Ég er nokkuð ákveðin í að fara til útlanda um páskana og varð ansi spennt þegar ég sá að sumardagurinn fyrsti er svona nálægt páskum. Hmm 2 frídagar á viku tvær vikur í röð. Það gerir það að verkum að með einungis 6 daga fríi er maður komin 2 vikur í frí. Brilliant svo ekki sé meira sagt.
Ég ætla mér til Munchen og heilsa upp á gamlar slóðir. Nema hvað að ég kýkti á síðuna hjá þessu nýja lággjaldaflugfélagi, með flug upp á 14 þús. Og þeir voru líka með linka á síðunni í lággjaldaflugfélög úti. Og ég get fengið flug frá LON til MUC fyrir ca. 7000 ísl krónur. fram og til baka. Ég gæti jafnvel hugsað mér að stoppa smá í Edinborg á leiðinni heim og litið til Lindu. Gert þetta að alvöru ferðalagi.
Bara þessar smá pælingar gera mig svo spennta, ég get ekki beðið.´
Út vil Ek.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli