Nú er ég komin í vinnuna aftur eftir að hafa legið fyrir í 4 daga. Mikið var mér farið að leiðast. Sem betur fer kom Larissa nokkrum sinnum í sjúkraheimsókn til mín. Mig vantaði algjörlega að hafa annað hvort breiðvarpið eða video. Ég er ekki enn farin að fjárfesta í skartsnúru milli tv og video´, þannig að ég hafði lítið sem ekkert að gera á meðan ég var veik. Gat ekki lesið, hafði enga einbeitingu til þess. Ég var að dúlla mér við ýmis verk í íbúðinni en það var ekki svo sniðugt heldur. Ég byrjaði á einu og varð svo þreytt að ég þurfti að leggjast, byrjaði á öðru og lagði mig og svo framvegis. Þannig tókst mér ekki að koma neinu í verk heldur skapaði ég í staðinn mikla óreyðu og kaos.
Hápunktur þessara 4 daga var þegar ég fann meðal gamalla bóka sem ég var að gramsa í gamlar dagbækur. Réttara sagt dagbókarbrot. Ég hef aldrei haldið dagbók lengi. Ég hef oft reynt það og mér finnst það alveg dýrðlegt að lesa svona löngu seinna. Þessi dagbókarbrot eru frá árinu 1990, síðasta árið í MH. Ég las part úr þessu fyrir Larissu í gær og skemmti hún sér stórvel yfir þessu. Einnig gróf ég upp útskriftarbækur okkkar beggja. Pínu nostalgia í gangi, en bara pínu.
N'u liggur leiðin fram á við, það eru farin að gerast undur og stórmerki á atvinnumarkaðnum. Þeim fer smám saman fjölgandi á ný áhugaverðu störfunum á lausu. 2 stöður hjá Almannatengsla fyrirtækjum, kynningafulltrúi hjá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og hjá kvikmyndamiðstöð íslands. Auk þess sem auglýst var starfsþjálfun hjá Utanríkisþjónustunni.
" the only way is up"
Engin ummæli:
Skrifa ummæli