Sybbinn og þreyttur Ausi mættur enn á ný, svefninn er mér afar mikilvægur eins og hægt hefur verið að lesa hér á þessari síðu oft áður.
Dreymdi illa, kunnugur maður dó og margt var í uppnámi í þessum draumi. Það er ekki sniðugt að vakna á REM stiginu. Líklega verð ég að tímasetja það
betur með því að fara fyrr að sofa en vanalega.
Ég hef margoft reynt að lifa með minni svefn en 7 tíma á nóttu. Margir segjast ekki þurfa meir en 5-6 tíma svefn á nóttu, í tímaþröng vil ég það líka.
En það hefur bara slæm áhrif á einbeitinguna og annað. Ég hef reynt að þjálfa þetta upp hjá mér, sérstaklega þar sem ég er hvað athafnamest á kvöldin. Sannkölluð B manneskja en á móti krefst samfélagið þess að maður hegði sér sem A manneskja og taki þátt í lífinu á morgnana, mæti í vinnu og annað eins. Ekki hefur þetta gengið upp enn. 'Eg bara er algerlega óhvíld og ílla upplögð af því að fara á fætur eftir 5-6 tíma svefn. Baugar eru snemma komnir fram hjá mér, sem og önnur þreytumerki.
Ég verð bara að gefast upp á þeirri hugmynd að ég geti þjálfað mig í annað mynstur en líkami minn fer fram á.
Hvað svefnin varðar í það minnsta.
Ég er enn að drepast í hnénu eftir fallið´fyrir viku, í vinstra hnéð verkjar mig líka. Það er samt eingöngu mar.
Ég var nú samt að vinna alla helgina við leiðsögn, nú er ég að reyna að komast í sem mest af helgarferðum til að næla mér í aukapening.
Ég ætla að klára allan aukakostnað vegna íbúðarinnar í mars. Þá er komið ár og ég á þá 30 % íbúðarinnar sjálf, þá er þetta bara piece of cake það sem eftir er. Lægra en leiga, í það minnsta. Ég vonast til að hafa efni á breytingunum svona upp úr miðju næsta ári. Kannski eftir sumarið. Og jafnvel fyrr ef ég kemst loksins í alvöru vinnu sem borgar mér í hlutfalli við verðleika.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli