miðvikudagur, nóvember 19, 2003

Argg, maður getur stundum verið úr hófi fram klaufalegur.
Ákvað í gær að taka af mér hárin á efri vörinni með vaxi.
Mæti í vinnuna í morgun eins og ég hafi verið á svaka sjens og var spurð að því hvað ég hafi verið að gera því ég líti út eins og ég sé skeggrifinn.
Já einmitt, ég er það í annari merkingu en ætlaðri. Ég var sem sagt að rífa af mér skeggið, ég hefði líklega átt að láta þetta vera þarna áfram. Enda ekki sjáanlegt nema við ákv. birtuskilyrði. Mér fannst samt keyra um þverbak þegar mamma sá þetta á mér, þá hlyti þetta að vera orðið meira áberandi því hún er hálf sjónlaus eiginlega.
Bólgan hlytur að hjaðna þegar líður á daginn.

Engin ummæli: