór varla út úr húsi alla helgina, ekki nema aðeins út í búð.
Reyndar gerði ég eitthvað af viti, þvoði og þreif eitthvað svo íbúðin líti út fyrir að vera mannabústaður.
Hélt að ég ætti von á Sollu í kaffi, í gærkvöldi. Var víst ekki.
Lindin kemur heim á morgun í 10 daga frí, jippýjey.
Ég er spennt að komast að því hvað ég fái útborgað þessi mánaðarmót, ég þarf að telja saman allar ferðirnar sem ég fór til að sjá hvað ég ætti að fá borgað.
Svo þarf ég að klára helv. uppgjörið vegna húsfélagsins á Háó svo ég sé laus við þetta loksins.

Ég þarf líka að kalla til bræður mína með borvélar sínar svo ég geti lært að bora og klárað loks fyrirliggjandi verkefni í íbúðinni. Fór um daginn til Hlynsa til að láta hann saga fyrir mig. Fæ svo Börk til að festa eldhús hillurnar og annað því um líkt. Ég vil endilega klára það sem ég er með í gangi í sambandi við íbúðina áður en krakkarnir koma frá Svíþjóð.

Ég hef ekkert verið að gera mikið utan heimilis og vinnu undanfarnar vikur, nema eitt. Ég hef farið 2 síðustu föstudaga á "drekktu betur" spurningakeppnina á Grand rokk með Hjördísi úr vinnuni. Ekki höfum við unnið neitt ennþá en hvur veit?? Gaman að þessu!!

Er að chatta við gæja á private, virðist vera ágætur. Aldrei að vita nema maður leggji í að hittast einhvern daginn??

fimmtudagur, júní 26, 2003

Ég á svo dyggann lesanda sem kvartar ef ekki er skrifað reglulega.
Ég hef engann tíma haft til þess að skrifa, ég hef verið á þeytingi. Það er svo mikið að gera að ég er að fríka út af gleði og stressi. Gleði yfir því að hafa skemmtilegt fólk í kringum mig sem hefur tíma og stressi yfir því að hafa sjálf ekki nægann tíma til að eyða með því.
Það eru að koma og eru komnir vinir og vandamenn sem búa í ýmsum löndum, núna í sumar.
Aldís er komin frá Milano, Guðdís væntanleg frá Dusseldorf, Linda frá Edinborg, Nína og Magga frá Svíþjóð, Inga systir frá Svíþjóð. Maður verður að skipuleggja sig vel til að ná að hitta alla og vinna 2falda vinnu.

Undanfarnir dagar eru búnir að vera soldið stressandi, síðustu daga hef ég 3var verið í ferð frá 8:30 til kl ca 20 - 21. Enginn tími til að slappa af. Hvað þá að hugsa um sitt nánasta umhverfi. Íbúðin er á hreinasta hvolfi. Ég skil ekki af hverju ég get ekki lært að ganga frá hlutunum jafnóðum svo að ástandið verið ekki svona slæmt.
Ég fer með hópinn í bláa lónið í kvöld og ég ætla sko að fara sjálf ofan í, til þess að slaka aðeins á. Ég finn mér bara eitthvað skot þar sem þau finna mig ekki og ég fæ að slaka á á meðan ég er í vinnuni. HI hi.
Solla mín, ég bara hef ekki tíma fyrir meiri skrif en þetta.
Sjáumst.

fimmtudagur, júní 19, 2003

Ég skrifa nú ekki mikið þessa dagana.
Hmmm látum okkur nú sjá, 17 Júní kom og fór án þess að ég gerði eitthvað sérstakt. Fór til mömmu í smá höfuðbeinog spjaldhryggs meðferð, var svo bara ein heima að dúlla mér.
Kvöldið áður fékk ég heimsókn frá 2 vinnufélögum sem komu til að dást að handverki mínu í íbúðinni. Það var fínt kvöld , rauðvín, ostar og kertaljós. Og kjaftastuð náttúrulega.
Solla hringdi í mig um daginn til þess að forvitnast um hagi vinkvenna okkar erlendis. Ég sagði henni nýjustu fréttir og beindi henni á Lindina. Sem gerir það að verkum að hún fann náttúrulega linkinn hingað. Ég er sem sagt komin með nýjan lesanda.
Ég fer og tek á móti þýskum hóp sem ég verð með næstu vikuna í kvöld. Þetta eru dagsferðir útfrá Reykjavík, sem þýðir að ég á mér mitt líf á meðan, þó ég sé með sama hópinn í víku. Nú er um að gera að standa sig vel og fá fullt af peningum frá þeim í tips.
Hjördís sem ég vinn með stakk upp á ég kæmi með henni á spurningakeppni á Grand Rokk á morgun, fínt maður gæti kannski unnið sér inn bjórkassa.
Svo er ég búin að mæla mér mót með Sollu í bíó á sunnudagskvöldið,´hún er barnlaus og þar af leiðandi iðjulaus þessa dagana. Ég vona að hún fari að jafna sig í ´tánni fljótlega, svo hún geti gert aðeins meira.
Aldís kemur líka í bæinn um helgina, hún er að vinna á hvalaskoðunarbáti á Húsavík í sumar. Smá munur á bústað frá Mílano til Húsavíkur, hmm.
Er aðeins að kýkja á karlkynið í gengum einkamálasíðurnar á netinu, ágætis afþreying sem hefur hingað til ekki veitt mér neina spennu svo sem. Átti 1 deit, sem mér fannst ekki svo mikið til koma. Er að tjatta við annann sem ég er ekki farin að sjá ennþá hvernig er, lofar góðu enn sem komið er.
Annað sem kannski mætti reyna upp á grín, hraðstefnumót. Það eru á örskömmum tíma komin upp tvö fyrirtæki sem bjóða svokölluð hraðstefnumót. www.hradstefnumot.is og www.speeddater.is. Er smám saman að komast á laggirnar single menning hérlendis. Ég bara spyr??
Í það minnsta er fólk að reyna að græða á því að fólk er einsamalt. Það kostar 2500 að komast á stefnumót með 10-20 mönnum í einu og 3 mínúntna samveru með hverjum. Á 3 mínúntna samtali á maður að mynda sér skoðun á fólkinu, ef þetta er ekki leið til þess að nýta sér allar skúffurnar sem maður hefur útbúið í huga sér alla ævi til að greina fólk í sundur, þá veit ég ekki hvað það er að hafa fordóma. Ha ha ha

mánudagur, júní 16, 2003

Illa sofin og með túrverki, það hlýtur að vera fullt tungl.
En það vill svo vel til að það var frí hjá mér í gær og verður aftur á morgun. Svo verð ég að troða mér í fleiri langferðir.
Einhvern veginn verð ég að vinna mér inn nægilegan pening á árinu.
Same old same old.

föstudagur, júní 13, 2003

Letibykkja get ég verið, ég nenni ekki að vinna, ég hangsa í vinnuni til að reyna að fá tímann til að líða. Það er ósköp lítið sem ég hef afrekað í dag.
Sem sagt lítið búin að gera af mér þó að það sé förstudagurinn 13.
Kannski ég myndist við að gera eithvað síðasta klukkutímann, svo að það sé ekki svo mikið að gera hjá mér eftir helgi. Verkefnin hverfa ekkert.

fimmtudagur, júní 12, 2003

Gaman að vera til, er í skratti góðu skapi.
Synd að þurfa að eyða tímanum þá í að vinna ein við tölvuna. Ég vil gera e-ð skemmtilegt með öðru fólki í þessu skapi.
Þetta væri frábær dagur til að fara að djamma ef það stæði til.

miðvikudagur, júní 11, 2003

Ég fæ heimsókn frá svíþjóð í sumar og það verður sérlega skemmtiliegt.
Mig hlakkar mikið til þess að fá heimsókn, verð aðeins að plana þetta soldið.
Mig dreymdi undarlegann draum í morgun, eftir fyrsta hanagal (ha ha). Ekki að ég muni það nákvæmlega en í megindráttum var málið það að það voru áramót. Stemmningin var mjög undarleg, það virtist vera sem enginn böll væru haldinn og engum flugeldum skotið á loft.Nema af obinberum aðilum og það var einhver smásýning. Ég var ekki með það á hreynu hvað væri að gerast. Ég spurði einhvern, hvers vegna það væru hvorki böll né að almenningur skyti upp flugeldum. Ég hefði bara alls ekkert verið að fylgjast með og bara alveg gleymt því að þetta væri hluti af hátíðarhöldum áramótanna en nú þegar áramótin væru hefði ég tekið eftir því að þetta vantaði sárlega.
Viðkomandi svaraði því að það hefði bara ekki þótt við hæfi með tilliti til ástandsins sem væri.
Ég samþykkti það en fannst þetta samt vera alveg ómögulegt. Ég fór þá í nokkrar heimsóknir og tók eftir þrúgaðri stemmningu á öllum heimilum sem ég kom inn á.
Fyrsta pælingin um meiningu þessa draums var að einhverjar breytingar munu eiga sér stað hjá mér. Breytingar sem koma mér á óvart því þær eiga sér stað hægt og rólega. Ég er greinilega ekki sátt við þessar breytingar.

þriðjudagur, júní 10, 2003

Allt í háalofti í FL. Fyrrverandi formaður með kjaft og læti á Gestabók félagsins á netsíðunni.Svo að segja með meinyrði. Ég veit ekki betur en ef fólk vildi leggjast niður á þetta lága plan þá er nóg til af skotfærum úr fortíð hans sem formanns. Talandi um glerhús..... Ég bara get ekki annað en hrist hausinn yfir þessari dellu.

fimmtudagur, júní 05, 2003

Ég sá þáttinn Fólk með Sirrý í gær og er það yfirleitt eitthvða sem ég svona lít á með öðru. Þátturinn í gær var hins vegar nokkuð skemmtilegur. Efni þáttarins var frístundir einhleypra!!
Nokkrar manneskjur voru boðnar í spjall í þættinum, í miðpunkti voru 2 konur og einn maður.
Að mér læddist sá grunur að maðurinn sem valinn var til spjalls í þættinum hefði verið valin með það í huga að varpa miður góðu ljósi á karlkynið. Því hann gat engan veginn tjáð sig um það hvernig það væri að vera einhleypur og um kvenkynið yfirhöfuð án þess að það kæmi ein út sem hreinasta karlremba í vörn. Og þess var ekki þörf, þær létu enginn orð um það falla hversu ómögulegt karlkynið væri, en það eina sem hann hafði að segja var að íslenskar konur hefðu farið fram úr sjálfum sér í kvenréttindunum og væru bara að hefna sín, að þær væru of sterkar og sjálfstæðar. Ekki vegna þess að hann væri ennþá einhleypur heldur er hann giftur erlendri konu. Konurnar fóru á kostum, sérstaklega Súsanna Svavarsdóttir. Hún talaði mitt mál, sérstaklega þegar hún talaði um mennina á stefnumóta netsíðunum sem ekki væru færir um að skrifa rétta íslensku, og þar er ég alveg sammála. Það er góð vísbending um gáfnafarið, finnst mér. Annað var þegar hún var að reyna koma manninum í skilning um að hann hefði ekki rangt fyrir sér í sambandi við samskipti kynjana hérlendis. Hún sagði að málið væri það að konur væru bara hreinlega búnar að fatta það að það sé betra að vera ein en í vondu sambandi.

miðvikudagur, júní 04, 2003

jamm ekkert sérstakt sem liggur mér á hjarta, ég hélt ég myndi vita hvað ég ætlaði að skrifa um þegar ég væri búin að logga mig inn, nú dettur mér bara ekkert í hug.
Sem sagt, friður, gleði og eggjakaka.

mánudagur, júní 02, 2003

Ég fór á kaffihúsa deit í gærkveldi.
First impression var ekki heillandi, greindur maður fyrir því. Ég ætla nú að kynnast manneskjunni áður en ég felli einhvern dóm.
Hvernig sem það nú er, er það skemmtileg tilbreyting að kynnast nýju fólki.Skreppa aðeins á kaffihús og spjalla. Ég er orðin hreinlega of löt til að fara út úr húsi.

miðvikudagur, maí 21, 2003

Það er mikið að gera á öllum vígstöðvum, en samt ansi gaman. Það er búið að vera mjög gaman í vinnunni í dag. Mjög undarleg en, skemmtileg stemmning. Stórskotahríð í allar áttir. ;-)
Meiddi mig á gleri í gær, Linda hættu að lesa, þú vilt ekki vita þetta. Rann til við það að hreinsa gler úr ramma og skar mig við það. Skar naglabandið á löngutöng af og meira til. Verð að eignast plástur á heimilið.
Ég keypti mér 5 ramma í mism. stærðum og gerðum í Góða hirðinum. Hreinsaði þá og lagaði að mínum smekk.Æði, ég er svo skotin í þeim.
Ég verð að fara að forgangsraða þessum verkefnum sem liggja fyrir í innréttingum.
Verð að hringja í tryggingafélagið og ath. hvort ég fái einhverjar bætur fyrir vatnslekann. Ég var líkl. ekki búin að skrifa neitt um það. Einn morguninn þegar ég vaknaði var eldhúsið á floti, það hafði farið pakkning í blöndunartækinu. BB var kallaður út og lagaði allt. Börkur Bróðir kann allt og getru allt. ha ha .

þriðjudagur, maí 20, 2003

Ég hef aldrei pælt í því hvaða konur það eru sem stunda vændi, þ.e. að það séu bara venjulegar konur eins og ég og þú.
Jú reyndar hef ég einhverntímann pælt í því að vísu. Og verið sannfærð um að það séu ágætar og ósköp eðlilegar konur sem stunda vændi sér til viðurværis.´Reyndar er ég líka viss um að stór hópur vændiskvenna ef ekki meirihlutinn sumsstaðar hefji störf vegna neyðar eða eru neyddar til þess að gera þetta. Það á þá sérstaklega við erlendis.
Hins vegar finnst mér það vera öðru vísi á þessu litla skeri okkar þar sem allir þekkja alla. Hver einasta kona sem reynir fyrir sér í þessari grein hér á landi á á hættu að þekkja kúnnana sína persónulega einhvers staðar frá. Og vice versa. Það er mjög fljótt að gerast að fólk sé stimplað fyrir lífstíð í okkar litla samfélagi. Það verður aldrei aftur snúið, það gerir greinina líklega mikið erfiðari en annarsstaðar.
Fyrir nokkrum vikum var þó nokkur umræða um vændi hér í fjölmiðlum. Það byrjaði með frétt um dömu sem lækkaði verðið á markaðnum svo um munaði. Síðar var Stöð2 með rannsóknarblaðamennskuna í fyrirrúmi þegar vændiskona var heimsótt með leyndri myndavél innanborðs.
Nú er ég að heyra sögu um það hver þessi kona eigi að vera og stóð mig að því að hafa mikla fordóma hvað þennan starfsvettvang snertir.
Mér fannst þessi kona sem um ræðir væri heldur ólíkleg til þessa. Svo sérlega venjuleg kona, ekkert sérlega áberandi á neinn hátt. Þokkalega menntuð, ekki þessleg að hún hafi engin önnur atvinnutækifæri en láglaunastörf.
Þegar hún skipti um starfsvettvang þá sagði hún engum frá því hvar hún hefði fengið aðra vinnu. Hún sagði að atvinnuveitandinn vildi ekki að hún talaði um það fyrr en hún væri byrjuð að vinna þar. Það kom fólki á óvart á þessum vinnustað og taldi fólk að hún væri að fara yfir til samkeppnisaðila. Meir en ári eftir að hún hætti að vinna á þessum vinnustað hringdi móðir hennar til að tala við hana og var ílla brugðið við að komast að því að hún ynni ekki lengur þarna.

Núna er ég mikið að hugsa um það hve lítið maður veit um ýmsa kunningja og málkunnugt fólk sem maður hefur umgengist í gegnum tíðina. Það gæti hver sem er átt sér sín leyndarmál sem mann grunar ekki að þau eigi. Fólk sem maður hefur búið til ákveðna mynd af, byggða á því sem maður þekkir af fólkinu eður ei. Svo kemst maður að því að maður hefur í raun ekki nokkra hugmynd um hver manneskjan er.
Það vekur aftur upp stóra spurningu Þekkir maður nokkurn tímann aðra manneskju í raun??

mánudagur, maí 19, 2003

Ég er örugglega búin að missa eina lesandann að þessari síðu, ég skrifa svo sjaldan.
Svefnleysi er mér efst í huga í dag. Ég er líklegast orðin of gömul til að drekka kaffi eftir kl. 8 á kvöldin. Ég var í heimsókn hjá Daða, sem er æskuvinur og fyrrum nágranni. Ég notaði tengsl mín við hina ýmsu aðila í hverfinu til að geta fundið einhverja aðila sem hægt var að taka viðtöl við. Þetta Gallup verkefni sem ég tók að mér er ekki launað í samræmi við fyrirhöfn. Ef ég hefði ekki þekkt og kannast við marga í hverfinu hefði ég ekki fengið nema kannski 2-3 til að tala við mig.
Ég er fegin að þetta er búið núna. Þetta er fengin reynsla og lokuð bók. Enginn leið til að þéna pening. ´
Þá er það bara leiðsögnin. Ég helli mér út í hana af fullum krafti núna.
Ég er að slæpast í vinnuni og þyrfti að vera duglegri í dag að vinna fram í tímann svo að ég geti tekið mér frí í næstu viku vegna ferða m. túrista.
Ég er nú samt með áhyggjur af því hvernig mér eigi eftir að takast að sitja svo dögum skiptir í rútu með rófubeinið eins og það er:
Mér er ennþá illt í rófubeininu, ég ætlaði í hölfuð bein og spjaldhryggsmeðferð á laugardag. Því miður missti sá sem ætlaði að taka mig í meðferð pabba sinn daginn áður og gat því miður ekki tekið nein verkefni að sér. Skiljanlega. Svo ég sit hér og strýk mér um sár..ann botninn.
Ég var búin að ákv. date, í gærkveldi. Það gekk ekki eftir því Gallup verkefnið var ólokið. Það er netkunningi sem ég ætlaði að hitta í fyrsta sinn.Við vorum búin að ákv. að hittast fyrir ansi löngu síðan en þá, varð ég veik. Síðan var ekkert samband í lengri tíma en nú á að hittast yfir kaffibolla kannski í kvöld.
Maður verður að reyna.
Kannski ég leggi mig í hádeginu ég er það þreytt.

föstudagur, maí 16, 2003

Jamm
Ég er löt við að vinna í dag, it's Friday baby!!
Ég er búin að vera á kafi í bókhaldi , húsreglum og tillögu að nýjum hússjóði. Í gær var aðalfundurinn og ég er laus við gjaldkerastöðuna, sem betur fer. Júhú, síðustu 2 vikur hefði ég átt að vera dugleg við að ganga á milli húsa og gera skoðanakönnunin sem ég er að vinna við fyrir Gallup. En ég hef verið einstaklega löt við það og verð að viðurkenna að ég er búin að koma mér í hálfgerða klípu með þetta. En hvað um það, ég verð að kýla þetta í gegn fram á sunnud.

Á laugardag er ég svo að fara í höfuðbein og spjaldhryggs meðferð við rófubeininu. Ég verð að lagast svo ég geti farið í langferðir í sumar. Fyrsta ferðin er fyrirsjáanleg í næstu viku. Þá verð ég að vera orðin sæmileg í það minnsta.
Mér finnst það svo merkilegt að enginn hér á landi virðist hafa neinn áhuga á náttúrufyrirbærum eins og tunglmyrkva eða sólmyrkva.
Nú síðustu nótt var tunglmyrkvi og virðist lítið hafa farið fyrir áhuga á því. Smá frétt um það eftir á. Nú svo er sólmyrkvi á laugard, 31 Maí.
Ég hef ekki orðið vör við miklar umræður um slíkt. Á meðan ég var í þýskalandi var einu sinni sólmyrkvi, ef ég man rétt sumarið '99. Það var gífurlega skemmtileg stemmning í kringum það. Það var stöðugt fjallað um sólmykrva í fjölmiðlum, hvað er að gerast og hverju fólk mátti eiga von á. Einnig var mikið fjallað um nauðsyn þess að vera með sérstök gleraugu á meðan á þessu stendur. Þegar að þessu kom var mikil stemmning um allt land og fólk safnaðist saman á ýmsum stöðum til að fylgjast með fyrirbærinu. Ég stóð með þúsundum manna í Ólympíugarðinum í München í hellidembu. Það dró fyrir og var þungskýjað á meðan á myrkvanum sjálfum stóð, ekki sá maður nákvæmlega allt en stemmningin var merkileg þegar dagsbirtan hvarf í augnarblik og fólkið tók andköf samtímis og það klappaði.
Hvar er hátíðisstemmingin á íslandi vegna sólmyrkvans hér??


miðvikudagur, maí 07, 2003

Ég er nú ekki dugleg að skrifa þessa dagana. Apríl er liðinn og vorið skríður enn hraðar áfram. Rétt strax er komið sumar.
Peningar eru mjög mikið áhyggju efni hjá mér þessa dagana. Ég vil geta borgað það sem ég er búin að skuldbinda mig til að greiða á árinu, án þess að stofna til óviðráðanlegra skulda. Það var nú ástæðan fyrir því að taka ekki 90 % lán fyrir íbúðinni, að skulda minna og eiga meira.
Af þessu tilefni er ég farin að vinna hjá Gallup sem spyrill, tímabundið í þessari og næstu viku.
Auk þess er ég að reyna að fá eins margar ferðir í sumar og ég kemst í. Ég er búin að fá 8 daga hóp í dagsferðum frá Reykjavík um miðjan Júní og 14 daga hótelferð, hringin í kringum landið í Júlí. Það er betra að fá að vera með sama hópinn marga daga í röð því þá fær maður yfirleitt alltaf þjórfé. Það er ekki svo algengt með dagstúrista.
Þessa dagana er ég að reyna að vinna upp gamlar syndir í vinnuni og hreinsa út gamla pappíra og annað slíkt. Svo að allt sé á hreinu í sumar. Ef ég kem bara öðru hvoru inn í sumar og vinn bara nokkra daga í einu, þá verður allt að vera í góðu skipulagi og engar gamlar beinagrindur í skúffunum hmmmm. Mikið verður sumarið ljúft.
Ég þyrfti bara að fá mér lappa að láni eða eittvhað slíkt.
kannski, kannski

miðvikudagur, apríl 09, 2003

Vorið er svo sannarlega komið. Tjaldurinn sem bjó hér á þaki Pennans í fyrra er komin aftur. Annað hvort er hér um að ræða stegginn frá parinu í fyrra eða að annar unganna sem þau ólu upp í fyrrasumar er komin á "æskuslóðirnar"
Það koma svona SUMAR tilhlökkunar kippir í hjartað, en þó óska ég þess að þau búi sé til hreiður annarstaðar en hér á þakinu. Því ekki Ámúlaskóli, þar er enginn á sumrin eða hvað??
Mér ætlar að takast að mæta öðru hvoru í ræktina fyrir vinnu. Það er erfitt en ég get það.
Í morgun þorði ég loks að horfast í augu við óvininn. Ég hef ekki þorað á vikt í u.þ.b. 1/2 ár. Ég er samkvæmt viktinni í world class 94,5 kg. Úff það hlaut að vera, en þetta er bara ekki ég. Ég hef oftast nær verið að berjast svona á milli 80 og 88. Finnst mér það nú nóg. Ég vil komast í fatastærð 44 fyrst og svo vil ég verða 42 og vera þar. Það er nokkuð góð stærð fyrir mig.
Nú er komið nóg, nú verður tekið á viktinni for ever. Enough is enough.


mánudagur, apríl 07, 2003

I'm so damned clever.
Það er náttúrulega bara snilld hvað maður er alltaf gáfaður.
Bókhaldið er náttúrulega ekkert mál ef maður bý yfir smá tölvulæsi og aðgangi að netbankanum. hm da
Ég skil ekkert í því hvað ég er alltaf að fela þessa snilligáfu mína.
Ég þarf í kvöld að vesenast í enn einni skattaskýrslunni. Fyrst ég er svo clever, Edda vinkona hennar Mömmu þarf að skila líka á netinu, og ég að hjálpa kellingunum.
Ég er svo heppin með þetta ferðalag mitt að það er ekki fyndið. Ég græði engann tíma á tímabreytingunni. Þarf að bíða jafn lengi í London.OK 3 tímar eru bara temmilegur tími. Ekkert mál. Vandamálið er hins vegar það að þegar ég er að lenda í Nürnberg, er síðasta lestin það kvöld að leggja af stað. Sem þýðir ...... að ég þarf að bíða til kl. 4:30 í 4 klst. eftir 1.klst. lestarferð.
Það segir sig sjálft að það er ekki gaman.
Ef enginn getur sótt mig þá liggur við að ég taki bara bílaleigubíl, christ ég er ekki að nenna að hanga á lestarstöð alla nóttina!!!!!

Mér liggur við gráti. Ég er svo vonsvikin.
Ég vildi óska þess að fólk sem mér líkar við, myndi halda helv. kjafti yfir bölvuðum kynþáttafordómum sínum. Þá myndi ekki álit manns á þessu fólki breytast.
Sorglegt hvað ljúfasta fólk getur verið ljótt inn við beinið. :'-( sniff

föstudagur, apríl 04, 2003

Happy friday. ´
Ég er mjög ánægð með að það er föstudagur í dag. Júhú
En það þýðir nú samt ekki allskostar að það sé frí hjá mér alla helgina. Ég verð í fulltime jobbi við að fara yfir bókhaldið í húsfélaginu. Svo ég geti losað mig við þetta í lok mánaðarins.
Ég skellti í hárið á mér smá skoli í gærkvöldi, litaði það rauðara aftur og enginn í vinnuni tekur eftir því.
Og ég sem hélt að ég væri ekki smá hot!!
hi hi

miðvikudagur, apríl 02, 2003

Oh my god, ég hlakka ekki smá til að fara út á gamlar slóðir eftir rétt rúma viku. Ég hef ekki verið svona spennt fyrir neinu í eilífð, jú að fá íbúðina, þá var ég spennt.
Ég hef ekki séð flesta vini mína úti síðan að ég kom aftur heim fyrir 27 mánuðum. Holý mólý. Það hefði ekki mátt vera minna en 2 vikur. Og ég er fegin að ég var ekki að stytta fríiið eins og mér datt í hug.

þriðjudagur, apríl 01, 2003

Hæ hó og jippý jej það er 1. Apríl og mér dettur eins og vanalega ekkert aprílgabb í hug.
En mér tókst nú samst sem áður að kaupa mér miða út. Ég fer s.s. til Þýskalands via London þann 10/4 og lendi í Nurnberg um miðnætti. Til baka fer ég í gegnum Munchen via London þann 24/4. Ég er alveg að míga á mig af spenningi.

mánudagur, mars 31, 2003

Lesandinn minn er eitthvað að hvarta yfir því að ég sé ekki næginlega dugleg að skrifa hér. Hvaða hvaða ég skrifaði á miðvikudaginn var.
Í dag hef ég svo til engann tíma til þessa atarna. Ég er á kafi í vinnuni eins og alltaf um mánaðarmót. Ég kvaddi Larissu í gær áður en hún fór til fjarlægra landa.
Seinni partinn í gær var ég svo að vinna í fermingarveislu, smá aukapeningur er alltaf fínn.
Annars verð ég að taka mér tíma í að skipuleggja vinnu sumarsins. Ég fæ eittvhað launalaust frí ofan á sumarfríið til að sinna leiðsögninni. Sem þýðir að ég gæti þénað ágætlega í sumar. Ef ég er dugleg þ.e.a.s.
Ég er að rembast við að finna mér flug til Munchen um paskana og gengur það brösuglega. Ástæðan er smá miskilningur hjá mér, ég helt að ég hefði 30 mín. á milli flugvéla, en það stemmir ekki. Munchen flugið fer frá Stansted 30 mín, áður en Iceland Express lendir. Fúlt, en ég reyni að finna út úr þessu.
Sorry´beibe verð að vinna ;-)

miðvikudagur, mars 26, 2003

Ausinn er þreyttur í dag, fór ekki í bólið fyrr en 1 og sofnaði ekki fyrr en löngu seinna. Ég þori aldrei að líta á klukkuna við svona tækifæri því þá gæti ég stressast upp og átt enn erfiðara með að sofna. Ég hefði hins vegar þurft að fara fyrr að sofa því ég vaknaði kl. 6 til að fara í ræktina kl. 6:30. Ég þarf hins vegar alla vega 7 tíma svefn,til að lifa daginn af.
Mikið er ég farin að hlakka til að fara út til þýskalands og hitta alla aftur. Ég var farin að panikka smá um að allir vildu frekar vera á ferðalagi á þessum tíma, ég var ekki búin að heyra nema frá Evu vinkonu minni en engum öðrum og hún sagði mér í gær að hún ætlaði til Ítalíu á þessum tíma. Þannig að ég sendi smá panik mail á Alenku og Petru og sms á Sebastian og Sylviu. Alen svaraði mér í dag og hún verður í bænum svo að það er ekki svo slæmt. Þannig að ég held ég fari. Ég ræði frí og þessháttar við Óla í dag. Svo sæki ég um Visa og kaupi mér svo miða.Það eru allir að panikka fyrir mína hönd að ég fái engann miða á lágu fargjaldi. En ég óttast það svo sem ekki. En þetta er að verða raunverulegt, ég trúi því ekki hvað ég hef fjarlægst þessa vini mína og hvað ég hef verið lengi hérna heima. Ég fór frá Augsburg í desember 2000 og nú er mars 2003 það eru að verða komin 2 1/2 ár síðan ég fór. Sniff.

þriðjudagur, mars 25, 2003

Nú er ég komin í vinnuna aftur eftir að hafa legið fyrir í 4 daga. Mikið var mér farið að leiðast. Sem betur fer kom Larissa nokkrum sinnum í sjúkraheimsókn til mín. Mig vantaði algjörlega að hafa annað hvort breiðvarpið eða video. Ég er ekki enn farin að fjárfesta í skartsnúru milli tv og video´, þannig að ég hafði lítið sem ekkert að gera á meðan ég var veik. Gat ekki lesið, hafði enga einbeitingu til þess. Ég var að dúlla mér við ýmis verk í íbúðinni en það var ekki svo sniðugt heldur. Ég byrjaði á einu og varð svo þreytt að ég þurfti að leggjast, byrjaði á öðru og lagði mig og svo framvegis. Þannig tókst mér ekki að koma neinu í verk heldur skapaði ég í staðinn mikla óreyðu og kaos.
Hápunktur þessara 4 daga var þegar ég fann meðal gamalla bóka sem ég var að gramsa í gamlar dagbækur. Réttara sagt dagbókarbrot. Ég hef aldrei haldið dagbók lengi. Ég hef oft reynt það og mér finnst það alveg dýrðlegt að lesa svona löngu seinna. Þessi dagbókarbrot eru frá árinu 1990, síðasta árið í MH. Ég las part úr þessu fyrir Larissu í gær og skemmti hún sér stórvel yfir þessu. Einnig gróf ég upp útskriftarbækur okkkar beggja. Pínu nostalgia í gangi, en bara pínu.

N'u liggur leiðin fram á við, það eru farin að gerast undur og stórmerki á atvinnumarkaðnum. Þeim fer smám saman fjölgandi á ný áhugaverðu störfunum á lausu. 2 stöður hjá Almannatengsla fyrirtækjum, kynningafulltrúi hjá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og hjá kvikmyndamiðstöð íslands. Auk þess sem auglýst var starfsþjálfun hjá Utanríkisþjónustunni.
" the only way is up"

fimmtudagur, mars 20, 2003

Úff ég trúi því ekki að ég sé að verða veik aftur. Ég er svo gífurlega kvefuð að ég man ekki eftir öðru eins. Ég finn að beinverkirnir eru líka að koma. Þannig að ég hugsa að ég leggist í rúmið strax eftir vinnu. Mér finnst ólíklegt að ég komist í vinnuna á morgun.
Svona er það þegar eitthvað smáræði bjátar að manni, þá hættir maður að sjá út fyrir eigin litla heim.
Stríð í öðrum heimshornum eru lítilvæg á meðan. Svona getur maður verið sjálfhverfur og vitlaus.

miðvikudagur, mars 19, 2003

Í morgun tókst mér að fara í ræktina fyrir vinnu, belive it or not ég fór á fætur kl. 6 í morgun. Er það kannski ástæðan fyrir því að mér finnst þessi dagur vera svo ótrúlega langur. Klukkan ætlar ekkert að skríða áfram. Ég var svo þreytt að ég lagði mig í hádeginu, í 10 mínuntur á sófanum hjá mömmu. Draumur í dós.
Svo verð ég ekki komin heim fyrr en um tíu leytið í kvöld út af námskeiðinu mínu. Ég er viss um að ég verð ansi þreytt þá.
En ég þarf nú samt að pæla soldið í útlitinu á morgun því ég er að fara á hálfgert date á morgun. S.s. fyrsta deitið útfrá þessari netsíðu. Það er sem sagt þessi tölvunarfræðingur sem ég hef verið að spjalla við á Private.is sem ég er að fara að hitta á morgun. Ég er að spá í hvernig ég á að hafa þetta, ég hef Larissu í bakhöndinni. Ég fæ hana til að hringja á fyrirfram ákveðnum tíma til þess að ég hafi einhverja leið út ef þetta er eitthvað vandræðanlegt.

þriðjudagur, mars 18, 2003

Nú er runninn upp sá dagur sem við lengi höfum óttast, stríðsyfirlýslingin hefur verið borin fram.
Ég horfði á ræðu Bush í sjónvarpinu í gær og ég er ekki sannfærð. Hver hefði trúað því hmmm. Ef ekki yrði karlhelvítið að píslarvætti fyrir bragðið myndi ég óska þess að einhver tæki upp á því að drepa fíflið. Þannig að í stöðunni er ekki um neitt annað að ræða en að bíða eftir að hann framkvæmi einhver axarsköft og þurfi svo að blæða fyrir þau. En hver þarf að blæða meir en hann, jú almenningur í hverju því landi sem ekki er honum sammála, lætur lífið fyrir vikið.
Ég er svo bálreið, ég óska þess að hið ameríska stórveldi riði til falls. Og að það verði sjálfu sér að falli hið sjálfhverfa nærsýna fólk sem ekki skilur neitt utan síns eigin reynsluheims. " Why do they hate us?" og restin af veröldinni svarar í kór " why did you destroy us?" Nei nei allir þeir sem við misnotum í eigin hagnaðarskyni eiga að elska okkur og virða fyrir það að við frelsum þau frá einræðisherrum og nýlenduherrum og fagna nýju frjálsu herraþjóðinni.
Ég veit að þú varst ekki með neina nettengingu, Linda mín. Það er ljóst að ekki skrifar þú mikið þá.

mánudagur, mars 17, 2003

Jæja Linda mín, það eru komnir 5 dagar síðan þú fórst og ekki hefur lifnað mikið yfir blogginu þínu ennþá. Ég veit ég get trútt um talað vegna þess hve lítið ég hef bloggað svo sem. Ég get í það minnsta borið fyrir mig að ég var veik heima í 2 daga. Nú og svo er ég ekki með tölvu heima hjá mér . Ég var með beinverki og smá hita á fimmtud. og föstd. en ég fékk enga flensu. Nú og núna finnst mér ég vera að fá í magann, búin að vera með niðurgang í gær og í dag. En það er svo venjulegt að maður situr ekki heima út af því.
Ég var að vinna í Húnabúð á laugardagskvöldið, 5 tímar. Ágætt að fá smá auka aur.
Og svo var ég með saumaklúbb í gær. Ég verð að fara að halda innflutningspartý fljótlega til að koma öllu þessu snakki út sem ég keypti fyrir stelpurnar. Ekki hef ég lyst á þessu.

miðvikudagur, mars 12, 2003

Ég fór með hóp af fólki sem ég útskrifaðist með úr Leiðsöguskólanum fyrir ári að skoða Norðurál í Hvalfirði í gærkveldi. Þetta var áhugavert að sjá einu sinni, en ég er nú samt ekki sannfærð um að öll okkar framtíð liggi í álbræðslunni einni saman. Í það minnsta ætti ég nú að geta gert túristum grein fyrir því hvað um er að ræða. Burtséð frá mínum skoðunum og antipati á stóriðju almennt.
Ég ætlaði svo að fara í ræktina kl. 6 í morgun, en þar sem dóttir hennar Sigrúnar var veik þá komst hún ekki og ég bara skrapp aftur upp í rúm og sofnaði aftur. Svaf þá yfir mig. Well what else is new. Ég er nokkuð viss um að svefnörðugleikar mínir undanfarnar nætur eiga rætur sínar til kaffineyslu á kvöldin að rekja. Nú fer ég að passa mig á kaffineyslu eftir klukkan 8 á kvöldin. Það er líklegasta skýringin á því af hverju mér tekst ekki að sofna þó ég sé þreytt og allt annað stemmi. Það er þá eitt af því sem ég ætla að gera átak í, á næstu vikum.
Annars er ég þess utan nokkuð sátt, soldið langþreytt. Langar til að liggja einfaldlega í leti og gera ekki neitt. En það er ekki alveg á næstunni.

þriðjudagur, mars 11, 2003

Ég hef ekki frá neinum sérstökum draumum að segja eins og er. En vel svaf ég ekki enn. Trúlega á ég eftir að læra á umhverfishljóðin í nýrri íbúð, ísskápurinn urrar og hvæsir. Ofnakerfið suðar, umferðin fyrir framan gluggann dynur í fjarska. Allt annað en lætin á Háaleitisbrautinni. Sem voru önnur, þar heyrði ég þegar útidyrnar voru opnaðar og skelltust aftur. Líka þegar einhver af 4 hæðum fyrir ofan mig notaði eldhúsvaskinn sinn og leyfði vatninu að renna. Tilvalið til að fá mann til að þurfa að fara á klósettið. Það hús er einstaklega hljóðbært. Lýsandi fyrir það er að ég heyrði vel hroturnar frá mömmu í gengum vegginn milli herbergja. Ég hélt að það yrði úr sögunni við það að flytja í kjallarann en það var ekki rétt því ég átti það stundum til að heyra í henni milli hæða. Í sjálfu sér ætti ég að sofa betur þarna en hjá Mömmu því ég heyrði lítið sem ekkert af einhverju utan við íbúðina. Ég held að þetta hús sé ekki eins hljóðbært og Háó.
Ég hef þá tilfinningu að mér eigi eftir að líða vel þarna, ég hef strax fundið fyrir því að þetta er heimili mitt.
Everythig is going my way.

mánudagur, mars 10, 2003

Jæja nú er ég flutt loksins. Ekki það að ég sé búin að koma mér fyrir langt því frá. Það er líka eitthvað af smádóti eftir hjá mömmu. Ég gisti á laug. fyrstu nóttina í nýja slotinu, því miður ekki sérlega vel. Ástæðan var sú að ekki náðist að flytja rúmið á laugardag svo ég svaf fyrst á vindsæng og var það ekki þæginlegt að vakna við hverja hreyfingu vegna þess að loftið færðist til undir manni. En svona fer hjátrúin með mann, laugardagur til lukku, maður skal gista fyrstu nóttina á laugardegi. Mér var svo sagt frá einu sem var alveg nýtt fyrir mér í sambandi við slíka hjátrú að maður ætti að telja rúðurnar í nýja húsnæðinu áður en maður færi að sofa. Ég þekkti það að maður ætti að reyna að muna það sem mann dreymdi fyrstu nóttina. Sem ég og gerði, mig dreymdi marga drauma, enda alltaf að ranka við mér, þ.a.l. meðvituð um draumana sem ég annars hefði ekki verið.
Nema hvað að einhvern tímann í byrjun náttar dreymdi mig Ingibjörgu systir og Ingólf mág minn, ekki að furða var að kveðja þau rétt áður en ég fór heim að sofa. Svo kom eitt og annað sem ég gleymdi alltaf jafnóðum.
Undir morgun var mig farið að dreyma í sjónvarpsþáttum. Þ.e. Charmed kom þarna mjög sterkt inn í. Sem sagt 3 systur , Nornir, að hluta til beint upp úr þáttunum, hluta til ég. Ekki nákvæmlega sömu persónur en að mestu leiti eins og í þáttunum. Weird!!
Ég veit ekki hvaðan þetta kom, hef lítið horft á Tv undanfarið og hef aldrei fylgst með þessum þætti bara kýkt öðru hvoru á hann.
Allavega var aðalþemað í þessum draumi það að allar 3 verða óléttar sömu nóttina eftir sama gæjann þessi góði/vondi. Einhverja hluta vegna eru þær á flótta, taka á flug. Geta ekki flogið í supermann stíl þ.e. lárétt heldur bara lóðrétt vegna bumbunnar. Þetta er allt sem ég man eftir úr þessum draumi. Ég vil ekki einu sinni reyna að finna einhverja merkingu í þessu.
Ég ætlaði að fara í ræktina með Sigrúnu Jóns kl.6 í morgun en ekki hringdi hún, þannig að það datt upp fyrir. Hún hafði andvökunótt og hætti þá við að fara í ræktina.

föstudagur, mars 07, 2003

Thank god its friday er fílingurinn í mér í dag, ég er mjög fegin að það er föstudagur. Á morgun er árshátíð í vinnuni en ég ætla ekki að nota það sem tilefni til að fara á fyllery. Ég ætla í matinn og fara svo þegar búið er að draga út happadrættisvinningana. 'i kvöld er ég með matarboð fyrir familíuna. Spagetti, salat og hvítlauksbrauð fyrir 13 manns.
Ég verð að fara að versla fyrst og koma sósunni í gang. Og svo verð ég að taka soldið til og færa hluti til sem eru ekki á réttum stað. Vaska upp o.s.frv.
Ég var ámynnt í gær fyrir að hafa ekki bloggað nóg undanfarið, sem er svo sem rétt. Ein helsta ástæðan var su að það var mikið að gera hjá mér. En samt sem áður það er í raun engin afsökun, ef þetta á að uppfylla sitt hlutverk sem þerapía.
Ég þarf að skrifa meir um námskeiðið og hvað ég hef uppúr því, einnig til að geta nýtt mér það betur.
Ég slutta þessu núna og fer að skrifa innkaupaseðil.Ég nenni ekki að gera neitt af viti lengur og ætla líka að fara fyrr heim í dag.
god helg.

fimmtudagur, mars 06, 2003

Ég hef nú eitthvað vanrækt það að skrifa hér, en nú skal aðeins úr því bætt.
Mér líður mjög vel eins og er og er að mestu leiti upptekin af því að innrétta íbúðina mína svo að ég geti flutt. Einnig er Ingibjörg systir á landinu og finnst mér það æði. Hún og mamma voru á cranio sakral námskeiði. Ingólfur kom með og er hann búinn að vera í cranío sakral meðferð.
Ég er mjög ánægð með námskeiðið mitt og held áfram að bæta sjálfa mig. Ég er komið með nytt mottó, ef þú vilt eittvhað gerðu það sjlalfur það gerist ekkert af sjálfu sér. Trú því mottói hef ég nú verið að kýkja á stefnumótasíður á netinu. Ekki slæmt fyrir svona vanvirka konu, sérstaklega í karlamálum.
En allt þetta span sem er búið að vera á mér undanfarið, er að sýna fram á neikvæðar hliðar á sér. Ég er svooooo þreytt. Ég hef ekki sest niður til að horfa á sjónvarpið í allavega 2 vikur. Ef ég hef séð e-ð í tv þá er það bara í 10-30 mín. Það er lítið fyrir sjónsvarpssjukling.
jæja ég verð að halda áfram að vinna.

mánudagur, febrúar 24, 2003

Helgin var frábær.
Helmingur hins 8 kvenna saumaklúbbsins Valkyrjurnar voru mættar í árlega húsmæðraorlofsferð okkar.
Ragga, Sirrý, Inga Maria og ég náðu að fara á meðan að Guðrún og Bryndís fluttu og Björk og Ásta þurftu að læra heima.
Við skemmtum okkur konunglega, drukkum, átum, spiluðum og fórum í pottinn. Það var engin uppákoma á við það sem gekk á í fyrra.

föstudagur, febrúar 21, 2003

Hvernig sumu fólki tekst að eyðileggja hjá manni á einfaldan hátt hið besta skap, er óþolandi.
Sumum tekst það með því einfaldlega að vera til og láta mann sjá sig. Það er maður í vinnuni minni sem ég þarf að vinna nokkuð mikið með sem ég á erfitt með að þola. Þegar hann kemur með tillögur eða eitthvað annað finnst mér hann gera lítið úr mér, á þann hátt að það líti út eins og að ég geti ekki valdið mínu starfi. Og mér finnst hann hafa minnst efni á slíku þar sem allt sem hann gerir rangt veldur tvíverknaði hjá mér og hjá öðrum. Allar styttri leiðirnar hans enda í því að aðrir eru að þrífa upp eftir hann drulluna hans.
Ég verð að losa mig við pirringin sem hann olli mér núna áður en ég fer heim.
Arrrrggggggggggggggggggg
ég er róleg og glöð.
Lífið er yndislegt, ég nýt þess af krafti þessa dagana.
Ég fékk íbúðina mína afhenta í síðustu viku, byrjaði strax að mála stofuna svo að ég gæti komið húsgögnum þangað inn sem ég þurfti að taka til mín á fimmtudag. Í gær náði ég svo í þessi húsgögn sem eru gömul og flott.
Þetta á allt eftir að smellpassa.
Ég er svo að fara í sumarbústaðaferð í kvöld, ég verð alla helgina í sumó með saumó.

mánudagur, febrúar 17, 2003

Nú er nokkur tími liðinn síðan ég skrifaði hér síðast, á morgun fæ ég loksins að skrifa undir kaupsamningin að fyrstu íbúð minni. Sjálfri mér sé lof, (guðleysingi eins og ég ætti nú ekki alltaf að lofa guð, en það er bara svo fast í málinu) ég er ósköp fegin að þetta sé nú allt að sigla í höfn. En það kemur sér samt illa að þetta var ekki komið fyrir síðustu helgi, því ég verð bara að gera allt í þessari viku. Ég er soldið í tímaskorti þessa vikuna og næstu helgi er ég upptekin í sumarbústað.
Júhú, ég verð bara að fara strax eftir vinnu á morgun að kaupa málningu og að byrja á að þrífa og spasla. Fá svo bræðurna til að mála á miðvdkv. og ég svo eftir kl. 10. Á fimmtud. verð ég svo að ná í húsgögnin og dótið til Ástu. Svo verð ég að vera tilbúin til ferðalaga strax á fimmtudkv. því við förum bara strax eftir vinnu á föstud. Svo í vikunni þar á eftir get ég svo flutt restina yfir smám saman.
Svo að ég kvarti nú svolítið og kveini, þá er þetta búið að vera ansi hreint leiðinlegur og erfiður dagur. Tölvuvesen og leiðindafólk sem er með hálfan heila að mínu mati.
Ég hef bara verið svo pirruð og örg í allann dag að það hálfa hefði verið nóg.
Ég ætla ekki að taka það skap með mér heim, ég á skilið frí frá leiðindum dagsins þegar ég er farin heim úr vinnuni.

fimmtudagur, febrúar 06, 2003

Álit annara á mér skiptir mig sérlega miklu máli. Það hefur alltaf verið þannig alltfrá fyrstu barnæsku. Útfrá þessu finnst mér mikið af sjálfsefa mínum koma.
Ég tók eftir því í gærkveldi að mér þykir mikið til þess koma þegar fólk sem varla þekkir mig virðist hafa álit á mér. Á námskeiðinu mínu í gærkvöldi var ákveðin hópavinna þar sem við sátum 6 saman í hóp. Hver hópur valdi sér foringja með því að allir benda samtímis á þann sem þeir kjósa, í mínum hóp var ég valin með miklum yfirburðum 4 atkv. af 6. Ég kaus mig náttúrulega ekki og ein önnur. Ég hef greinilega haft þau áhrif að það er litið á mig sem forystuefni. Mér finnst það mjög gott. Það ýtir soldið undir sjáfstraustið.

þriðjudagur, febrúar 04, 2003

Ég hef stundum notað þessa síðu til að losna við kergju og leiðindi af sálinni. Þó það geti verið ansi leiðinlegt lesefni. Það er bara svo gott fyrir sálarlífið að losa sig við þetta. Þannig getur það litið þannig út eins og ég sé eingöngu fúll á móti, en það er langt því frá. Þetta er bara therapía. Ég er fúl og leiðinleg í dag vegna vinnunar, stress og leiðindi. Alltaf að auka við mann verkefnin og kvartað þegar ekkert er afgreitt eins vel og óskað er eftir. Ég hef tekið þá ákvörðun að biðja um kauphækkun og óska eftir því að geta unnið yfirvinnu til að ná því sem ég á að gera. Annars gengur þetta ekki upp. Ég er 2 manna maki þegar greiðslan passar, ha ha.
Það sem fer hvað mest í taugarnar á mér er að það sé svo sjálfsagður hlutur að maður taki að sér fleiri verkefni. Mér findist það sjálfsagt að maður sé spurður álits en ekki bara látin vita eftir að glæpurinn hefur átt sér stað. Það er óvirðing við mann. Og þar að auki að setja þetta á mann á annasamasta tíma mánaðarins.
Þar af leiðandi er ég very pissed í vinnunni í dag, en ég hætti að vera pissed um leið og ég kemst héðan út. Ha ha ég læt þetta ekki á mig fá eftir vinnu.
það hjálpar að kvarta og kveina til að geta andað léttar.
Ég á svo skemmtilega tíma framundan hvort eð er með íbúðina og allt það.
Lucky me.

mánudagur, febrúar 03, 2003

Fyrir helgi var tilboði mínu í Fellsmúlann tekið. En hins vegar ´kom í ljós að greiðslumatið dugar ekki þ.e. það miðast við 90 % lán. Ég var ekki viss hvort ég vildi 90% lán á þessum tíma en miðaði við það í greiðslumatinu bara upp á sénsinn ef þess yrði þörf. Nú sit ég í súpunni, tilboð mitt gengur ekki út frá því. 'Eg verð að fara í bankann núna á eftír og reyna að redda þessu einhvernveginn.
Svo þegar greiðslumatinu hefur verið reddað, fer ég aftur til fasteignasalans og hann getur þá sótt um húsbréfin fyrir mig. Svo tekur það u.þ.b. 10 daga þar til hægt er að skrifa undir kaupsamningin. Þannig að ég verð í fyrsta lagi flutt inn eftir u.þ.b. 1/2 mánuð.
Ásta vinkona mín er að rýma íbúðina hennar ömmu sinnar þar sem að amma hennar mun aldrei komast út af sjúkrahúsinu framar. Hún gefur mér heilmikið af dótinu hennar ömmu sinnar. Auk þess sem ég geymi nokkur húsgögn fyrir hana í ófyrirséðan tíma. Þ.e. flott gamalt sófasett og borðstofuborð og stóla. Nú get ég bara ekki ímyndað mér hvernig ég á að koma hlutunum fyrir. Ég þarf soldið að pæla í því, í það minnsta verður íbúðin ekki lengur hálftóm.
Ég get bara ekki beðið, ég er í ýmsum pælingum hvað málningu og slíkt varðar.

fimmtudagur, janúar 30, 2003

Mikið er nú Ausinn sybbinn í dag, þrátt fyrir að hafa farið í rúmið á skikkanlegum tíma. Ég svaf ágætlega held ég, en samt langar mig heim í bólið á ný.
En nýjustu fréttir eru þær að það var hringt út af Fellsmúlanum í gær og það er s.s. komið samþykki fyrir sölu. Ég fór aftur að skoða íbúðina í gær og ætla að fara á fasteignasöluna á eftir. Ég tók, Hlyn, Lindu og Larissu með mér að kýkja á hana í gær. Þau höfðu ekkert út á hana að setja og er þar með allt komið á hreint.
Já Linda er komin aftur til landsins. Pinky !!
Námskeiðið mitt er virkilega að hafa áhrif, mér líður mjög vel. Ég hef mikla trú á þessu.

þriðjudagur, janúar 28, 2003

Já í gærkveldi fór ég með Larissu á Kaffi Viktor þar sem við sátum og kjöftuðum til kl. hálf eitt.
Ég drakk of mikið kaffi og svaf ílla af þeim orsökum. So what else is new
Húsnæðisleitin heldur áfram, í gær skoðaði ég Grænuhlíð. Í dag gerði ég svo tilboð í hana. Kannski ef til vill heldur lágt en það verður bara að hafa það. Annað hvort fæ ég gagntilboð eða ekki. Það eru fleiri íbúðir á markaðnum, ég bara held áfram að leita.
Hins vegar er ég orðin dáldið þreytt á þessu og vildi gjarnan fara að koma mér fyrir.



mánudagur, janúar 27, 2003

Þá er það komið á hreint, ég fæ ekki íbúðina í Fellsmúlanum.
Húsfélagið taldi sig geta selt íbúðina með meirihluta atkvæða en svo er ekki. Allir hlutaðeigandi verða að samþykkja söluna. Og þar sem einn íbúðareigandi í húsinu setur sig upp á móti sölunni þá er ekki hægt að selja. Sem sagt skák og mát.
Þetta blessaða fólk hefur ekki getað séð sér fært að svara tilboði mínu ennþá, það er í raun runnið út. Tíminn var settur á kl13 á laug. Hmmm, mér var sagt á laugardag að því miður hefði ekki náðst í alla í húsfélaginu og það væru ekki allir sáttir. Vegna tekjutengingar, hvernig svo sem á því stendur eða hvað það þýðir þá er ég orðin soldið pissed.
Ég breyti þessu tilboði ekki nema niður á við... ef að það er eitthvað frekara vesen á þeim þá gleymum við þessu alveg.

Ég er auðvitað bara hluti af massanum, þ.e. ég er alveg jafn forvitin og restin af þjóðinni og náði mér í aðgang að islendingabok.is , ég komst að því að nánast allir sem ég þekki eru skyldir mér á einhvern hátt. Flestir náttúrulega langt aftur í ættir, oftast var það í 6-9 lið. Einungis hjá einni manneskju kom fram "enginn skyldleiki fannst"
og það var hún Inga María úr saumaklúbbnum mínum. Ég er skyld Lindu í gegnum móðurætt hennar og föðurætt mína, Larissu í gegnum föðurætt hennar og móðurætt mína. Báðar í svona um 6-7 ættlið.
Maður er farin að taka undir það sem vinir mínir úti hafa alltaf sagt, íslendingar eru allir skyldir.

föstudagur, janúar 24, 2003

OK ég fékk móttilboð sem hljóðar upp á 6,55 mill, sömu skilmálar og greiðsludags. og ég var með í tilboðinu mínu. Bara hærra.
Nú er ég í alvöru að spekúlera í því hvernig ég geti borgað milljón sem ég ekki á á árinu. Ég get borgað útborgunina strax án vandkvæða, en er að pæla í restinni. Það er náttúrulega erfiðara að spara þegar maður er komin í eigið húsnæði. Ég neita hins vegar að taka 90% lán. Ég redda mér einhverju láni, hjá bankanum eða eittvhað.
Ég kýs líka að taka 25 ára lán í stað 40 ára láns. Því að þó að afborganirnar séu hærri, er til lengri tíma litið eignaaukningin hjá manni mun betri. Þ.e. maður eignast meira í íbúðinni. Og með eigin fjármögnun á 30% íbúðar, þá er þetta dæmi ætlað til að eignast sem mest í íbúðinni.
Ég þarf eflaust að skrimmta mikið allt þetta ár. En svo að því loknu er þetta pís of cake. En þrátt fyrir það ætla ég að fara út um páskana, það er must!!!! Ég þarf einhverja aukavinnu sem fyrst á kvöldin og um helgar.

fimmtudagur, janúar 23, 2003

Jæja ég var að gera tilboð í íbúð. Ég veit ekki hvort að það dugar eða hvað en í það minnsta eru 2 tílboð í gangi í einu. Íbúð þessi er í Fellsmúla 16, kjallari. Ég fæ að vita á morgun hvort að tilboðinu verður tekið. Ég get ekki annað en viðurkennt að ég er stressuð /spennt. Þó að ekki sé um draumaíbúð að ræða held ég að ég geti samt lifað fínu lífi þarna.
Einn helsti kostur íbúðarinnar er sá að hún er tóm, afhending væri við undirskrift og það er hægt að flytja inn strax eftir að það er búið að mála. Og það er það sem ég er hvað spenntust fyrir, að fá að flytja frá mömmu og setja upp mitt eigið heimili á ný.
Ég get ekki beðið, það er ekki það að ég geti ekki látið mér lynda við mömmu, heldur er það sjálfstæðið sem ósjálfrátt er af manni tekið um leið og maður stígur fæti inn í foreldrahús. Við því er ekkert að gera, verra væri það nú ef foreldrar gætu hrist svo auðveldlega af sér foreldrahlutverkinu um leið og börnin eru orðin fullorðin.
Um leið og þetta gengur upp er allt annað á uppleið........
Ég er bjartsýnin uppmáluð í dag.

þriðjudagur, janúar 21, 2003

Ég er að komast niður úr verkefnabunkanum. Stel smástund í bloggið.
Ég skoðaði íbúð í gær sem var hreint út sagt ekki mönnum bjóðandi. Mér finnst það ótrúlegt að það hafi fólk búið þarna fyrir stuttu. Það er nauðsynlegt að leggja út u.þ.b. 3 milljónir til að íbúðin verði íbúðarhæf í það minnsta. Það þarf að rífa allar klæðningar og veggi niður. Skipta um glugga og teikna hana bara upp á nýtt. Gæti verið skemmtilegt verkefni ef maður er með pening á lausu og þarf ekki að flytja inn fljótlega. Ég ætla ekki að búa hjá mömmu í ár í viðbót.
það var gaman að kýkja á þetta þó að ég hafi´nú ekki grætt neitt á því. Jú reyndar, það er sama hvað ég skoða héðan í frá það mun allt vera miklu fínna og flottara en þetta.
Hlynur bróðir varð náttúrulega að fíflast þegar við komum þarna. Það var einhver maður að skoða íbúðina um leið og við. Þegar við komum inn þá segir Hlynur við gæjann, "ég ætla að fá 5 grömm"
hann bregst hvumsa við og svarar "ha". Hlynur endurtekur "ég ætla að fá 5 grömm" og maðurinn er orðinn soldið ráðvilltur á svipinn. Hann spyr "5 grömm af hverju", "af afgana" svarar Hlynur. Og er manninum greinilega hætt að lítast á blikuna. Nú gat ég ekki látið þetta ganga svona áfram, og hnippi í Hlyn og segi við manninn "hann er nú bara að grínast".
Maðurinn er núna farinn að fatta djókið og spyr "nú var eitthvað svoleiðis selt hér?

mánudagur, janúar 20, 2003

Mikið er ég nú löt í dag. Ég svaf yfir mig í morgun og ég get ekki komið heilanum af stað, ég ætti að vera að fara á taugum yfir verkefnaflóðinu á skrifborðinu mínu en ég bara nenni ekki að gera neitt. Ég bara kem mér ekki af stað.
Ég var að skoða íbúð í Fellsmúla 16 á föstud. gæti verið nothæf. Pæli soldið í því.
Annars var sérlega ódýr íbúð að koma í sölu á Klapparstíg.... ég var nú búin að skoða íbúðina á móti fyrir u.þ.b. 1/2 ári.Þá hrökk ég til baka vegna nágrannans. Sem nú er látinn.
Við Hlynur bróðir förum í þessa íbúð eftir vinnu í dag, það er kannski íhugunarvert.
Ef fólki finnst þetta óhuggulegt, þá fær maður prest til að koma og blessa íbúðina til á róa draugahræddar taugar.

föstudagur, janúar 17, 2003

Ég er eitthvað svo ótrúlega stressuð núna, það er bara alveg að fara með mig. Reyndar hef ég sérlega mikið að gera í vinnunni núna. En það hefur allt of mikil áhrif á mig núna.
En núna verð ég að afkasta þessu öllu sem fyrst svo ég geti nælt mér í tíma til að stúdera fasteignamarkaðinn. Ég verð að finna tíma og orku til að skoða einhverja íbúð eftir vinnu í dag.
í kvöld fer ég svo vonandi eitthvað út á kaffihús eða eittvhað annað skemmtilegt.
Ég verð að taka mér nokkrar mínúntur núna til að kasta mæðinni og ná stressinu niður. Anda djúpt og skipuleggja verkefnin sem fyrirliggjandi eru.

Ég held ég þurfi að setjast niður og finna út nákvæmlega hvað ég vil fá út úr mínu lífi á næstunni. Ég verð að gera það til þess að geta fundið stefnu og sett mér markmið til að framkvæma það sem ég vil.
Sem sagt áður en ég fer á námskeiðið í næstu viku hef ég sett mér að finna út og setja það nákvæmlega niður hvað ég vil helst.
Síðan nýti ég mér námskeiðið til að finna leiðir að markinu.
Já dugleg er eitt af því sem ég ætla að vera, á næstunni Linda mín.

fimmtudagur, janúar 16, 2003

Ég byrja á Dale Carnegie námskeiði á næsta miðvikudag. Ég er bara mjög sátt við þá ákvörðun hjá mér. Ég fæ 10 % afslátt vegna þess að ég er í VR og svo fæ ég að námskeiði loknu 50% styrk frá VR. Þ.a.l. er þetta námskeið ekki lengur of dýrt.
Ég lít á þetta sem 1 skrefið í áttina að því að standa við áramótaheitið mitt.

miðvikudagur, janúar 15, 2003

Já það var meira að segja ansi gaman í gær. 'Eg fékk mér súpu og kaffi á Kaffi Nauthól þar sem var fullt hús, ekki laust sæti í húsinu. Það var ýmislegt rætt og reifað á ýmsum málum.
Heilsumál eru mér ofarlega í huga núna, ég er staðráðin í að létta mig. Ég held að þyngdin sé farin að hafa áhrif á öndunina hjá mér. Í það minnsta sagði mamma við mig í gær að hún hefði tekið eftir því að ég væri farin að anda svo þungt upp á síðkastið. Eins og að ég næði ekki andanum. Ég fór þá að veita þessu athygli og það er rétt. Ég verð að anda þungt stundum til að ná andanum.
Ég ath. hvort þetta breytist ekki strax við meiri hreifingu og að léttast. Ef ekki fer ég ´´i að athuga þetta. Kannski hangir þetta saman við kökkinn í hálsinum sem ekki vill hverfa.
Ég verð að hætta núna, klósettið kallar.

þriðjudagur, janúar 14, 2003

Uhum já, mér hefur verið vinsamlega bennt á að það sé leitun að jákvæðni í því sem ég skrifa hér á þessari síðu. Ég neita því ekki að ég á til að hallast á neikvæðu hliðina á þessari síðu. Að hluta til er það vegna þess að þetta er svo ágæt leið til að losa um fýluna og láta skapið ekki bitna á fólkinu í umhverfinu.
En þá bitnar það á þeim sem lesa, þ.e. þeirri sem les eiginlega.
Ég þarf líklega að endurskoða það hvernig ég nota þessa síðu.
Frábær skrif hjá þér Linda mín, "persónuleiki á við kaffikönnu" I scream.
Ég elska það þegar þú skrifar svona mikið.

Ég er sybbin, ég veit mig dreymdi eitthvað æði en gleymdi því þegar klukkan tók að hrella mig í morgun. Mikið hefði verið ljúft að lúlla lengur. Ég elska drauma.
Ég hef ekki tíma til að leggja mig þegar ég er búin að vinna, þá er líkl. best að hella í sig kaffinu og láta sig hafa það.
Eftir vinnu kl. 5 fer ég á Kaffi Nauthól að hitta fólkið sem ég var með í leiðsöguskólanum í fyrra. Kannski ég ætti að labba þangað, fá mér góðan göngutúr í fyrsta snjó vetrarins.
Það verður gaman, smá vottur af félagslífi.
Á morgun er svo kynningarfundur fyrir námskeið sem ég er að pæla í, Dale Carnegie & femin.is standa fyrir þessu.
Á förstudagskv. ætla ég svo að hitta hana Gunnu sem ég vann með á Expo, ég hef ekki hitt hana í marga mánuði.
Svo fer Larissa að koma, það verður gaman að sjá hana aftur.

föstudagur, janúar 10, 2003

Ég var að flýta mér hérna áðan og klikkaði á sign out í stað post & publish. Hvað skeður þá náttúrulega er allt komið í vaskinn. Í stuttu máli sagt
" It is not my day"
- túrverkir hrjá mig
- mig langar heim en ég verð að vinna (boring)
ég nenni ekki að skrifa allt aftur.

mánudagur, janúar 06, 2003

Mikið er ég geðill og pirruð í vinnuni í dag. Mér finnst sumir sem vinna hér ekki gera sitt gagn og tefja æginlega fyrir þegar maður þarf eitthvað að gera í sambandi við það fólk.
Annað er að allt þarf náttúrulega að fara úrskeiðis á annatíma. Fólk getur ekki einu sinni skrifað einfaldann reikning. Ég bölva og ragna inn í mér og er fegin að það eru bara 40 mín eftir af deginum því að ég þoli ekki meir í dag. Það sem ekki næst í dag verður bara að bíða þar til á morgun.

föstudagur, janúar 03, 2003

Ég er nokkuð ákveðin í að fara til útlanda um páskana og varð ansi spennt þegar ég sá að sumardagurinn fyrsti er svona nálægt páskum. Hmm 2 frídagar á viku tvær vikur í röð. Það gerir það að verkum að með einungis 6 daga fríi er maður komin 2 vikur í frí. Brilliant svo ekki sé meira sagt.
Ég ætla mér til Munchen og heilsa upp á gamlar slóðir. Nema hvað að ég kýkti á síðuna hjá þessu nýja lággjaldaflugfélagi, með flug upp á 14 þús. Og þeir voru líka með linka á síðunni í lággjaldaflugfélög úti. Og ég get fengið flug frá LON til MUC fyrir ca. 7000 ísl krónur. fram og til baka. Ég gæti jafnvel hugsað mér að stoppa smá í Edinborg á leiðinni heim og litið til Lindu. Gert þetta að alvöru ferðalagi.
Bara þessar smá pælingar gera mig svo spennta, ég get ekki beðið.´
Út vil Ek.

fimmtudagur, janúar 02, 2003

Jæja hvað getur maður sagt núna annað en GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!
Áramótin voru bara nokkuð róleg og ágæt hjá mér. Það var matur hjá Mömmu, við vorum bara þrjú. Svo var farið á flakk til bræðranna og horft á flugeldana ofan frá Grafarholtinu. Það var hreint út sagt magnificent view.
Áramótaheitið í ár var frekar almennt, en skiptir samt mjög miklu máli. Ég hét því að láta drauma mína rætast, það er sýna næginlegt sjálfstraust til að framkvæma allt það sem ég hef verið of hrædd við að gera.