mánudagur, janúar 27, 2003

Þetta blessaða fólk hefur ekki getað séð sér fært að svara tilboði mínu ennþá, það er í raun runnið út. Tíminn var settur á kl13 á laug. Hmmm, mér var sagt á laugardag að því miður hefði ekki náðst í alla í húsfélaginu og það væru ekki allir sáttir. Vegna tekjutengingar, hvernig svo sem á því stendur eða hvað það þýðir þá er ég orðin soldið pissed.
Ég breyti þessu tilboði ekki nema niður á við... ef að það er eitthvað frekara vesen á þeim þá gleymum við þessu alveg.

Ég er auðvitað bara hluti af massanum, þ.e. ég er alveg jafn forvitin og restin af þjóðinni og náði mér í aðgang að islendingabok.is , ég komst að því að nánast allir sem ég þekki eru skyldir mér á einhvern hátt. Flestir náttúrulega langt aftur í ættir, oftast var það í 6-9 lið. Einungis hjá einni manneskju kom fram "enginn skyldleiki fannst"
og það var hún Inga María úr saumaklúbbnum mínum. Ég er skyld Lindu í gegnum móðurætt hennar og föðurætt mína, Larissu í gegnum föðurætt hennar og móðurætt mína. Báðar í svona um 6-7 ættlið.
Maður er farin að taka undir það sem vinir mínir úti hafa alltaf sagt, íslendingar eru allir skyldir.

Engin ummæli: