Ég hef nú eitthvað vanrækt það að skrifa hér, en nú skal aðeins úr því bætt.
Mér líður mjög vel eins og er og er að mestu leiti upptekin af því að innrétta íbúðina mína svo að ég geti flutt. Einnig er Ingibjörg systir á landinu og finnst mér það æði. Hún og mamma voru á cranio sakral námskeiði. Ingólfur kom með og er hann búinn að vera í cranío sakral meðferð.
Ég er mjög ánægð með námskeiðið mitt og held áfram að bæta sjálfa mig. Ég er komið með nytt mottó, ef þú vilt eittvhað gerðu það sjlalfur það gerist ekkert af sjálfu sér. Trú því mottói hef ég nú verið að kýkja á stefnumótasíður á netinu. Ekki slæmt fyrir svona vanvirka konu, sérstaklega í karlamálum.
En allt þetta span sem er búið að vera á mér undanfarið, er að sýna fram á neikvæðar hliðar á sér. Ég er svooooo þreytt. Ég hef ekki sest niður til að horfa á sjónvarpið í allavega 2 vikur. Ef ég hef séð e-ð í tv þá er það bara í 10-30 mín. Það er lítið fyrir sjónsvarpssjukling.
jæja ég verð að halda áfram að vinna.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli