föstudagur, desember 16, 2005

Smá leiðrétting

Sorry ég bara vissi ekki að Stuart væri líka meyja, nú hefði ég kannski átt að hlusta betur, þar með er þeirri leiðréttingu komið á framfæri.

þriðjudagur, desember 13, 2005

Stjörnurnar segja

Samkvæmt mbl.is í dag 13/12

SPORÐDREKI 23. október - 21. nóvember
Hæfileikar sporðdrekans eru til reiðu. Nú vantar hann bara réttu áheyrendurna - þá sem búa yfir nægri reynslu til þess að nema blæbrigði snilldarinnar. Meyja og fiskur klappa ákaft fyrir þér.

Réttu áheyrendurnir, rétt er það mig VANTAR þá, fékk eitt neitunarbréfið í viðbót í dag, grr. Eina parið af meyju og fisk sem ég þekki eru ekki hér og ekki væntanlegar hingað á sama tíma á næstunni heldur, verð að láta mér Lindu duga hmmm.


samkvæmt spamadur.is í dag 13/12
Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú fellur fúslega fyrir manneskju um þessar mundir sem skilur þörf þína að stjórna, sættir sig við þig og getur skipst á hlutverkum annað veifið en hvort sem þér líkar það betur eða verr þá er allt sem nú er að gerast á þessari stundu afleiðing af vali þínu úr fortíðinni.


Ég veit ekki hvað ég á að halda um þessi ummæli, enda hægt að lesa ýmislegt í þetta, verst finnst mér þetta með valið úr fortíðinni. Ég er að reyna að skapa mér framtíð, fortíðin er liðin, ekki var hvert eitt val vel valið í fortíðinni. Well what the hell.
Er annars að fara í gegnum tónlist á netinu, að finna saman lög í jólagjafapakkana út.
Gerðist líka svo dugleg að baka í gær, he he .
kv.
Ausi

mánudagur, desember 05, 2005

Efnishyggja

Ég spurði sjálfa mig að því hvernig leitin gæti gengið í dag og dró eftirfarandi spil á spámanninum:
XV - Efnishyggja
Hér gæti líðan þín verið óþægileg á einhvern hátt. Reiði, öfund eða afbrýðisemi gæti átt við hér. Tilfinningar þessar ýta ekki undir góða upplifun og eyðileggja alfarið fyrir jafnvægi sálarinnar.

Ef þér finnst enginn endir vera á þessu ástandi er þér ráðlagt að styrkja sjálfið með því að opna fyrir tilfinningagáttir þínar og losa þig úr prísundinni sem fylgir því sem fyrr er nefnt.

Fortíð þín er saga og framtíðin er gjöf sem þú átt að njóta og gefa þig óskipta/n líðandi stund. Leitaðu innra með þér að lausn sem leiðir þig rétta braut í átt að jafnvægi og sátt við sjálfið. Líðan þín er tímabundin ef þú opnar hugann.


Ég ætti held ég að taka síðustu málsgreinina sérlega til skoðunar.
Annars er smá framhald af röfli síðustu daga um málnotkun.
Mér tókst að fara snemma á fætur í morgun, kl 7 (ertu stolt af mér Linda?). Ég þurfti aðeins að skutlast á bílnum, útvarpið var í gangi. Eitthvað fannst mér leiðinleg umræða í gangi svo ég fór á flakk milli stöðva og sá verulega eftir því. Ég heyrði aðeins í útvarpsþættinum Zúber, þar var talað um smákökusamkeppni, ekki óvenjulegt á þessum árstíma. En það sem hneikslaði mig var að útvarpsmaðurinn vildi fá send "demó" af kökum!!! Hvernig í andskotanum dettur manninum í hug að nota þetta orð?? Þetta var ekki óvart, því hann endurtók ruglið. Jafnvel þó hann hefði sleppt því að nota íslensk orð yfir sýnishorn, kynningareintak eða hvað svo sem hann vildi ekki nota, þá er á ensku aldrei notað demó yfir áþreifanlega hluti, það væri þá "sample". Þetta er afleiðing þess að fólk kann ekkert tungumál almennilega hvorki sitt eigið né það sem það slettir með. hmmppf
Annað dæmi nú í morgunsárið var í þættinum "í bítið", þar sem fegurðardrottningin sem nú er þáttagerðarkona í þessum þætti (ég man ekki nafn hennar)var á ferð um Kóngsins Köben. Þar tók hún íslenskann mann tali sem var að opna nýja verslun í Köben, þar spyr hún hvort "Danmerkurbúar" taki versluninni ekki bara vel. Þvílík þvæla, hvað um "Dani"?