mánudagur, mars 10, 2003

Jæja nú er ég flutt loksins. Ekki það að ég sé búin að koma mér fyrir langt því frá. Það er líka eitthvað af smádóti eftir hjá mömmu. Ég gisti á laug. fyrstu nóttina í nýja slotinu, því miður ekki sérlega vel. Ástæðan var sú að ekki náðist að flytja rúmið á laugardag svo ég svaf fyrst á vindsæng og var það ekki þæginlegt að vakna við hverja hreyfingu vegna þess að loftið færðist til undir manni. En svona fer hjátrúin með mann, laugardagur til lukku, maður skal gista fyrstu nóttina á laugardegi. Mér var svo sagt frá einu sem var alveg nýtt fyrir mér í sambandi við slíka hjátrú að maður ætti að telja rúðurnar í nýja húsnæðinu áður en maður færi að sofa. Ég þekkti það að maður ætti að reyna að muna það sem mann dreymdi fyrstu nóttina. Sem ég og gerði, mig dreymdi marga drauma, enda alltaf að ranka við mér, þ.a.l. meðvituð um draumana sem ég annars hefði ekki verið.
Nema hvað að einhvern tímann í byrjun náttar dreymdi mig Ingibjörgu systir og Ingólf mág minn, ekki að furða var að kveðja þau rétt áður en ég fór heim að sofa. Svo kom eitt og annað sem ég gleymdi alltaf jafnóðum.
Undir morgun var mig farið að dreyma í sjónvarpsþáttum. Þ.e. Charmed kom þarna mjög sterkt inn í. Sem sagt 3 systur , Nornir, að hluta til beint upp úr þáttunum, hluta til ég. Ekki nákvæmlega sömu persónur en að mestu leiti eins og í þáttunum. Weird!!
Ég veit ekki hvaðan þetta kom, hef lítið horft á Tv undanfarið og hef aldrei fylgst með þessum þætti bara kýkt öðru hvoru á hann.
Allavega var aðalþemað í þessum draumi það að allar 3 verða óléttar sömu nóttina eftir sama gæjann þessi góði/vondi. Einhverja hluta vegna eru þær á flótta, taka á flug. Geta ekki flogið í supermann stíl þ.e. lárétt heldur bara lóðrétt vegna bumbunnar. Þetta er allt sem ég man eftir úr þessum draumi. Ég vil ekki einu sinni reyna að finna einhverja merkingu í þessu.
Ég ætlaði að fara í ræktina með Sigrúnu Jóns kl.6 í morgun en ekki hringdi hún, þannig að það datt upp fyrir. Hún hafði andvökunótt og hætti þá við að fara í ræktina.

Engin ummæli: