fimmtudagur, desember 12, 2002

Æ æ aumingja ég
Ég er svo syfjuð að ég get varla haldið haus. Ég var í kvöldheimsókn í gær og drakk kaffi frameftir öllu og gat þar af leiðandi ekki sofið næginlega vel. Auk þess hafði ég margt að hugsa um. Ég skoðaði nefnilega íbúðina sem ég minntist á hér síðast í hádeginu í gær og gerði tilboð í hana samdægurs. Ég vona að það geti eitthvað orðið úr þessu. Ég fæ að vita það fyrir kl. 16:00. Ef ég væri ekki svona þreytt þá væri ég svakalega spennt.
kv.
Auður

föstudagur, desember 06, 2002

Fyrir viku var jólaföndur með Saumó og það var mjög gaman, þó gat ég ekki föndrað það sem ég vildi. Skortur á hráefni sá til þess. En þetta lítur nú samt þokkalega út hjá mér.
Í dag fór ég í beinþéttimælingu sem boðið var uppá hér í vinnuni. Það skal þó taka fram að ég er of ung til að þurfa á slíkri mælingu að halda. En sumir hafa tendensana augljósa svona snemma. Amma mín var með beinþynningu og fékk kryppu í ellinni. Ég vil ekki fara þanning. Tendensinn virðist ekki vera til staðar hjá mér því þéttari bein fyrirfinnast varla. Langt yfir meðallagi míns aldurshóps sem og yfir meðallagi tvítugra stúlkna. Það er þá kannski ekki að furða að ég skyldi aldrei hafa beinbrotnað við nokkurt af þeim slysum sem ég hef lent í. Svo sem eins og slysinu í matarliftunni og fleira sem hefði getað farið verr.
Og ekki að furða að það sé þungt í mér pundið ... ha ha nú get ég alltaf sagt að hluti þyngdarinnar eru þéttu beinin mín.hi hi
Og í tilefni dagsins það er föstudagur la lal lalalalalalalalla. ;o)
Ég skoðaði íbúð í vikunni sem mér líst bara nokkuð vel á og gæti vel hugsað mér að gera tilboð í. En hins vegar er önnur íbúð í sama húsi sem gæti hentað betur. Þ.e.a.s. Þar eru svalir, litlar en þó svalir. Auk þess sem sú íbúð er laus strax, ódýrari og líklega hægt að ná verðinu niður. Hins vegar hef ég ekki fengið að skoða hana ennþá. Fari það í bölvað, ég vil vita hvort ég eigi að hugsa um þetta eitthvað frekar.

mánudagur, nóvember 25, 2002

lovely nú stendur jólaföndrið fyrir dyrum.
vantar bara jólalegra veður svo maður fatti hvað tímanum líður. Ég er ekki að nálgast jólafílinginn ennþá.

föstudagur, nóvember 22, 2002

Andsk. djöv.#"*#$%&
Ég loggaði mig út án þess að birta það sem ég var búin að skrifa, (the sound of gritting teeth).
Bætir aðeins á pirringin sem ég var að lýsa en nenni ekki að skrifa aftur.
Ég gleymdi að taka gemsann með mér úr vinnunni um daginn og ég saknaði hans ekki fyrr en 6 tímum seinna. How sad is that, maður er svo vanur því að það hringi aldrei neinn í mann.

föstudagur, nóvember 15, 2002

Skapið er vont í dag.
Tilfinningalífið er bland af kvíða, pirringi, stressi og eftirvæntingu. Mig langar ekki að vera í vinnunni, ég nenni ekki að vera hér.
Mig langar til að öskra bara svona til að fá einhverja útrás.
En þess í stað skrifa ég bara nokkrar línur og líður bara strax mikið betur.

fimmtudagur, nóvember 14, 2002

"I'm on the top of the world looking down on creation", la la la
Eins og einhver sem ég þekki myndi orða það, þá er ég bara skellihlæjandi.
Mér líður bara skratti vel þó að ég sé alltof upptekin í vinnunni af því að vinna, af því að ég sinni sjálfri mér inni á milli. Eins og að skrifa hér. Annað er þessi líka fíni diskur sem ég fékk í afmælisgjöf, góð blanda. Fínt að hlusta á hann í vinnuni með öðru eyranu- símann í hinu.
Ég skrifaði ansi langt og gott bréf til allra þýsku vinanna áðan og vonast til að fá viðbrögð við því einhvern daginn- langt síðan sumir heyrðu í mér. En það var ansi hreinsandi að skrifa þetta bréf.
En nú verð ég að drífa mig áfram í vinnunni.

miðvikudagur, nóvember 13, 2002

Ég var að taka þá ákvörðun að sneiða alfarið hjá bandarískum og ísraelskum vörum. BOYKOTT eins og það heitir í útlöndum.
Það mun þýða smá breytingu á lífsvenjum. Fyrst er það Kókið, Bíómyndirnar, og fl. Macdónalds var hvort eð er ekki á matseðlinum.
Bara Pizza frá íslenskum framleiðendum, ekki US keðjur.
En ég held að það borgi sig fyrir mig persónulega og sannfæringu mína.
Þó lítið sé, er ég þá ekki að styðja fjárhag landa sem standa að ómögulegri pólitískri stefnu gangvart öðrum þjóðum.

þriðjudagur, nóvember 12, 2002

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag,
Hún á afmæli hún Auður, hún á afmæli í dag.
Ég óska sjálfri mér innilega til hamingju með afmælið. Núna er ég loks 29c eða "dirty too".

Af tilefni dagsins kýkti ég á stjörnuspá dagsins á Mogganum, ég geri mikið af því að kýkja á spárnar á afmælinu
þar segir:
Sporðdreki 23. október - 21. nóvember
"Það er rangt að halda um of í liðinn tíma. Það er nauðsynlegt að fá útrás fyrir tilfinningarnar og gott ráð að hrópa þær frá sér, þar sem aðstæður leyfa."

Samkv. Mogganum einkennir eftirfarandi sporðdreka:
Einkenni:
Lykilorð: Tilfinningadýpt
Pláneta: Plútó
Höfuðskepna: Vatn
Litur: Dökkrauður
Málmur: Járn
Steinar: Granat, ópall, túrmalín
Líkamshluti: Kynfæri
Frægir sporðdrekar: Þorsteinn Pálsson, Charles Brosnan, John Cleese, Kevin Kline, Valdís Gunnarsdóttir, Flosi Ólafsson, Björk, Danny Devito, Goldie Hawn og Demi Moore.


Sporðdrekar eru oftast grannir, með hvöss og djúp augu og þungar augabrýr. Þeir eru yfirleitt afar kynþokkafullir og klæða sig líka þannig, gjarnan í flegnar blússur eða svört leðurföt. Sporðdreki er vatnsmerki og tengist djúpum tilfinningum, yfirleitt þeim sem snerta kynlíf og sjálfsbjargarhvöt. Það er oft sagt, að Sporðdrekinn sé misskildasta merki dýrahringsins, og flestum þykir fólk fætt í því merki leyndardómsfullt og spennandi. Undir heilsteyptu ytra borði Sporðdrekans leynist oft gríðarleg tilfinningaólga, afbrýðisemi og ástríða, og fólk í þessu merki reynir af fremsta megni að skapa sér tilfinningalegt öryggi í heimi sem því finnst fjandsamlegur. Sporðdrekar hafa mjög næma eðlisávísun og fæstir geta farið á bak við þá, og þeir hafa oftast mikinn áhuga á yfirskilvitlegum efnum.Þeir eru hefnigjarnir en einbeittir og þolgóðir og gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Sporðdrekar væru framúrskarandi byltingarmenn, einkum af öfgakenndara taginu, en þeir kasta sér reyndar af ástríðu út í hverja þá vinnu sem vekur áhuga þeirra og kitlar ímyndunaraflið. Í íþróttum velja þeir sér iðulega eitthvað sem hætta fylgir (eða gæti fylgt), t.d. skylmingar, karate og teygjuhopp, en þeir hafa líka yndi af dansi og tónlist. Til að öðlast lífshamingju, þarf Sporðdrekinn að reyna að sigrast á innri ótta sínum og sálarkvölum, sem þeir eiga erfiðara með að leiða hjá sér en aðrir.
Ég vek sérstaka athygli á síðustu setningunni........


Sjáum svo til hvort ég grafi eitthvað annað upp í tilefni dagsins.

mánudagur, nóvember 11, 2002

Þessi helgi fór eiginlega bókstaflega eingöngu í vinnu. Ég var mest alla helgina að mála hjá Ella bróður mínum. Afrakstur erfiðisins fyrir mig eru harðsperrur um allann kropp. Fínt, maður finnur að maður gerði eitthvað af viti.
Ég vona bara að ég hafi gert þeim eitthvað gagn.
'Eg fór í smá innkaupaleiðangur á laugardaginn,

þriðjudagur, nóvember 05, 2002

Ég er ásamt ýmsum öðrum í umhverfi mínu í ýmsum pælingum varðandi sjálf mitt og líf. Um það hvað maður vill, hvar maður stendur í lífinu og svo framvegis.
Á þýsku er til mjög flott orð fyrir þetta "selbstverwirklichung" sem í raun segir að maður sé að gera sjálfan sig virkan. Mér finnst þetta orð að mörgu leiti segja meir en "self fullfillment" eða ... nú man ég ekki íslenskt orð fyrir þetta.
Ég er á þeim stað í lífinu að ég er að rembast við að breyta einum hlut í fari mínu sem stendur sjálfri mér hvað mest í veginum á öllum sviðum.
Það er það að ég er oftast nær ekki gerandi heldur bíð ég og læt hlutina gerast. Þar með hef ég ekki lengur valið, hvað þá valdið í eigin lífi.
Sem sagt héðan í frá mun ég reyna að stjórna lífi mínu sterkar.
Action instead of reaction "

mánudagur, nóvember 04, 2002

Eftirfarandi tillögur að titlum fékk ég frá henni Lindu.

It was such a lovely day I thought it a pity to get up.

"Life is wasted on the living."

"In three words I can sum up everything I've learned about life: it goes on."

"The distance between insanity and genius is measured only by success."

"Insanity -- a perfectly rational adjustment to an insane world."

"Insanity: doing the same thing over and over again and expecting different results."

"Insane people are always sure that they are fine. It is only the sane people who are willing to admit that they are crazy."

"We do not have to visit a madhouse to find disordered minds; our planet is the mental institution of the universe."


"Genius is one percent inspiration and ninety-nine percent perspiration."

I may not have gone where I intended to go, but I think I have ended up where I intended to be.

In America, fundamentalist Christians believe the world was created 6,000 years ago - in England, people drink in bars that are older than that.

I am the master of the clit.


Ég held ég sleppi því að reyna að skrifa eitthvað meira í augnarblikinu. Ég ætti frekar að sinna vinnunni, nóg að gera. Ég er líka ótrúlega pirruð á öllu í dag. Gæti verið einhvers konar fyrirt... spenna. (Ekki segja neinum að ég viðurkenni að ég fái þetta) Ég get engann veginn þolað það, þegar maður fær það sem blauta tusku í andlitið ef maður er eitthvað pirruð, leiðinleg, reið og alltaf með réttu, að maður hljóti að vera með ft.spennu. Karlmenn geta verið svo ógeðslega ósvífnir að nota þetta á mann.
Eins og að kona sé ekki mannleg vera með allann tilfinningaskalann, þar með talið reiði, bara af því að hún fer á túr. Ég svaraði þessari spurningu " ertu á túr" þegar ég var reið einhverntímann á þá leið að ég hefði þau einföldu mannréttindi að verða reið eins og hver annar.




föstudagur, nóvember 01, 2002

Ég ætla að prufa nokkra titla fyrir þessa síðu.
Þið eruð velkomin til að segja ykkar skoðun á þeim.
"No risk, no fun" nei varla !!
"Better safe than sorry" enn verra
"Ekki er sopinn verri þó í Ausuna sé kominn." þetta er nú skárra hjá mér en samt ekki það sem ég vil.
"Elvis is dead, I met him in hell" ég veit ekki
ég verð að hugsa mig betur um, hmmm!!!

Ekki er ég neitt sérlega dugleg að skrifa á þessari síðu. En betra er sjaldan en aldrei.
Ég er að fara í sumarbústað í kvöld yfir helgina. Þ.e.a.s. allavega fram á laugardag, ég get kannski ekki verið lengur. Það fer eftir því hvort ég fæ einhvern til að koma á laugardag og vera með mér fram á sunnudag. Saumó er með mér á föstudag og fram á laug. L&L komast kannski, fer eftir ýmsu. Ég ætlaði að skipuleggja mig með tilliti til matarinnkaupa og hverju ég ætti að pakka niður. En ég hef ekki getað það enn.
Vonandi þarf ég ekki að fara á laugardaginn aftur í bæinn. We will see.

föstudagur, október 25, 2002

Mig vantar eitthvað mottó sem titil fyrir þessa síðu. Eitthvað lýsandi og hnittið. Mér finnst titillinn hennar Lindu vinkonu vera hrein snilld, "Things are getting worse, please send chocolate!".
Stundum leiðist mér vinnan mín svo mikið að ég nenni ekki að gera hlutina, þá safnast verkefnin upp. Ég verð bara að fara og ganga á milli manna þar til ég finn og fæ eitthvað skemmtilegt. Það eru forréttindi í okkar heimi að fá að vinna við skemmtilega og gefandi vinnu sem er þokkalega vel launuð. Mig dreymir um slíkt. Því ekki að vinna bara við það sem manni finnst gaman, þar sem maður eyðir samtals meiri tíma í vinnunni en með vinum og vandamönnum.

fimmtudagur, október 24, 2002

Ég þoli ekki hvernig mér líður þegar ég hef ekki sofið nógu vel nóttina áður. Allavega er ég þrælsyfjuð í dag og ég lagði mig í 10 mín í hádeginu og var það einstaklega ljúft.
En það var samt engin ástæða fyrir því að ég svaf ílla, fór í rúmið á eðlilegum tíma. Hitastigið í herberginu akkúrat rétt, enginn hávaði í nótt sem ég hrökk upp við. Engar ógnvekjandi hugsanir rétt fyrir svefninn, engin kvíðaköst, verkir eða óþægindi. Og ég spyr mig af hverju ég sofi ekki vel, eins og það er nú dýrðlegt.

Ég var bara með skemmtilegar hugsanir fyrir svefninn um það hvað ég væri nú forvitin. Forvitnin er að drepa mig. Ég fékk símtal í gemsann í gær frá Þýskalandi. Það var ein af þessum óvarthringingum úr jakkavasanum. Þ.e. manneskan gerði sér ekki grein fyrir að hann væri að hringja í mig og talaði ekki við mig. Seinna um kvöldið stóðst ég ekki mátið og hringdi í þetta númer, kynnti mig og spurði hver væri þarna, hann fattaði að ég væri á íslandi og sagði eitthvað um að hann hefði fengið númerið mitt frá einhverjum heyrðist mér. Sambandið var nefnilega mjög slæmt og slitnaði áður en ég komst að því hvað væri að gerast.

Hmmm, vandamálið er það er ekki hægt að leita í þýsku símaskránni á netinu eftir númerum. Það væri ekki löglegt samkvæmt persónuverndarlögum.
Svo sagði ég Evu vinkonu minni í Munchen frá þessu og hún er líka forvitin og lét hringja í þetta númer en viðkomandi aðili talaði ógreinilega og því skildist nafnið ekki.
Svo sendi ég SMS til að komast að því hver þetta er en fékk ekkert svar.

Það kom fyrir fyrr á árinu að ég fékk torkennilegt númer í símann, hins vegar fann ég fljótt út að það var fyrirtæki í New York og þetta var bara slysni að það var hringt í mig.

Ætlar þessi dagur aldrei að enda. ..........

föstudagur, október 18, 2002

Ég var að koma frá heimilislækninum þar sem ég fékk niðurstöður rannsókna. Það eina sem var athugavert í niðurstöðunum var að ég er með of hátt kólesteról. So what else is new. Skjaldkirtillinn er í lagi, af hverju er ég þá alltaf með kökk í hálsinum?? Damn.... Það var heldur ekkert að sjá á röntgenmyndinni af öxlinni. Sem sagt ibuprofen við öxlinni í mánuð og koma aftur.
Kólesterólið er samt ekki svo hátt að ég þurfi lyf, það er bara eins og það er búið að vera undanfarin 4 ár. Aldrei nein breyting!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ok ekkert nýtt hér, ég er nokkuð heilbrigð, bara nokkuð geggjuð ......

fimmtudagur, október 17, 2002

Bjáni var ég eyðilagði síðuna sem ég var búin að skrifa og nú nenni ég ekki að skrifa hana aftur.

miðvikudagur, október 16, 2002

Ég var hjá eyrnalækni í dag til að láta setja bót á gatið á hljóðhymnunni á hægra eyranu. Gatið er svo lítið að læknirinn gat ómögulega fundið það. Fyrst setti hann heilmikið af deyfingakrem í eyrað lét það virka í ca. 30 mín. áður en hann krukkaði í eyrað. Ég er hrædd um að deyfingin hafi ekki verið farin að virka almennilega þegar hann var að gera þetta. Því þetta var vont. Klukkutíma eftir læknisheimsóknina náði deyfingin loks hámarki sínu, hálf tungan á mér er dofin. Þannig að deyfingin hefur komist í gengum gatið ofan í kok, ég vona að þetta ... gat sé hér eftir almennilega gróið. Ég er búin að fá nóg af þessu helv. veseni.
Ég hafði hugsað mér að rausa og rasa út um fordóma og rasisma.En eitthvað er að síðunni svo ég veit ekki hvort þetta fari á síðuna hort eð er svo að það borgar sig ekki að skrifa mikið ef það skildi allt tapast. En satt að segja er það meðal 2 hita efna sem ég kemst í algjöran ham. Ég get leitt fram hjá mér mörg deiluefni sem ég hef skoðun á en hef kannski ekki orku eða löngun til að rífast um. En tvennt er það í heimi hér sem ég get ekki leitt hjá mér og það eru fordómar og femínismi. Þá koma eldræðurnar. Þessi tvö efni má kannski sameina undir heitinu "jafnrétti fyrir alla".

mánudagur, október 14, 2002

Ég náði mér snögglega af kvefinu, var frá vinnu í 1 dag. Ég er nú ekki sérlega hress í dag þó að ekki sé það vegna kvefpestarinnar. Ég fór í ræktina í gær og er með harðsperrur af þeim völdum. Annað sem er að pirra mig í dag eru túrverkir og öxlin á mér. Það er ekki nóg til að fara heim veik. Þessi axlarverkur sem ég hef verið með í meir en 1/2 ár er stöðugt að fara versnandi. Ég fór til læknis í síðustu viku og hann sendi mig bara í alsherjar rannsókn, blóðprufu, þvagprufu og röntgen. Á föstudaginn kemst ég svo að því hvort eitthvað hafi fundist.
Ég er svo líka að fara til húðlæknis og eyrnalæknis í vikunni, ég læt gera við alla litlu gallana mína.


fimmtudagur, október 10, 2002

Nú held ég að ég sé að verða lasin, nebbinn stíblaður, beinverkir að byrja. Tilfiningin er sú að ég verði veik næstu daga. En engin flensa takk, bara smá seasonal kvef.
Ég hnerra gífurlega, það er svoo gott að hnerra. Ég öfunda systir mína sem hnerrarr yfirleitt 7 sinnum í röð, eins og afi okkar gerði. Nautnaseggir.
Ég er svo heppin að hafa fengið nokkrar ansi fínar myndir að láni frá Arnari frænda mínum í gær. Nú get ég legið í sófanum og horft á vídeo á meðan ég læknast af kvefinu.

Ég fór niður í bæ í dag vegna greiðslumatsins. Á Skólavörðustígnum rakst ég á nokkra Skota í Skotapilsum og Goretexúlpum í rigningasuddanum. Ég hugsaði bókstaflega, their balls must be freezing. Mér fannst þessi sýn lífga verulega upp á borgina sem og daginn minn. Linda queen of Schotts, er örugglega sammála mér. Gaman að fá skotana í heimsókn. Betra verður það þegar okkar menn eiga eftir að taka þá í rassgatið, (Ég er ekki mikil fótboltamanneskja, en mér fannst alltaf leiðinlegt að sjá Berti Vogts í sjónvarpinu í þýskalandi) Og þar sem þjálfari skotanna er þýskur taka þýskir vinir mínir kannski einu sinni eftir því að íslenska liðið standi sig í einhverju, núna á þessum leik. Fyrst færeyjingar náðu að standa sig gegn skotum, getur okkar lið það líka.
Meira verður ekki skrifað um fótbolta hér.

mánudagur, október 07, 2002

Ég er alveg eftir mig eftir helgina. Ég er með strengi í hnakkanum og bakinu eftir að hafa dansað svona mikið.
Ég held ég hafi ekki skemmt mér eins vel og á laugardaginn var í mörg ár. Ég var í svo fantagóðu skapi að ekkert hefði getað eyðilagt skemmtunina fyrir mér. Vondur matur, leiðinlegt viðmót, skemmtilegt fólk svo þreytt að það fer snemma. Ekkert gat breytt því að ég var í stuði.
Auk þess að fá að heyra að ég hafi breyst hvað mest af öllum á jákvæðan hátt... þ.e. ekki útlit heldur persóna. Opnari og bara frábærari ekki satt. Að heyra slíkt gerði persónu minni mjög gott, sjálfstyrking. Að eignast augljósann aðdáanda var mjög gott fyrir egóið.

mánudagur, september 30, 2002

Morgunmatur:
200 gr.bananar
Kaffitími:
2 Kaffibollar (pínulítil sneið af brauðtertu)
Hádegismatur:
1.skammtur Nupó létt
Seinni kaffitími
100 gr. banani.
Svo verður léttur kvöldmatur (hot curry m. smá kjúklingabringu og miklu grænmeti afgangur frá í gær) og ekkert snarlerý, maður verður að losa sig við sukkið um helgina. Vera líka tilbúin fyrir sukkið næstu helgi. Svo verður synt 1000 m. í þetta sinn. Við verðum að bæta það upp að við fórum ekkert í sund í síðustu viku. Ég verð að fara að standa við öll loforðin sem ég er búin að gefa sjálfri mér. Skítt með önnur loforð, fyrst verður maður að efna þau sem maður er búin að gera við sjálfan sig.
Fyrst að maður er í þessum heilsu hugleiðingum, þá verður maður að taka þetta alverlega. Sérstaklega kólesterólmagnið. Þessi blessuðu gen sem gera mig svona frábæra eins og ég er gera mig líka jafn gallaða og ég er ha ha. Svo er alltaf hægt að deila um hlutfall gena, umhverfis og uppeldisþátta í uppbyggingu manneskjunnar. Ekki meir um það hér og nú.
Núna er að nota það sem umhverfið býður upp á til að laga þá galla sem eru meðfæddir, holla fæðu og hreyfingu. Læknar þegar allt annað bregst.
Hvað finnst þér Linda er ég farin að skrifa í alvöru??
sajonara

sunnudagur, september 29, 2002

Það er aldeilis djammið á mér um þessa helgi. Ég er ekki lengur vön þessu. Ég fór út bæði föstudags og laugardagskvöld. Ég fór með mágkonu minni á tónleika sem haldnir voru á Broadway á föstudagskvöldið. Ef henni hefðu ekki boðist boðsmiðar hefðum við aldrei farið. Þetta var ekki okkar smekkur, þessi svokallaði Frank Sinatra íslands er heldur óskemmtilegur samkvæmt okkar skoðun. En fyrst okkur var boðið og svo voru þarna einhverjar konur sem hún vildi gjarnan hitta aftur. Það vara bara nokkuð skemmtilegt að sitja og fá sér nokkra öllara og kjafta. Við sýndum skemmtiatriðunum lítinn áhuga. Að lokum held ég að ég hafi fengið mér einum bjór of mikið. Í gær hringði svo í mig stelpa sem ég þekki úr leiðsöguskólanum og spurði hvort ég væri ekki til í að koma á opnunarkvöld á nýjum bar. Ég hafði ekkert annað að gera svo ég skellti mér. Það var verið að opna stað sem heitir Barinn í húsakynnum Vegas. Fólkið sem rekur þennann stað var með Rósenberg á sínum tíma. Ég fór aldrei þangað og var ekkert kunnug þeirri stemmningu. Þarna var samankomið merkileg blanda fólks, rokkarar, mótórhjólatöffarar úr einhverjum mótorhjólasamtökum og jakkafatagæjar inn á milli. Fyrst var eingöngu spilað heavy metal og álíka tónlist. Svo gerðist það aðeins poppaðra þegar hljómsveitin Ber byrjaði að spila. Ég náði aldrei álkóhól levelinu sem stelpurnar voru á sem ég var með svo ég fór snemma heim og gerði enga skandala.
Ég er að spara þá fyrir næstu helgi he he. Nei ég verð mér ekki til skammar á reunioninu. Það verður bara gaman. So nú er það ákveðið og hana nú.

fimmtudagur, september 26, 2002

Ég fór í bíó í gær. Það er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi, mig langaði bara að skrifa nokkrar línur um þessa mynd. " The Guru" frá framleiðendum...... Það er fyrirboði um að myndin sjálf er ekki góð ef hún er kynnt sem: "frá sömu framleiðendum og gerðu....." Að mínu viti reynir minnst á listræna hæfileika framleiðenda kvikmynda en nánast alla aðra sem koma nálægt gerð kvikmynda. Framleiðendur eru "buissiness" menn sem láta hlutina gerast, fjárfesta og stjórna hlutunum. Það er ekkert slæmt við það í sjalfu sér en það segir minna um útkomu myndar hverjir framleiða hana en hver leikstjórinn, handritshöfundur, kvikmyndatökumaður, klippari eða jafnvel leikarar eru.
Ég skemmti mér á meðan á sýningunni stóð, ég neita því ekki. Ég hló og brosti en samt fannst mér myndin ekki góð. Hún var skemmtilegri fyrir hlé en eftir, það dró ansi mikið úr henni seinni partinn.
Stjarna myndarinnar er karlleikarinn, ég tók ekki eftir nafni hans, verð ég að viðurkenna. Það er að hluta til vegna þess að hans hlutverk var einna skást skrifað. Það var eina persónan sem var fullsköpuð. Aðrar persónur voru svo yfirborðskenndar og ókláraðar að það var eins og verið væri að líta aðeins inn í aðrar sögur í leiðinni. Í þessari mynd er mikið leikið sér að klisjum. Það er vandmeðfarið að gera það svo vel sé. Svo fór ekki hér, ég ætla ekki að útlista neitt nánar um söguþráðin eða frammistöðu einstakra leikara mér finnst það eiginlega ekki vera þess virði. Ég segi þessa mynd vera skaplega skemmtun, no more, no less. Ég er fegin að ég borgaði ekki fyrir hana, bíðið eftir að hún komi í sjónvarpinu.

þriðjudagur, ágúst 27, 2002

Góðann daginn
Auður heiti ég og er þetta fyrsta bloggið mitt. Ég er að herma eftir Lindu vinkonu minni í Edinborg. Hún er að skrifa lokaritgerð.
Mein name ist Auður und dies ist mein erstes Blogg. Ich habe das einer Freundin Linda nachgemacht, sie wohnt in Edinburg und schreibt gerade ihre Abschlussarbeit.
Ég á líklegast eftir að skrifa hér ýmislegt á þýsku þegar mér dettur það í hug.
Én nú verð ég að vinna
bless á meðan.
kv.
Auður