Fór á KaffihúsadeiT á laugardag með einum sem ég hef verið að chatta við á Private.is.
Ég er ekki neitt sérlega spennt fyrir honum, en ég hugsa að ég sjái hann aftur bara til að ganga úr skugga um það hvort ég sé ekki bara fordómafull gagnvart honum. Keep an open mind segi ég.
En það er soldið að hræða mig hvað hann virðist vera sannfærður eftir eitt treff, scary eiginlega. Vildi hittast aftur strax næsta dag, mér fyndist það of snemmt og svo var ég upptekin líka. En svo er hann að segja mér að hann sé búin að taka auglýsinguna sína á Private úr umferð, vegna þess að það var svo gaman að hitta mig. Og svo hellir hann yfir mig hrósi. Ég er skeptísk á hrós almennt, en meira ef einhver kann sér ekki hóf. Þá læðist strax að mér grunur um að það geti annað hvort ekki verið einlægt, eða að viðkomandi sé ekki alveg í lagi.
Nú og svo er það með ákveðin komment sem mér finnast ósmekkleg. En ég verð að fara varlega í að dæma fólk eftir svona stutt kynni.
Ég leyfi mér það ekki og ætla að hitta hann einhvern tímann aftur, kannski einhverntímann í vikunni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli