Batnandi fólki er best að lifa er oft sagt og það er eitthvað sem ég hef oft tekið mér fyrir hendur án þess þó að standa almennilega við það sem ég ákvað að bæta.
Nú vil ég verða skipulegri og vera ein af þeim sem tekur fram fötin fyrir morgundaginn og hefur allt tilbúið þegar farið er á fætur. Það getur hjálpað þegar maður á erfitt með að fara á fætur tímanlega. Og er alltaf í panik á hverjum morgni við að finna eitthvað til að vera í.
Ég kom videotækinu loks í gang, ég var hingað til ekki búin að nenna að leita að rásinni. Undarleg leti það. Nema hvað fór út í leigu og splæsti á mig Lylja 4-ever og Angelas Ashes sem fríspólu. Ég grenjaði yfir Lylju, eins og við var að búast. Hún er að draugast um í huga mínum núna, sem sagt ekki of kát í dag.
Kýki á hina þegar ég kem heim í dag. Svo kem ég DVD spilararnum í samband við sjónvarpið.
Sólin skýn og veðrið er frábært.
Lindin er búin að vera ódugleg við skriftir og sakna ég hennar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli