Viðtalið var ok, maður veit aldrei hvernig þetta hefur verið. Ég vil ekki velta mér upp úr þessu núna, ég veit allavega að ég gerði/sagði ekkert sem ég get verið að ásaka sjálfa mig fyrir. Ég var fín, ekkert ef bara, hefði eða þess háttar, ég var í viðtali og það var fínt, það kemur í ljós í þarnæstu viku hvað úr þessu verður.
Núna er bara að fara í ríkið og pakka fyrir sumarbústaðaferðina mína á eftir. En mikið ósköp er ég þreytt í augnarblikinu, svaf ílla í gærnótt, hef almennt ekki sofið vel undanfarið, alltaf að vakna,líklega er hávaðinn í ísskápnum meiri en ég hélt, truflar meir en mig grunaði, þarf að skipta um ísskáp líka, jii ég hef ekki efni á því að anda. Líklega verð ég að sleppa því að fá mér nýtt sjónvarp og líka ísskáp, verð sjónvarps og ísskápslaus hérna, ekkert svona negatívt tal, nú er bara að skella sér í sukkhelgi saumaklúbbsins.
föstudagur, janúar 27, 2006
fimmtudagur, janúar 26, 2006
Viðtal
Ég fer í viðtal í fyrramálið kl: 8:30, ég er mjög spennt fyrir þessu starfi í stofnun hér í bæ, meira um það seinna, ég bið um fallegar hugsanir á þessum tíma í fyrramálið. Hef hugsað mér að vera vel undirbúin, fara í gegnum þessar klassísku spurningar með sjálfri mér, ákveða einhvern ramma fyrir svarmöguleika. Líka muna eftir því sem ég hef hugsað mér að spyrja sjálf.
Að öðru leiti verður þetta góð helgi hjá mér, ég fer í sumarbústað með saumaklúbbnum seinni partinn á morgun, verður það hreinasta sukkhelgi. Það verður étið, drukkið, spilað, hlegið og skellt sér í pottinn.
Hvað lífið getur verið dásamlegt á stundum, hehe.

mánudagur, janúar 23, 2006
Sjónvarpsleysi framundan ??
Sjónvarpsgarmurinn minn er farinn að slökkva á sér sjálfur, með æ styttra millibili.
Í morgun slökkti það á sér 2x á einum klukkutíma( kannski var ísland í bítið bara svo lélegt?). Og samtímis kom óyndisleg lykt sem fékk mig til að halda að það myndi brenna yfirum. Ég rétt þorði að setja það í gang nú í kvöld, ég skammta mér sjónvarpstíma, út frá skemmtilegasta sjónvarpsefninu. En ég sé fram á að það eigi eftir að deyja innan skamms. Ég er viðbúin því og tilbúin að stökkva eftir slökkvitækinu.
Ég er búin að ákveða að kaupa ekki strax nýtt sjónvarp, reyna að vera sjónvarpslaus um tíma, sjá hvort ég finni ekki framkvæmdagleðina í sjálfri mér, fari meira í heimsóknir, bæði til að kýkja á einstaka dagskrárliði og til að hitta fólk.
Hver veit nema að það verði mér bara til ánægju að verða sjónvarpslaus.
Verst að ég verð að passa strákana hans Hlyns bróður míns þarnæstu helgi, þeir yrðu ekki ánægðir með að vera sjónvarpslausir á meðan, kannski ég fái lánað sjónvarp hjá þeim hingað heim á meðan.
Næstu helgi fara Hlynur og Sari til Finnlands, Hlynur verður í 2 vikur og Sari í mánuð, mamma verður með strákana en ég hjálpa til og tek þá líklega um helgarnar til að hún fái smá frí. Þeir verða hjá henni í miðri viku því þeir geta gengið í skólann frá henni.

Sóðalegt
Ég legg ekki í vana minn að lesa DV,kaupi það ekki, ekki áskrift né í lausasölu. Þeir eru hins vegar búnir að senda mömmu það ókeypis í 2 mánuði núna, svo ég lít stundum í það hjá henni í leiðindum. Þar hef ég séð ýmislegt sem ég gæti svo sem röflað óendanlega yfir. En það er allt eitthvað drasl sem gleymist strax svo sem, en ég sá einhvern dálk eftir þennan Gillzenegger gæja sem er að trufla mig núna. Helst vegna þess að þetta er eitthvað stærra en bara einhver grein sem birtist einu sinni og hverfur. Þetta er einhver hreifing, stefna sem ég er ekki að fíla. Þessi gæji og fleiri líkir eru komnir með eigin sjónvarpsþætti á Sirkus, sem ég næ hvort eð er ekki heima hjá mér, missi svo sem ekki af neinu. En það er einfaldlega merki um að það er verið að ala þetta upp í liðinu, það virðist vera markhópur fyrir þetta rusl. Ég sé Sylviu Nótt sem góðlátlegt grín að þessu liði, í sjálfu sér þó ég fíli það ekki, þá er augljóst að þátturinn er ekki að taka liðið alvarlega. En þessir svokallaðir hnakkar og fylgilið taka sig og "menningu" sína alvarlega. Sem sést á þessum dálk frá "Gillz". Það að bjóða liðinu eigin þætti er annaðhvort verið að stóla stóran markhóp sem er eitthvað sem hræðir mig, ef þetta er tekið alvarlega sem einhverskonar fyrirmyndir, þá er þjóðfélagið í mikilli hættu. Hins vegar ef verið er að gera grín að liðinu, þá er það sorglegt því ég lærði sem barn að það væri ljótt að gera grín að minni máttar.
miðvikudagur, janúar 11, 2006
mánudagur, janúar 09, 2006
Geðheilsa
Geðheilsa mín er ekki sú besta í augnarblikinu, ég er stressuð og kvíðin. Það er annars vegar atvinnuleitin sem leggst ílla í mig og hins vegar félagsstörf í félagi sem ég er í. Nú mikla ég allt fyrir mér og á erfitt með að gera nokkurn hlut, einföldustu hlutir verða að miklu máli. Þá eru viðbrögð annars fólks við því sem ég geri að valda mér hugarangri, það situr lengi í mér litla barnið sem vildi að allir væru góðir við sig og þolir ekki að aðrir gætu hugsað illa til þess. Þetta er náttúrulega ekki í lagi þar sem ég er ekki týpan sem gerir allt til að þóknast öðrum. Ég get ekki hugsað mér að fara aftur á lyf eins og í eina tíð. En er þá ekki ráðið að fara eftir öðrum hollráðum varðandi geðheilsu, minnka kaffidrykkju, reglulegir matartímar, reglulegur svefn, hreyfing útivera, samskipti og íhugun.
Er að pæla í þessu öllu , en á meðan verður mér ekkert ágengt með þau mál sem ég þarf að sinna.
Er að pæla í þessu öllu , en á meðan verður mér ekkert ágengt með þau mál sem ég þarf að sinna.
mánudagur, janúar 02, 2006
Nýtt ár 2006
Loksins er árið 2005 á enda, í mínum huga var það ár "annus horribilis".
Ég var búin að ákveða að hafa einkunarorð mín og áramótaheit fyrir þetta ár einföld og um leið kraftmikil.
Ég trúi og treysti á sjálfa mig, lífið og lukkuna
Áramótaheit að því tagi að breyta einhverju neikvæðu í fari mínu, megrun o.s.frv. hafa ekki borið árangur hingað til, þannig að ég sleppi því. Það er hins vegar í fínu lagi að setja sér takmörk sem maður vill ná. Skrifleg takmörk með ákveðnum tímasetningum, sem hægt er að vinna skipulega að. En ég kalla það ekki áramótaheit lengur, það er hvort eð er alltaf það sama sem maður ætlar sér. Nú er bara um að gera að breyta aðferðinni því þetta hefur ekki virkað svo vel hingað til. Svo það eru einkunnarorð fyrir árið, nokkurs konar mantra sem ég get notað til að auka sjálfstraustið og verið ákveðnari í því sem ég ætla mér.
Vonandi hafið þið öll haft það gott og notið hátíðanna og undir átökin framundan búin, því nú þarf að vinna fyrir öllum jóla/visa/euro skuldunum og öllum hinum aukareikningunum sem koma í upphafi árs.
Fyrsta takmark nýs árs hjá mér er að vera komin í vinnu fyrir lok janúar.
og hana nú.