miðvikudagur, september 17, 2003

Mér sýnist Linda vera orðin örvæntingafull, nei segi svona. Hún er í það minnsta að kvarta yfir því að allir aðrir séu hættir að blogga. Ég veit ekki hvort ég sé sá eða sú sem átti að taka þetta til sín en ég geri það nú.
Ég er núna annan daginn í röð í þann veginn að verða veik. Er með byrjunareinkenni flensunnar sem allir hafa fengið hérna. Virðist ekki ætla vera meira en smá byrjunareinkenni. Lucky me.
Nú er bara vika í að Larissa hverfi aftur á braut. Uhu uhu hu. :0(
Ég er að hugsa um að halda smá Brunch um helgina fyrir hana, bjóða líka Sollu, Gyðu og Júllu. Kannski fleiri kerlingum!!
Mútta er í Svíþjóð og er það mjög fínt, ég hef getað verið á bílnum hennar allann tímann. Maður er mjög fljótur að venja sig á þennan óþarfa og keyrir stystu vegaleiðir, sick.

miðvikudagur, september 10, 2003

Ég fór með Larissu á breska bíódaga í Háskólabíói í gærkvöldi. Við sáum myndina The Magdalena Sisters og má segja að ég mæli með þessari mynd.
Hún er mjög áhrifamikil og greinir frá raunverulegum mannlegum örlögum. Hún er sannsöguleg og fjallar um kaþólsk upptökuheimili á írlandi fyrir ungar konur sem eru á skjön við fróma kaþólska heimsmynd umhverfisins. Hvort sem þær hafi orðið óléttar, verið nauðgað eða voru einfaldlega of fallegar. S.s. fyrirbyggjandi áður en þær freista karlmanna, ef skaðinn er ekki skeður.
Að sjálfsöðgðu er dvölin sérlega erfið, nunnurnar eru reglu- og refsiglaðar. Veiklyndasta og einfaldasta stúlkan er misnotuð kynferðislega af prestinum. Vonin um að komast í burtu er það eina sem heldur flestum gangandi en margar hverjar komust aldrei í burtu og eyddu heilli mannsævi í þrældómi fyrir brot sitt.
Það er ef enginn fjölskyldumeðlimur fór fram á að þær yrðu látnar lausar. Í langflestum tilvikum snýr fjölskyldan bakinu við stúlkunni sem bakar þeim skömm. Afneitar henni og þar með eru örlögin innsilgluð, dvöl hjá Magdalenu systrunum um aldur og æfi. Hryllingur um fangelsun án dóms og laga sem viðgekkst til 1996 á Írlandi.

miðvikudagur, september 03, 2003

Ég er svo þreytt, ég hef farið of seint að sofa undanfarið. Ég verð að fara snemma að sofa í kvöld. Hef staðið mig ágætlega í að mæta á skikkanlegum tíma í vinnuna, undanfarna daga. En betur má ef duga skal.
Horfði á Sódómu með Larissu á video í gær. Frábært, þvílík della. Sem betur fer hefur þessi mynd ekki elst of illa. Er samt fyndin, kannski vegna þess að hún er bara della. Er ekki bundin við neinn raunveruleika sem maður þekkir.
Nema hvað að það fóru samt af stað ákveðnar upprifjunartilraunir. Við fórum allt í einu að pæla í skemmtistöðunum sem voru í den. Út frá lókalnum sem myndin á sér stað á. For your information nokkur nöfn sem poppuðu upp við þessa heilabúsæfingu:
Pan (pan hópurinn), Traffik (hvað annað), Keisarinn (lokasprettur staðsetningarinnar) ,Villti tryllti Villi, Casablanca, Broadway ( í Mjódd), uppi og niðri ( eða hvað það nú hét þar sem síðan var Spotlight), Hollywood (við náðum því nú eiginlega ekki)Yfir strikið(sama staðsetning), Evrópa (áður Klúbburinn), Tunglið, Borgin. Nú man ég ekki fleiri í augnarblikinu og svo nokkrir pöbbar sem maður sótti á þessum árum Duus huus, Glaumbar og Gaukurinn, hey einu nöfnin sem eru enn á lífi. Jamm það var nú djamm.he he
Fór til læknis í vikunni til að fá sjúkraþjálfun vegna rófubeinsins, ekki eðlilegt að þetta hafi ekki lagast á þessu rúma hálfa ári.
Er að fara í cranio meðferð út af þessu í kvöld klukkan 8. Svo þarf líka að kýkja á kólesterólið.

þriðjudagur, september 02, 2003

Mikið assgoti getur svona venjulegur vinnudagur verið langur og leiðinlegur.
Kannski er ég bara þunglynd án þess að gera mér grein fyrir því. Ég hélt að ég væri bara í fínu lagi miðað við allt og alla. Nema hvað að mér finnst vinnan vera leiðinlegri en vanalega auk þess sem að flestir þeir sem mér finnast pínu leiðinlegir eru að fara meir í taugarnar á mér en vanalega. Það er nú kannski ekki að furða miðað við allt það sem ekki gengur sinn vanagang í dag. Það er eitthvað að hjá öllum þeim fyrir tækum sem ég átti von á sendingum frá í dag. Bullshitt þetta getur ekki verið tilviljun.
Sem sagt klukkan er 15:50 og það eru 70 mín. þar til ég fæ að fara heim.
"I feel like I am imprisoned" blahh. Ekki taka því þannig að allt sé virkilega ómögulegt, þetta líður hjá ég efast ekki um það. Mér líður betur um leið og vinnan er búin í dag. he he.
Allavega, ég er svo óheppinn að allir sem koma inn í þessa skrifstofu sjá á skjáinn minn, sem veldur því að það var sett út á ótæpilega netnotkun mína í vinnuni. Ekki er ég svo viss um að hún sé eitthvað meiri en annara, en það sést til mín og það er málið. Nú jæja ég tek þá netið af dagskrá í vinnuni og hvað geri ég þá.Þá hef ég enga ástæðu til að vinna verkin eins hratt og áður, þar sem ég verðlaunaði mig fyrir verkin með pínu neti.
Nú hvað annað en skrifa bloggið og allt annað sem þarf í mailfomi. Upplausnin er hvort eð er það há á skjánum að það sér nánast enginn á hann. Þá er ég ekki lengi á viðkomandi síðu í einu.
Ég tek mig saman hvað morgunsvefnin varðar, mæti tímanlega.
Gat loksins borgað flesta reikningana mína sem ég var búin að safna síðusta 1 1/2 mánuð. Ég vil helst ekki lenda aftur í því að geta ekki borgað einn einasta reikning, eðlilegt að skiptast á, að bíða með þetta eða hitt, en allt saman í einu er ekki gaman. Hnútur í hálsi og maga.
En ég á ennþá eftir að fá slatta borgað, fyrir löngu ferðina, þá léttist loks á yfirdrættinum og ég get andað léttar fram að síðustu afborgun í des.

Ég ætla að gefa sjálfri mér trít, fyrir leiðinlegan dag og fara í góða hirðirinn að versla áður en ég fer í mat til mömmu.