föstudagur, október 17, 2003

Ég er að taka til í tölvuræksninu hjá mömmu. Hreinsa út yfir 1000 mail til mín. Fara í gengum þetta og hreinsa út allt rusl og vista á diskum allt mikilvægt.
Kella er nefnilega á tölvunámskeiði fyrir eldri borgara. Eins gott að setja tækið upp á sem einfaldastan hátt svo að hún hræðist ekki að eyðileggja eitthvað fyrir mér.
Djö.mikið drasl safnast fyrir á svona dóti ef maður hugsar ekki um það.

Allavega hefur þessi seta fyrir framan tölvuna aukið hjá mér löngun til að fá mér alvöru tölvu aftur. Ég bara verð að fá mér nothæfa tölvu heim, þetta ástand gengur ekki lengur. Þarf ekki að vera það allra nýjasta bara skikkanlegt, það sem er nýlega orðið úrelt.

miðvikudagur, október 15, 2003

Sybbinn og þreyttur Ausi mættur enn á ný, svefninn er mér afar mikilvægur eins og hægt hefur verið að lesa hér á þessari síðu oft áður.
Dreymdi illa, kunnugur maður dó og margt var í uppnámi í þessum draumi. Það er ekki sniðugt að vakna á REM stiginu. Líklega verð ég að tímasetja það
betur með því að fara fyrr að sofa en vanalega.
Ég hef margoft reynt að lifa með minni svefn en 7 tíma á nóttu. Margir segjast ekki þurfa meir en 5-6 tíma svefn á nóttu, í tímaþröng vil ég það líka.
En það hefur bara slæm áhrif á einbeitinguna og annað. Ég hef reynt að þjálfa þetta upp hjá mér, sérstaklega þar sem ég er hvað athafnamest á kvöldin. Sannkölluð B manneskja en á móti krefst samfélagið þess að maður hegði sér sem A manneskja og taki þátt í lífinu á morgnana, mæti í vinnu og annað eins. Ekki hefur þetta gengið upp enn. 'Eg bara er algerlega óhvíld og ílla upplögð af því að fara á fætur eftir 5-6 tíma svefn. Baugar eru snemma komnir fram hjá mér, sem og önnur þreytumerki.
Ég verð bara að gefast upp á þeirri hugmynd að ég geti þjálfað mig í annað mynstur en líkami minn fer fram á.
Hvað svefnin varðar í það minnsta.

Ég er enn að drepast í hnénu eftir fallið´fyrir viku, í vinstra hnéð verkjar mig líka. Það er samt eingöngu mar.

Ég var nú samt að vinna alla helgina við leiðsögn, nú er ég að reyna að komast í sem mest af helgarferðum til að næla mér í aukapening.
Ég ætla að klára allan aukakostnað vegna íbúðarinnar í mars. Þá er komið ár og ég á þá 30 % íbúðarinnar sjálf, þá er þetta bara piece of cake það sem eftir er. Lægra en leiga, í það minnsta. Ég vonast til að hafa efni á breytingunum svona upp úr miðju næsta ári. Kannski eftir sumarið. Og jafnvel fyrr ef ég kemst loksins í alvöru vinnu sem borgar mér í hlutfalli við verðleika.

fimmtudagur, október 09, 2003

Ég er öll lemstruð eftir að hafa dottið í fyrstu hálku haustins á hjólinu. Á leiðinni í vinnuna í gærmorgun rann hjólið undann mér og ég féll framfyrir mig á svellið á bílastæði FÁ.
Afleiðingin er sú að ég meiddi mig íllilega á hægra hnénu, ég kramdi og marði einhvern liðpoka. Nú er ég aftur mætt í vinnuna eftir að hafa tekið 1/2 dag í veikindafrí. Eftir slysó í gær lá ég heima með kælingu á hnénu það sem eftir var dags. Það var það eina sem hægt er að gera. Kæla fyrsta daginn en ekki lengur, svo bara bíða og þjást. Þetta er helv. vont. aðallega ef ég beygji hnéð sem ég forðast að gera. En svo koma stundum svona surprise stingir án þess að ég hreyfi mig. Bölvað #$%#$&//($$$#&$% grrrr.
Svo til að bæta gráu ofan í svart, komst líklega við höggið eitthver hreyfing á rófubeinið svo ég er kvalinn þar líka. Sem sagt ekki mín besta hlið sem ég sýni á mér núna.

miðvikudagur, október 01, 2003

Hmm er að drepa sjálfa mig úr hvítlauksfýlu. Ég fékk mér spagettí í gær með slatta af hvítlauk útí. Það böggar mig ekki neitt yfirleitt, en ég held ég þjáist útaf þessu núna vegna þess að hann var orðinn gamall. Enda helst svona ekki lengi ferskt í venjulegum ískáp.
Ég hef ekki skrifað neitt lengi, ég viðurkenni það alveg að ég er ekki að standa mig í þessu.
Ástæðan er ekki sú að það sé bara ekkert að frétta, því það er enginn afsökun. Né heldur að ég hafi of mikið að gera, því svo mikið er það ekki búið að vera. Hmm ég er kannski bara í leit að innblástri. Ég vil ekki eingöngu skrifa upp lista einfaldra daglegra verka og atburði hvunndagsins. Ég vil nýta þetta sem tækifæri til að hverfa frá hvunndeginum að einhverju leyti.
Mig vantar ennþá eiginlegan innblástur til þess.
Linda mín ef þú lítur inn þá er ég farin að sakna þín en að sjálfsögðu ertu á kafi í breytingum lífs þíns og bloggar þegar þú mátt vera að. Bara að þú vitir það þá bíð ég spennt eftir frásögninni af nýju íbúðinni og nýju vinnuni.
Nú þegar Larissa er farin er ég soldið einmana, ég var svo glöð að fá að hafa hana í nokkrar vikur. Nú bíð ég bara eftir að Linda komi heim um jólin.
Ég bauð Larissu og Sollu í brunch áður en L fór. Það var ágætis dagstund, maður þarf ekki endilega að bjóða fólki í kaffi& Kökur eða kvöldmat. Maður getur boðið upp á aðra möguleika.
Sari mágkona mín gaf mér 3 af listaverkum sínum, þau eru að tæma kjallarann hjá sér. Það er svo lágt til lofts þar og nú ætlar brósi að brjóta upp gólfið og skapa þannig betur nýtanlega lofthæð. Þannig að þau þurftu að losna við ýmislegt. Ég er þakklát fyrir verkin og geymi nokkur í viðbót fyrir þau líka.