miðvikudagur, desember 31, 2003

Ég er að spá í árið sem er framundan um leið og ég hugsa til þess sem er að líða.
Óljós áramótaheit skulu ekki vera strengd þetta árið. Nú verða raunhæf markmið sett og þeim náð!!
Það eru mörg markmiðin sem mig langar til að ná en fyrst vil ég setja þau niður á blað á skipulegan hátt.
Gleðilegt nýtt ár!!!

mánudagur, desember 29, 2003

Það er blindbylur úti og er búinn að vera í allann dag. Hef ekki lennt í svona veðri í mörg ár. Soldið spennandi. Fór á bílnum hennar Mömmu og átti að skila honum í morgun en veðrið var of vont til þess. Svo ég þarf að moka hann út núna og skutla honum niður á Skúlagötu til hennar þegar ég er búin að vinna. Ég hef ekki lennt í því að moka bíl út síðan ég veit ekki hvenær.
Fór á djammið á fös og laug núna um helgina. Það er helv. mikið fyrir mig nú orðið. var gaman.
Endaði á að gamna mér með einum sem var ekki vel til þess fallinn. Má ekki drekka svona mikið, alla vega var ég ekki þunn.

miðvikudagur, desember 24, 2003

GLEÐILEG JÓL !! <;0)

Úti er allt hvítt, drauma jólaveðrið. Eða næstum því, ef það væri aðeins lygnara.
Ég var náttúrulega á spaninu í allt gærkvöld, en náði samt ekki að klára allt. Verð því að hlaupa af stað eftir vinnu og ná í eina bók sem ég var búin að láta taka frá fyrir mig.

Peace, love and happyness!!

mánudagur, desember 22, 2003

Hef ekki verið dugleg að skrifa í desember.
Enginn sérstök ástæða fyrir því svo sem nema þessi venjulegu aðventuannir og vinnan náttúrulega.
Ekkert spes varð úr neinum af þessum deitum hjá mér. Legg það allt á ís þar til eftir áramót.
Líka atvinnuleitina og öll önnur góð fyrirheit og áætlanir.

Stundum tekur hugsun hjá mér allt aðra stefnu en ætlað var. Ég var í heimsókn um daginn og yfir kvöldkaffinu og jólasmákökunum, vorum við að tala um þá staðreynd lífsins að alltaf skuli maður finna frábærustu hlutina þegar maður hefur ekki efni á þeim.
Ég var að reyna að nota annað hvort orðatiltækið "að eiga ekki krónu með gati" eða "að eiga ekki bót fyrir boruna á sér" og út úr mér vellur "þegar maður á ekki krónu fyrir gatið á sér".
hi hi sumir eru ekki enn hættir að hlæja.

þriðjudagur, desember 09, 2003

Sá fína mynd í gær Purely Belter.

mánudagur, desember 08, 2003

Sejum svo að fólk sé að hittast í annað skiptið, date 2. Video heima hjá honum. Konan á að velja myndina, hann segir bara eitthvað létt en mikið er ekki vitað um hvað hann hefur séð áður né á hverju hann hefur áhuga. Þá verður frú að vera vandlát á myndina sem hún kemur með. Þetta gæti útlagst sem nokkurskonar persónleika próf. Smekkur fólks fyrir kvikmyndum getur sagt manni heilmikið, eitthvað í léttari kantinum. Já gamanmyndir eru oftast nær einhverskonar, rómantík kómedía. Sem gefur of mikið til kynna er ekki hentugt upphafi kynna.
Þá eru það heimskulegu heimskupörin, sem segja lítið um mann, er gæti verið túlkað sem innsýn í gáfnafarið. Ef maður hefur kannski alltof gaman að einhverjum bandarískum skólavitleysum.
Þá er úr vöndu að ráða, Það er vonandi að leigan hafi skemmtilegt úrval af viti.

fimmtudagur, desember 04, 2003

Sauður get ég verið, ég ´fór að bræða kertavax fyrir kerti í gærkvöldi og var svo klaufaleg að u.þ.b 1/2 af bræddu kertavaxi helltist niður og út um allt.
Þvílíkt vesen, eyddi stórum part kvöldisins í að hreinsa þetta af gólfinu og innréttingunni.
Sleppti að hreinsa fötin mín, það þarf ég að gera þegar ég kem heim. Lovely, ég set hérmeð allt kertavesen í bið þar til eftir jól.

miðvikudagur, desember 03, 2003

Brrrr, það er ansi mikið rok úti og það er svo gott að vera komin heim og geta haft það bara nokkuð huggó heima. Kveikja á kertum og elda (til tilbreytingar).
Nenni ekki að taka til eins og planið var fyrir þetta kvöldið.

mánudagur, desember 01, 2003

Helgin viðburðarík svona miðað við þær flestar hjá mér. Sat heima yfir sjónvarpinu á föstudag. Fór og keypti mér jólakjól á laugardag fór svo á Jólahlaðborð með saumaklúbbnum.
Blind date á Ara Í ögri í gærkvöldi.
Mjög myndarlegur maður 5 árum yngri en ég. Okkur gekk ágætlega að tala saman, ekki eins auðveldlega og það gekk þegar ég hitti hinn á fimmtudag.
Þetta hófst nú samt allt saman, ég spurði og hann svaraði, það er pirrandi. Honum tókst mjög vel að tala um sjálfan sig en gat ekki spurt mig þess sama.