miðvikudagur, mars 29, 2006

Busy woman

Það er alltaf eins, annað hvort í ökkla eða eyra, allt sem ég tek að mér að gera skal alltaf raðast á sama tímann. Í gær var ég upptekin frá 8-24 s.s. mikið að gera og sama er í dag. Það skánar aðeins á morgun en ég er orðin þreytt núna.
Það sem er að gerast hjá mér er vinna, bæði HS og leiðsögn, góðmennska þ.e. aðstoða ættingja við skattskýrslugerð og flutninga, saumaklúbbur(var gaman í gær)próf , skýrslugerð og þess háttar hjá FL þar sem aðalfundur er í kvöld, júhú ég er að hætta öllum stjórnarstörfum, en er samt búin að lofa mér í ákveðin sjálfboðaliðastörf fyrir félagið samt, "I cant help it", (það er reynsla sem mun borga sig). Og svo náttúrulega einhverjar umsóknir og ofsóknir af minni hálfu þeirra vegna. Kannski fæ ég smá tíma til að slaka á næstu daga þar sem dagskráin er ekki alveg eins þétt. Mútter frétti af norðanáttinni hér heima og framlengdi dvöl sinni á Kanarí um eina viku, gott hjá henni.

föstudagur, mars 24, 2006

Júróvisíon

Nú er myndbandið og enska útgáfan af Sylvíu Nótt komin á netið.

Orðabók

Orðalag er eitthvað sem gaman er að leika sér að, í blaðinu Birtu í dag sá ég orðalag sem minnti mig á Bridget Jones. Hún talaði nefnilega um einhleypinga sem singletons, man ekki hvað hún kallaði pör. Allavega í þessum pistli var talað um Lausalinga og Paralinga, gífurlega flott orðalag.

Mútta var um daginn að versla fisk, fisksalinn vildi endilega selja henni meiri fisk en hún vildi. Svo hún lét hann vita að hana vantaði bara einmennings ýsu. Þetta þótti honum stórfyndið. Verð að muna að nota þetta, einhvern daginn.

"what are you wearing?"

Mig rak í rogastans við að lesa fyrirsögnina "þriðji hver breti talar nakinn í símann" sem kom fram í mbl. um daginn.
Ég velti fyrir mér hver aðferðafræðin er, á bak við þessar niðurstöður. Hvernig hljómar spurningin, og hverjum í ósköpunum datt í hug að spyrja um nekt í þessu samhengi? Er ekki líklegt að fáir hafi tekið þessa spurningu alvarlega og ákveðið að grínast aðeins. Mér finnst það harla ólíklegt að það sé þjóðarhreyfing fólks í Bretlandi sem fer úr fötunum til þess að hringja símtal. Eða gengur nakið um heima hjá sér meirihluta dagsins. Mér finnst það ósköp eðlilegt að það komi fyrir að fólk sé nakið þegar síminn hringi, en eins og þetta er sett upp hljómar það eins og fólk fari úr fötunum til þess að hringja.....hver hefur svo sem ekki hlaupið úr sturtunni til að svara í símann, nú eða rúmminu....
Ætli þeir hafi spurt fólk að því hvort það tali í símann á meðan það situr á klósettinu.... Er það ekki spurning sem brennur mikið frekar á okkur...því þar á að draga mörkin....
Nú er komin ný merking á bak þessarar klassísku spurningar í símtölum fólks í bíómyndunum "What are you wearing" (b.t.w. ég hef aldrei verið spurð að þessu).

miðvikudagur, mars 22, 2006

Heilsan

mér líður ílla, ég hélt í gær að ég væri að fá flensu. Reyndar er ég ekki komin með flensuna ennþá, en mér líður samt ílla. Er með beinverki, sem hefur nú komið fyrir mig áður, að ég fengi eingöngu beinverki, ætti að láta athuga þetta. Hausverk er ég líka með, en engann hita eða kvefpest svo ég er í vinnu.

þriðjudagur, mars 21, 2006

Í dag

Mamma er á Kanarí og ég er á bílnum hennar, sem er fínt hann er miklu betri enn minn bíll en samt er það ekki alltaf gott að vera á sjálfskiptum, hmm.
Dagurinn byrjaði ekki glæsilega hjá mér í dag. Því ég dreif mig af stað, fattaði svo að ég þyrfti að dusta snjó af hliðarrúðunni vinstra megin, dreif mig úr bílnum gleymdi alveg að hann var í drive og bíllinn af stað ég hálf út úr bílnum og hurðinn lokaðist ekki, læsingin hafði frosið í nótt og ætlaði ekki að lokast.

Samkvæmt Mbl. er stjörnuspáin mín í dag eftirfarandi:
"Samskipti geta verið snúin. Það eru svo margar nýjar reglur upp á síðkastið. Ekki hafa áhyggjur. Drekinn er eins og alheimsfjarstýring og passar í hvaða aðstæður sem er. Hann getur meira að segja haft áhrift með því að ýta á takka á réttu augnabliki." Mér finnst þetta vera hálfgerð hæðni þar sem ég er að leysa af á skiptiborði þessa dagana. Og þó ég sé bara hálfan daginn í þessu er í nægu að snúast, í gær rauk ég héðan suður í HÍ með umsókn um starf sem ég er soldið spennt fyrir og svo þaðan í Mörkina þar sem ég var á fundi stjórnar Fagdeildar Fl., lokaspretturinn áður en ég er alveg hætt. Og var þar til kl að verða 7. Í dag verður álíka sprettur, fer héðan í prentun að ná í fréttabréf, skutla því á skrifstofuna, svo heim að taka til því móðursystir mín kemur svo kl 2 því mamma bauð mig fram í að hjálpa henni með skattskýrsluna. Að því loknu hvenær sem það verður fer ég svo á skrifstofu Fl. til að vesenast í tölvunni þar.
Á morgun er ég svo eftir hádegi að skrifa texta og umsóknir fyrir Sari. Hmm sem stendur er eins gott að ég er ekki í 100% vinnu.
En þetta fer nú að breytast, ef allt gengur eftir og ég kemst í vinnu og MBA þá mun ég þurfa að segja nei við alla, tek bara að mér smá greiða sem lítinn tíma taka.
Reyndar þó ég hafi ákveðið að hætta í öllum stjórnarpakkanum þá fékk ég þá hugmynd í gær og bauð mig fram í að skrásetja bókasafn félagsins og búa til gagnabanka í þeim tilgangi. Ég hef alltaf ætlað mér að kynna mér Access betur, en ég hef þurft verkefni til þess að drífa mig í það. Ég ætla nú samt ekki að vera í þessu í óendanlegan tíma, ég set mér ákveðin mörk í þeim tilgangi.
Ég sef ansi ílla þessa dagana, er alveg drulluþreytt alla daga. Kannski er heilsan aðeins að gefa eftir, það eru allir veikir allstaðar, flensa í gangi allstaðar. Mér er íllt í bakinu sem er nú sjaldnast flensueinkenni en kannski er það bara hreifingarleysið, ekki ólíklegt hmm.

fimmtudagur, mars 16, 2006

Stjörnuspekisálfræði??

Ekki er ég alveg búin að ljúka mér af um þetta málefni.

Nú er ég búin að kýkja á viðtalið í heild sinni á netinu. Ég er líka búin að skoða heimasíðu hennar. Þar kemur fram að hún hafi BA úr félagsvísindadeild HÍ, en ekki hvaða grein hún hafi lagt stund á. Og síðar lagði hún stund á nám við "The Centre For Psychological Astrology? Það er sem sagt þaðan sem hugtakið kemur.
Við nánari skoðun virðist þetta vera ákveðin stefna í stjörnuspeki.

Að því að mér sýnist er annars vegar til stjörnuspeki sem spáir í framtíð manna, það er þessi sem við þekkjum úr dagblöðunum. Og svo hins vegar er þessi stefna sem einbeitir sér að því skoða persónuleika hvers og eins. Sem er gott og vel í sjálfu sér, ég væri hlynntari því að þetta kallaðist Persónuleikastjörnuspeki heldur en að Sálfræði sé bendluð við þetta.

Þó svo að þessi stefna hallist að kenningum ákveðins sálfræðings fyrri tíma, Jung....Oftast er greint á milli sálfræðinga og sálkönnuða, þ.e. Freud/Jung grundvölluðu sálkönnun (Psycho analysis),sem kannski telst vera ákveðin stefna innan sálfræðinnar, en í raun eru mjög fáir sem leggja stund á sálfræði sem hallast undir hana því er gerður greinarmunur á könnun og fræðum.

Mér er hreinlega illa við að einhver kalli sig sálfræðing þó með öðrum formerkjum sé, án þess að hafa gengið í viðurkenndan háskóla í fjölda ára til að nema fræðin á grundvelli vísindanna.

Ég kýkti á heimasíðu skólans og virtist þetta nám byggjast upp á eins dags og helgarnámskeiðum einhverskonar.

Ég hef ekki mikið fylgst með íslandi í bítið eða íslandi í dag, hef svona fylgst með með öðru auganu eða eyranu. En nú sýnist mér í fljótu bragði sem að munurinn sé í sjálfu sér sá að í bítið sé gagnrýnislaus magasín þáttur með léttu yfirbragði á meðan í dag taki á málunum með meiri gagnrýni. Kannski ég fari að skoða þetta betur.

Sálfræðistjörnuspeki

Áður en ég fór í vinnu í morgun (afleysing á skiptiborði HS) heyrði ég aðeins í Íslandi í bítið. Ég náði ekki að hlusta á allt viðtalið en það var við konu sem vann við sálfræðistjörnuspeki. Ég leyfi mér aðeins að efast um að konan hafi lagt stund á nám í sálfræði. Ég náði ekki að fylgjast með þessu til enda, ég á eftir á kýkja á þetta á netinu svo ég geti tjáð mig um þetta að viti.

Að mínu viti er sálfræði og stjörnuspeki hreinasta þversögn við hvort annað. Samkvæmt öllum vísindum sálfræðinnar mun stjörnuspeki tilheyra hindurvitnum og hjátrú og öllum þeim er lagt hafa raunverulega stund á sálfræði ætti því að bregða við það að sálfræði sé skeytt saman við stjörnuspeki.

Það þýðir ekki að ég líti ekki í stjörnuspánna mína daglega. En það er af og frá að fræðigrein þar sem vísindaleg vinnubrögð eru viðhöfð eigi samleið með einhverju sem byggist á trú frekar en vísindalegum vinnubrögðum.

mánudagur, mars 13, 2006

Skattaskýrsla

Það er orðið svo mikið auðveldara að gera skattaskýrsluna nú orðið þegar allt er meira og minna forskráð. Nema ef maður er ekki að passa upp á pappírana sína, forskráningin er röng og maður hefur haft tekjur frá mörgum stöðum yfir árið, ef maður passar sig ekki endar maður á því að borga meiri skatt en þörf er á. Ég hélt að allt væri komið og villuprófunin sýndi að engar villur væru, þá skellti ég útreikningnum á og brá allsvakalega við það. Einhverstaðar er skekkja því ég borgaði tekjuskattinn minn og rúmlega það, ég hélt ég ætti að fá endurgreitt, en nei ekkert slíkt nú verð ég að fara yfir allt sem er forskráð og finna villuna.
þetta er ekki eins auðvelt og þetta ætti að vera.
kv.
Auður

fimmtudagur, mars 09, 2006

Svartur dagur

Ég hafði hugsað mér að nýta daginn vel, koma mörgu í verk helst til þess að ég hugsaði ekki of mikið. En ég held varla að mér verði mikið úr verki í dag. Það er nefnilega nákvæmlega 1 ár í dag síðan elskuleg systir mín lést. Ég er með tárin í augunum og get ekki séð að ég geri mikið af viti í dag.
En ég verð örugglega að minna bræður mína á daginn svo þeir hafi samband við mömmu og Ingólf. Þeir muna þetta örugglega ekki á sjálfsdáðum.
Ég pantaði blóm á Interflora á netinu til að senda til Svíþjóðar, þá fær hún blóm frá okkur í dag.
Á morgun er nýr dagur, vonandi............

Leyndir hæfileikar, ég sem hélt þetta vera augljóst, hmmm

Your Hidden Talent

You have the power to persuade and influence others.
You're the type of person who can turn a whole room around.
The potential for great leadership is there, as long as you don't abuse it.
Always remember, you have a lot more power over people than you might think!

þriðjudagur, mars 07, 2006

Framtíðarplön!!??

Jæja ég get ekki djöflast áfram í þessum hjólförum, ég verð að koma einhverju skikki á líf mitt. Atvinnuleit að eilífu er ekki að gera sig ég verð að taka þetta í eigin hendur á einhvern hátt. Og það sem ég kann betur en að láta ráða mig í áhugaverða vinnu er að fara í skóla. Ég hélt að M.A. myndi tryggja mér vinnu einhverstaðar en það gerir það ekki, alla vega ekki M.A. í félagsfræði.
Mér finnst ég komin í hálfgerða sjálfheldu eftir u.þ.b 5 ára atvinnuleit meira og minna. Ég er nýkomin af námskeiði í verkefnastjórnun, sem sagt praktískt námskeið sem vonandi gerir mann aðeins gjaldgengari í störf verkefnastjóra.
Ég held ég láti ekki þar við sitja, ég er að íhuga að taka MBA nám með vinnu, sem ég er enn að leita að. Þar fæ ég þennann praktíska vinkill á námsferilinn, viðskiptatengt. Bölvanlegt en ég neyðist til láta undan markaðnum, atvinnumarkaðurinn krefst viðskipta eða verkfræðimenntunar af svo til öllum. Mamma stakk upp á að ég færi að ná mér í kennsluréttindi, ég held nú síður (ekki taka þessu ílla elsku kennarar í mínu umhverfi) ég vil ekki fara aftur í skóla til þess eins að vera í láglaunastarfi (þ.e. miðað við menntunarstig í það minnsta), maður þarf að vera með hugsjónina, mín er ekki á því sviði.

Ég hef nú samt velt því fyrir mér, ég hef líka velt fyrir mér: þýðingafræði,MPA(meistaranám í stjórnsýslu), MPM (meistaranám í verkefnastjórnun), meistaranám í Fjölmiðlafræði, félagsráðgjöf, náms og starfsráðgjöf.

Ég er búin að tapa nægum tíma vegna eigin aumingjaskaps, búin að vera láglauna meir en nógu lengi. Eina leiðin til að fara að fá uppskeru er að ráðast á garðinn þar sem hann er hæstur, stefna á hálaunastörfin með því að greiða himinhá skólagjöld fyrir 2 ára nám fyrir viðbótargráðu við M.A. gráðuna mína, þá yrði ég með MBA.MA eða MAmba.

Ég er í dag að vinna í afleysingu á skiptiborðinu í HS, mér leiðist það alveg afskaplega, en það er bara 1/2 dagur svo ég lifi það af. En sé fram á að vera í þessari afleysingu í 2 vikur frá 15 Mars. Ágætt að hafa smá vinnu því ég er ekki skráð í neina ferð á þeim tíma. Vonandi nægur hvati til að hamast meir í atvinnuleitinni.

Nú verð ég að láta hlutina gerast því ekki gerast þeir sjálfkrafa.

Motto dagsins er ekki nýtt á nálinni hjá mér en á sérlega vel við.
Action instead of Reaction ég hef ekki getað þýtt þetta á sómasamlegan hátt sjálf svo þetta verður að vera á ensku.