mánudagur, júní 30, 2003

Letihelgi sumarsins er liðinn. Ég fór varla út úr húsi alla helgina, ekki nema aðeins út í búð.
Reyndar gerði ég eitthvað af viti, þvoði og þreif eitthvað svo íbúðin líti út fyrir að vera mannabústaður.
Hélt að ég ætti von á Sollu í kaffi, í gærkvöldi. Var víst ekki.
Lindin kemur heim á morgun í 10 daga frí, jippýjey.
Ég er spennt að komast að því hvað ég fái útborgað þessi mánaðarmót, ég þarf að telja saman allar ferðirnar sem ég fór til að sjá hvað ég ætti að fá borgað.
Svo þarf ég að klára helv. uppgjörið vegna húsfélagsins á Háó svo ég sé laus við þetta loksins.

Ég þarf líka að kalla til bræður mína með borvélar sínar svo ég geti lært að bora og klárað loks fyrirliggjandi verkefni í íbúðinni. Fór um daginn til Hlynsa til að láta hann saga fyrir mig. Fæ svo Börk til að festa eldhús hillurnar og annað því um líkt. Ég vil endilega klára það sem ég er með í gangi í sambandi við íbúðina áður en krakkarnir koma frá Svíþjóð.

Ég hef ekkert verið að gera mikið utan heimilis og vinnu undanfarnar vikur, nema eitt. Ég hef farið 2 síðustu föstudaga á "drekktu betur" spurningakeppnina á Grand rokk með Hjördísi úr vinnuni. Ekki höfum við unnið neitt ennþá en hvur veit?? Gaman að þessu!!

Er að chatta við gæja á private, virðist vera ágætur. Aldrei að vita nema maður leggji í að hittast einhvern daginn??

Engin ummæli: