Það er mikið að gera á öllum vígstöðvum, en samt ansi gaman. Það er búið að vera mjög gaman í vinnunni í dag. Mjög undarleg en, skemmtileg stemmning. Stórskotahríð í allar áttir. ;-)
Meiddi mig á gleri í gær, Linda hættu að lesa, þú vilt ekki vita þetta. Rann til við það að hreinsa gler úr ramma og skar mig við það. Skar naglabandið á löngutöng af og meira til. Verð að eignast plástur á heimilið.
Ég keypti mér 5 ramma í mism. stærðum og gerðum í Góða hirðinum. Hreinsaði þá og lagaði að mínum smekk.Æði, ég er svo skotin í þeim.
Ég verð að fara að forgangsraða þessum verkefnum sem liggja fyrir í innréttingum.
Verð að hringja í tryggingafélagið og ath. hvort ég fái einhverjar bætur fyrir vatnslekann. Ég var líkl. ekki búin að skrifa neitt um það. Einn morguninn þegar ég vaknaði var eldhúsið á floti, það hafði farið pakkning í blöndunartækinu. BB var kallaður út og lagaði allt. Börkur Bróðir kann allt og getru allt. ha ha .
miðvikudagur, maí 21, 2003
þriðjudagur, maí 20, 2003
Ég hef aldrei pælt í því hvaða konur það eru sem stunda vændi, þ.e. að það séu bara venjulegar konur eins og ég og þú.
Jú reyndar hef ég einhverntímann pælt í því að vísu. Og verið sannfærð um að það séu ágætar og ósköp eðlilegar konur sem stunda vændi sér til viðurværis.´Reyndar er ég líka viss um að stór hópur vændiskvenna ef ekki meirihlutinn sumsstaðar hefji störf vegna neyðar eða eru neyddar til þess að gera þetta. Það á þá sérstaklega við erlendis.
Hins vegar finnst mér það vera öðru vísi á þessu litla skeri okkar þar sem allir þekkja alla. Hver einasta kona sem reynir fyrir sér í þessari grein hér á landi á á hættu að þekkja kúnnana sína persónulega einhvers staðar frá. Og vice versa. Það er mjög fljótt að gerast að fólk sé stimplað fyrir lífstíð í okkar litla samfélagi. Það verður aldrei aftur snúið, það gerir greinina líklega mikið erfiðari en annarsstaðar.
Fyrir nokkrum vikum var þó nokkur umræða um vændi hér í fjölmiðlum. Það byrjaði með frétt um dömu sem lækkaði verðið á markaðnum svo um munaði. Síðar var Stöð2 með rannsóknarblaðamennskuna í fyrirrúmi þegar vændiskona var heimsótt með leyndri myndavél innanborðs.
Nú er ég að heyra sögu um það hver þessi kona eigi að vera og stóð mig að því að hafa mikla fordóma hvað þennan starfsvettvang snertir.
Mér fannst þessi kona sem um ræðir væri heldur ólíkleg til þessa. Svo sérlega venjuleg kona, ekkert sérlega áberandi á neinn hátt. Þokkalega menntuð, ekki þessleg að hún hafi engin önnur atvinnutækifæri en láglaunastörf.
Þegar hún skipti um starfsvettvang þá sagði hún engum frá því hvar hún hefði fengið aðra vinnu. Hún sagði að atvinnuveitandinn vildi ekki að hún talaði um það fyrr en hún væri byrjuð að vinna þar. Það kom fólki á óvart á þessum vinnustað og taldi fólk að hún væri að fara yfir til samkeppnisaðila. Meir en ári eftir að hún hætti að vinna á þessum vinnustað hringdi móðir hennar til að tala við hana og var ílla brugðið við að komast að því að hún ynni ekki lengur þarna.
Núna er ég mikið að hugsa um það hve lítið maður veit um ýmsa kunningja og málkunnugt fólk sem maður hefur umgengist í gegnum tíðina. Það gæti hver sem er átt sér sín leyndarmál sem mann grunar ekki að þau eigi. Fólk sem maður hefur búið til ákveðna mynd af, byggða á því sem maður þekkir af fólkinu eður ei. Svo kemst maður að því að maður hefur í raun ekki nokkra hugmynd um hver manneskjan er.
Það vekur aftur upp stóra spurningu Þekkir maður nokkurn tímann aðra manneskju í raun??

mánudagur, maí 19, 2003
Ég er örugglega búin að missa eina lesandann að þessari síðu, ég skrifa svo sjaldan.
Svefnleysi er mér efst í huga í dag. Ég er líklegast orðin of gömul til að drekka kaffi eftir kl. 8 á kvöldin. Ég var í heimsókn hjá Daða, sem er æskuvinur og fyrrum nágranni. Ég notaði tengsl mín við hina ýmsu aðila í hverfinu til að geta fundið einhverja aðila sem hægt var að taka viðtöl við. Þetta Gallup verkefni sem ég tók að mér er ekki launað í samræmi við fyrirhöfn. Ef ég hefði ekki þekkt og kannast við marga í hverfinu hefði ég ekki fengið nema kannski 2-3 til að tala við mig.
Ég er fegin að þetta er búið núna. Þetta er fengin reynsla og lokuð bók. Enginn leið til að þéna pening. ´
Þá er það bara leiðsögnin. Ég helli mér út í hana af fullum krafti núna.
Ég er að slæpast í vinnuni og þyrfti að vera duglegri í dag að vinna fram í tímann svo að ég geti tekið mér frí í næstu viku vegna ferða m. túrista.
Ég er nú samt með áhyggjur af því hvernig mér eigi eftir að takast að sitja svo dögum skiptir í rútu með rófubeinið eins og það er:
Mér er ennþá illt í rófubeininu, ég ætlaði í hölfuð bein og spjaldhryggsmeðferð á laugardag. Því miður missti sá sem ætlaði að taka mig í meðferð pabba sinn daginn áður og gat því miður ekki tekið nein verkefni að sér. Skiljanlega. Svo ég sit hér og strýk mér um sár..ann botninn.
Ég var búin að ákv. date, í gærkveldi. Það gekk ekki eftir því Gallup verkefnið var ólokið. Það er netkunningi sem ég ætlaði að hitta í fyrsta sinn.Við vorum búin að ákv. að hittast fyrir ansi löngu síðan en þá, varð ég veik. Síðan var ekkert samband í lengri tíma en nú á að hittast yfir kaffibolla kannski í kvöld.
Maður verður að reyna.
Kannski ég leggi mig í hádeginu ég er það þreytt.

föstudagur, maí 16, 2003
Jamm
Ég er löt við að vinna í dag, it's Friday baby!!
Ég er búin að vera á kafi í bókhaldi , húsreglum og tillögu að nýjum hússjóði. Í gær var aðalfundurinn og ég er laus við gjaldkerastöðuna, sem betur fer. Júhú, síðustu 2 vikur hefði ég átt að vera dugleg við að ganga á milli húsa og gera skoðanakönnunin sem ég er að vinna við fyrir Gallup. En ég hef verið einstaklega löt við það og verð að viðurkenna að ég er búin að koma mér í hálfgerða klípu með þetta. En hvað um það, ég verð að kýla þetta í gegn fram á sunnud.
Á laugardag er ég svo að fara í höfuðbein og spjaldhryggs meðferð við rófubeininu. Ég verð að lagast svo ég geti farið í langferðir í sumar. Fyrsta ferðin er fyrirsjáanleg í næstu viku. Þá verð ég að vera orðin sæmileg í það minnsta.

Mér finnst það svo merkilegt að enginn hér á landi virðist hafa neinn áhuga á náttúrufyrirbærum eins og tunglmyrkva eða sólmyrkva.
Nú síðustu nótt var tunglmyrkvi og virðist lítið hafa farið fyrir áhuga á því. Smá frétt um það eftir á. Nú svo er sólmyrkvi á laugard, 31 Maí.
Ég hef ekki orðið vör við miklar umræður um slíkt. Á meðan ég var í þýskalandi var einu sinni sólmyrkvi, ef ég man rétt sumarið '99. Það var gífurlega skemmtileg stemmning í kringum það. Það var stöðugt fjallað um sólmykrva í fjölmiðlum, hvað er að gerast og hverju fólk mátti eiga von á. Einnig var mikið fjallað um nauðsyn þess að vera með sérstök gleraugu á meðan á þessu stendur. Þegar að þessu kom var mikil stemmning um allt land og fólk safnaðist saman á ýmsum stöðum til að fylgjast með fyrirbærinu. Ég stóð með þúsundum manna í Ólympíugarðinum í München í hellidembu. Það dró fyrir og var þungskýjað á meðan á myrkvanum sjálfum stóð, ekki sá maður nákvæmlega allt en stemmningin var merkileg þegar dagsbirtan hvarf í augnarblik og fólkið tók andköf samtímis og það klappaði.
Hvar er hátíðisstemmingin á íslandi vegna sólmyrkvans hér??

miðvikudagur, maí 07, 2003
Ég er nú ekki dugleg að skrifa þessa dagana. Apríl er liðinn og vorið skríður enn hraðar áfram. Rétt strax er komið sumar.
Peningar eru mjög mikið áhyggju efni hjá mér þessa dagana. Ég vil geta borgað það sem ég er búin að skuldbinda mig til að greiða á árinu, án þess að stofna til óviðráðanlegra skulda. Það var nú ástæðan fyrir því að taka ekki 90 % lán fyrir íbúðinni, að skulda minna og eiga meira.
Af þessu tilefni er ég farin að vinna hjá Gallup sem spyrill, tímabundið í þessari og næstu viku.
Auk þess er ég að reyna að fá eins margar ferðir í sumar og ég kemst í. Ég er búin að fá 8 daga hóp í dagsferðum frá Reykjavík um miðjan Júní og 14 daga hótelferð, hringin í kringum landið í Júlí. Það er betra að fá að vera með sama hópinn marga daga í röð því þá fær maður yfirleitt alltaf þjórfé. Það er ekki svo algengt með dagstúrista.
Þessa dagana er ég að reyna að vinna upp gamlar syndir í vinnuni og hreinsa út gamla pappíra og annað slíkt. Svo að allt sé á hreinu í sumar. Ef ég kem bara öðru hvoru inn í sumar og vinn bara nokkra daga í einu, þá verður allt að vera í góðu skipulagi og engar gamlar beinagrindur í skúffunum hmmmm. Mikið verður sumarið ljúft.
Ég þyrfti bara að fá mér lappa að láni eða eittvhað slíkt.
kannski, kannski