mánudagur, febrúar 03, 2003

Fyrir helgi var tilboði mínu í Fellsmúlann tekið. En hins vegar ´kom í ljós að greiðslumatið dugar ekki þ.e. það miðast við 90 % lán. Ég var ekki viss hvort ég vildi 90% lán á þessum tíma en miðaði við það í greiðslumatinu bara upp á sénsinn ef þess yrði þörf. Nú sit ég í súpunni, tilboð mitt gengur ekki út frá því. 'Eg verð að fara í bankann núna á eftír og reyna að redda þessu einhvernveginn.
Svo þegar greiðslumatinu hefur verið reddað, fer ég aftur til fasteignasalans og hann getur þá sótt um húsbréfin fyrir mig. Svo tekur það u.þ.b. 10 daga þar til hægt er að skrifa undir kaupsamningin. Þannig að ég verð í fyrsta lagi flutt inn eftir u.þ.b. 1/2 mánuð.
Ásta vinkona mín er að rýma íbúðina hennar ömmu sinnar þar sem að amma hennar mun aldrei komast út af sjúkrahúsinu framar. Hún gefur mér heilmikið af dótinu hennar ömmu sinnar. Auk þess sem ég geymi nokkur húsgögn fyrir hana í ófyrirséðan tíma. Þ.e. flott gamalt sófasett og borðstofuborð og stóla. Nú get ég bara ekki ímyndað mér hvernig ég á að koma hlutunum fyrir. Ég þarf soldið að pæla í því, í það minnsta verður íbúðin ekki lengur hálftóm.
Ég get bara ekki beðið, ég er í ýmsum pælingum hvað málningu og slíkt varðar.

Engin ummæli: