mánudagur, desember 25, 2006

Gleðileg jól

Gleðileg jól
Mikið er nú gott að eiga góða að þegar eitthvað bjátar á. Á jólum gæti smáatriði sett soldið stórt strik í reikninginn. Svo sem eins og þegar ofninn reynist bilaður kl: 4 á aðfangadag. Hvað gerir fólk þá, fyrir utan hangiketið er nánast allur matur á jólum eldaður í ofni. Sem betur fer kaupa flestir allt of mikinn mat og lítið mál að bæta matargestum við á síðustu stundu. Steikin hennar mömmu fór barasta beina leið í frystinn og við Mamma og Börkur fórum í mat til Hlyns bróður í gær. Svo var planað að fara til þeirra í hangikjöt í dag og gerðum við það. Á morgun er öll fjölskyldan boðin í kalkún til mömmu, svo við verðum að skutlast með fuglinn til Hlyns, steikja hann þar og koma honum svo hingað. Það er mjög hentugt að bræðurnir séu hérna í næsta nágrenni við mömmu. Þá er hægt að redda þessu án þess að maturinn kólni á leiðinni, auk þess sem hægt er að drekka rauðvín með matnum og ganga heim.

fimmtudagur, desember 21, 2006

heimför frestað

Veðurhamurinn lætur ekki að sér hæðast, það er alveg á hreinu. Ég held ég bíði þar til þessi stormur sem spáð er í dag er liðinn hjá. Það breytir engu þó ég hafi bara þorláksmessu til að versla allar jólagjafirnar. Ég verð bara að lifa með því, kannski ég fái einhverstaðar eina róandi til að hafa það af að vera að versla á þessum degi. Mamma á líka allan jólaundirbúning heimilisins eftir, þ.e. fyrir utan það að versla. Hún var nefnilega að koma frá Kanaríeyjum í gærkvöldi, jæja aðalatriðið er nú bara að kaupa í matinn, við getum bara slökkt ljósin og verið með kertaljós eingöngu til þess að fela rykið og skort á öðrum skreytingum. Mútta er eflaust búin að kaupa sér jólasúkkulaðið sitt frá Lindt í fríhöfninni. Þá er um að gera að redda henni nýjum og spennandi glæpasögum og hún er happy camper.

sunnudagur, desember 17, 2006

Blogglestur

Ég er nú ekki manna duglegust að skrifa á þetta blogg, tek mig samt á öðru hvoru sérstaklega þegar ég tek eftir því að þessir pistlar eru lesnir. Þ.e.a.s ég fæ einhver komment. En ég er mikið duglegri við að lesa önnur blogg, það eru fastir liðir í rúntinum sumar eru lesnar daglega aðrar sjaldnar. Það eru ýmsar barnasíður vina og vandamanna, maður fylgist með mörgum einstaklingnum vaxa úr grasi í fjarlægð. Svo er það náttúrulega saumaklúbburinn, vinir erlendis og vinir vina erlendis. En öðru hvoru rekst maður á gamalkunnugt fólk sem maður átti samleið með einhvertímann á lífsleiðinni sem maður er farin að fylgjast með daglega svo sem eins og Silja sem var með okkur í 9 bekk og Lára gömul bernskuvinkona frá Háaleitinu og Álftó. Gyða og Linda ættu að muna eftir þeim, aðrir lesendur láta sér bara fátt um finnast.

fimmtudagur, desember 14, 2006

Öryggi í umferðinni

Jú víst er það Gyða, ég hvíldi mig um leið og ég fann að kaldur gustur var ekki nóg til að hressa mig við. Og þvílíkur munur sem 10 mín. lúr getur gert. Öll fjölskyldan hefur lagst á eitt við að ráðleggja mér um hvað ég þurfi að hafa með í bílnum til að vera örugg á þessum vetrarferðum mínum norður og suður. Svo nú er ég komin með svefnpoka í bílinn, líka loðfóðraðann útigalla, gönguskó, skóflu, keðjur, kerti, vasaljós, heitt vatn á brúsa, harðfisk, húfu og vettlinga. Það má segja að ég sé bara orðin við öllu búin, nema því að hafa farþega í bílnum því á endanum verður ekkert pláss í bílnum. Og héðan í frá fer ég ekki af stað nema úthvíld, ég geri mitt besta til að aka varlega, á viðeigandi hraða, ekki taka framúr nema ástæða og aðstæður bjóði upp á það, ég geri allt í mínu valdi til að vera örugg í umferðinni en ég get ekki ábyrgst það sem aðrir gera. Bíllinn er í góðu standi, ég er með auka brúsa af rúðuvökva og dekkjahreinsi í bílnum. Til skemmtunar hlusta ég svo á hljóðbækur á meðan á ferðinni stendur, engin ástæða til að vera alltaf að skipta um útvarpsrás, annars er útvarpið stillt á gufuna á langbylgju til að missa ekki af fréttum hvar svo sem ég er stödd á leiðinni. Ég held ég sé farin að hljóma eins og Frímann Gunnarsson svei mér þá, hér með er þessum pistli lokið.

föstudagur, desember 08, 2006

desemberstress

Úff, desember er ekki eins ljúfur og ég vildi hafa hann. Stresssið er mann lifandi að drepa. Í fyrsta lagi ætlaði ég aldrei aldrei aftur að flytja í desember, ég hata það að flytja og að gera það ein, en allra mest hata ég að gera það í desember. Maður finnur aldrei neitt, nú finn ég ekki adressubókina mína til að senda kort og pakka út um allt. Og ég fæ ekki svör við sms og email þegar ég óska eftir adressum, hvað er þetta vill enginn tala við mig.
Svo er stress í vinnuni, fullt af fundum, fjárhagsáætlun og svoleiðis vesen. Svo er ég ekki farin að hugsa um aðrar jólagjafir en þær sem fara í póst.
Gleði mánaðarins er að hitta mág minn og yngstu systurdóttur mína sem eru í heimsókn frá svíþjóð núna. Ég gat samt ekki hitt þau fyrr en í kvöld þegar ég kom suður.
Ég var næstum sofnuð undir stýri í dag, ég fékk sjokk þegar ég sá stykki úr fjallinu fyrir framan mig hreyfast, lagði bílnum og lagði mig í 10 mín og hresstist við það, fékk mér svo kaffi við næsta tækifæri. Þetta hefur ekki komið fyrir mig áður.