fimmtudagur, júní 19, 2003

Ég skrifa nú ekki mikið þessa dagana.
Hmmm látum okkur nú sjá, 17 Júní kom og fór án þess að ég gerði eitthvað sérstakt. Fór til mömmu í smá höfuðbeinog spjaldhryggs meðferð, var svo bara ein heima að dúlla mér.
Kvöldið áður fékk ég heimsókn frá 2 vinnufélögum sem komu til að dást að handverki mínu í íbúðinni. Það var fínt kvöld , rauðvín, ostar og kertaljós. Og kjaftastuð náttúrulega.
Solla hringdi í mig um daginn til þess að forvitnast um hagi vinkvenna okkar erlendis. Ég sagði henni nýjustu fréttir og beindi henni á Lindina. Sem gerir það að verkum að hún fann náttúrulega linkinn hingað. Ég er sem sagt komin með nýjan lesanda.
Ég fer og tek á móti þýskum hóp sem ég verð með næstu vikuna í kvöld. Þetta eru dagsferðir útfrá Reykjavík, sem þýðir að ég á mér mitt líf á meðan, þó ég sé með sama hópinn í víku. Nú er um að gera að standa sig vel og fá fullt af peningum frá þeim í tips.
Hjördís sem ég vinn með stakk upp á ég kæmi með henni á spurningakeppni á Grand Rokk á morgun, fínt maður gæti kannski unnið sér inn bjórkassa.
Svo er ég búin að mæla mér mót með Sollu í bíó á sunnudagskvöldið,´hún er barnlaus og þar af leiðandi iðjulaus þessa dagana. Ég vona að hún fari að jafna sig í ´tánni fljótlega, svo hún geti gert aðeins meira.
Aldís kemur líka í bæinn um helgina, hún er að vinna á hvalaskoðunarbáti á Húsavík í sumar. Smá munur á bústað frá Mílano til Húsavíkur, hmm.
Er aðeins að kýkja á karlkynið í gengum einkamálasíðurnar á netinu, ágætis afþreying sem hefur hingað til ekki veitt mér neina spennu svo sem. Átti 1 deit, sem mér fannst ekki svo mikið til koma. Er að tjatta við annann sem ég er ekki farin að sjá ennþá hvernig er, lofar góðu enn sem komið er.
Annað sem kannski mætti reyna upp á grín, hraðstefnumót. Það eru á örskömmum tíma komin upp tvö fyrirtæki sem bjóða svokölluð hraðstefnumót. www.hradstefnumot.is og www.speeddater.is. Er smám saman að komast á laggirnar single menning hérlendis. Ég bara spyr??
Í það minnsta er fólk að reyna að græða á því að fólk er einsamalt. Það kostar 2500 að komast á stefnumót með 10-20 mönnum í einu og 3 mínúntna samveru með hverjum. Á 3 mínúntna samtali á maður að mynda sér skoðun á fólkinu, ef þetta er ekki leið til þess að nýta sér allar skúffurnar sem maður hefur útbúið í huga sér alla ævi til að greina fólk í sundur, þá veit ég ekki hvað það er að hafa fordóma. Ha ha ha

Engin ummæli: