miðvikudagur, mars 12, 2003

Ég fór með hóp af fólki sem ég útskrifaðist með úr Leiðsöguskólanum fyrir ári að skoða Norðurál í Hvalfirði í gærkveldi. Þetta var áhugavert að sjá einu sinni, en ég er nú samt ekki sannfærð um að öll okkar framtíð liggi í álbræðslunni einni saman. Í það minnsta ætti ég nú að geta gert túristum grein fyrir því hvað um er að ræða. Burtséð frá mínum skoðunum og antipati á stóriðju almennt.
Ég ætlaði svo að fara í ræktina kl. 6 í morgun, en þar sem dóttir hennar Sigrúnar var veik þá komst hún ekki og ég bara skrapp aftur upp í rúm og sofnaði aftur. Svaf þá yfir mig. Well what else is new. Ég er nokkuð viss um að svefnörðugleikar mínir undanfarnar nætur eiga rætur sínar til kaffineyslu á kvöldin að rekja. Nú fer ég að passa mig á kaffineyslu eftir klukkan 8 á kvöldin. Það er líklegasta skýringin á því af hverju mér tekst ekki að sofna þó ég sé þreytt og allt annað stemmi. Það er þá eitt af því sem ég ætla að gera átak í, á næstu vikum.
Annars er ég þess utan nokkuð sátt, soldið langþreytt. Langar til að liggja einfaldlega í leti og gera ekki neitt. En það er ekki alveg á næstunni.

Engin ummæli: