Já Ásta ég var alveg hætt að blogga, ástandið er búið að vera svo súrrealískt í þessu þjóðfélagi að ég átti bara ekki orð yfir það. Síðustu mánuði hef ég, líkt og flestir aðrir bara átt fullt í fangi með að fylgjast með öllu því sem er að koma í ljós. Ég hafði bara hreinlega ekki lyst á að bæta í bakkafullan lækinn af þeim bloggum sem fjallað hafa um ástandið. Hvað er annað hægt að kalla þetta en ástandið.
Reyndar eru afleiðingarnar ekki endilega komnar fram hér á norðvesturlandi, enda kom góðærið aldrei hingað. Maður getur ekki misst það sem maður fékk aldrei í hendurnar. Samt sem áður kemur ástandið verst niður á þeim sem voru hvað viðkvæmastir fyrir, það er það sem ég hef orðið vör við. Hækkun matvælaverðs kemur verst niður á þeim sem minnstar tekjurnar hafa. Og stöðugur neikvæður fréttaflutningur og almennt vonleysi kemur niður á þeim sem eru viðkvæmir fyrir.
Við fengum samt mjög skemmtilega heimsókn hingað á svæðið í lok nóvember, þegar Lára Ómarsdóttir kom og hélt fyrirlestra um það hvernig komast á af á litlu og halda lífsgleðinni í leiðinni. Vinnumálastofnun stóð fyrir þessum fyrirlestrum, þetta var mjög skemmtilegt hjá henni. Það er mikið vit í kreppuráðum Láru sjá www.laraomarsdottir.blogspot.com
Ég er afskaplega sein í jólaundirbúningi og var fyrst í gærkvöldi að klára að ganga frá þeim gjöfum og kortum sem ég sendi, s.s. jólakortin innanlands koma eflaust á þorlák. En það sem fer erlendis verður komið eftir jól geri ég ráð fyrir. Ég hefði alveg efni á að kaupa gjafir og senda út en hef hugsað mér að vera soldið hagsýn og bjó til þær gjafir sem fara út. Líka m.t.t. þess að skemmtilegustu gjafirnar eru þær sem eru heimagerðar. Ég bjó til diska f. þýskaland með tónlist og myndum. Svo prjónaði ég 3 gjafir f. Svíþjóð. Og eina f. þýskaland.
En svo á ég eftir að kaupa allar gjafir sem ég ætlaði að kaupa, fyrir hele familien. Það gerist allt á þorlák.
Ég ætla í bæinn eftir vinnu á morgun mánud. og vera í fríi á Þorlák og milli Jóla og nýárs.
Þannig að núna er ég að vinna til að vera búin að öllu sem gera þarf núna fyrir jól.
Ég óska öllum sem hér lesa og ég hitti hvorki né heyri í, gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Ég óska ykkur öllum hamingju og lukku á komandi ári, að allir fái að búa við góða heilsu, þokkalegt öryggi (s.s. laust við ofbeldi og rán) og að draumar flestra fái að rætast.
sunnudagur, desember 21, 2008
mánudagur, október 06, 2008
Hvert fóru allir heimsins peningar???
jFjandinn hafi það hvað er að gerast?
Mér finnst ástandið líkt og allir heimsins peningar hafi horfið úr umferð!!! Alls staðar er allt að falla og allir bankar á heljarþröm. Þetta er svo einkennilegt allt saman, ég skil ekki baun í þessu öllu saman.

miðvikudagur, október 01, 2008
Blah blah
Ég er soldið pirruð á tæknimálunum hjá mér núna, grrrr..... Ég er með flakkara sem fer ekki í gang lengur. Og þá þarf ég endilega að komast í gögnin sem eru geymd á flakkaranum, mig vantar að komast í allar hljóðbækurnar mínar. Nú og svo gæti ég þurft að kýkja í myndirnar. Ég held nú að diskurinn sjálfur sé í lagi, það er bara rafmagnið sem virkar ekki. Svo ég þarf að láta laga þetta þegar ég kem suður um helgina. Ég hélt ég þyrfti að láta laga gemsan minn en sem betur fer skánaði það svo ég þarf þess ekki. Tölvan og skjárinn í vinnunni eru ekki í lagi, en ég á von á nýrri tölvu á næstunni og get ekki beðið.
Svo er kominn snjór, grr, reyndar er hann farinn nú í lok dags en það er ekki gott að keyra í þessu færi og ekki komin á nagladekkin enn (enda löghlýðin). Annars lítið sem ég hef að segja núna. Fer suður um helgina, planið er að fara í eitt afmæli og redda þessum tölvumálum. Annars lítið planað, kannski sýna íbúðina ef einhver hringir út af henni. Svo ef einhver hefur áhuga á að gera eitthvað þá endilega bjalla í mig....

sunnudagur, september 28, 2008
Haustverkin
Ég er búin að vera á fullu í haustverkunum, fór í réttir í fyrsta sinn. Og hjálpaði til við að draga í dilka. Set mynd sem Ragga tók af mér við þetta tilefni hér inn. Svarta kindin fellur svo vel inn í umhverfið, þ.e. svörtu fötin mín að hún sést varla. Og svipurinn á mér .... ???
Svo hef ég verið dugleg í berjamó, hef búið til fullt af sultu og smávegis saft líka. Verst bara hvað maður er lengi að týna öll þessi ber, því það er svo mikið af þeim. En nú er þetta víst búið. Nú þarf maður að fara hugsa fyrir vetrinum.

sunnudagur, ágúst 31, 2008
Nú fer sumri að halla og ég aftur að skrifa.
Hæ hó
Þið hafið vonandi öll haft það gott í sumar. Sumarið hefur leikið mig ágætlega, verst bara hvað það er fljótt að líða og maður hefur aldrei tíma til að njóta þess almennilega á meðan það er, maður bara hugsar til þess eftir á.
Jú jú ég hef líka notið sumarsins, hef samt ekki getað gert allt sem ég ætlaði að gera, eins og að vera dugleg að fara i sund. Ég hef búið hér f. norðan í 2 ár núna, þetta var 3 sumarið mitt hér og ég hef enn ekki kannað laugarnar hér. Fer bara í sund þegar ég er fyrir sunnan.
Einnig ætlaði ég að vera dugleg að hjóla í sumar, hef bara farið nokkrum sinnum á hjólið og aldrei í langar vegalengdir.
Á móti kemur að ég er að byrja í golfinu og hef farið nokkrum sinnum í golf í sumar. Og þó margir haldi að golf sé nú ekki mikil íþrótt þá fæ ég harðsperrur af þessu. Sérstaklega þegar ég hef farið í kennslu og fæ þá leiðbeiningar með það sem ég geri vitlaust.
Svo ég hef nú hreyft mig eitthvað.
Ég afrekaði að fara í þrjár utanlandsferðir, til Svíþjóðar, Parísar og München. Í Júní fór ég að hitta nýjasta frænda minn hann Milton Perlan Petterson (Nínuson) í Gislaved og Jönköbing í Svíþjóð. Hann er algjör prins og brosir svo fallega. Ég hef hugsað mér að fara aftur út í haust eða á milli jóla og nýárs til að skoða Mini Borgenström (Mögguungi) sem fæðist í haust.
Í Júlí skrapp ég til Parísar með Samtökum Félagsmálastjóra á Íslandi á ráðstefnu Evrópusamtakanna. Þar var ég svo óheppin að veikjast svo illilega af magakveisu að ég lá óvirk helming tímans. Svo ekki var mikið skoðað eða verslað í París. Það var gaman að kýkja á þessa margrómuðu borg, en mér brá illilega við verðlagið. Það og slæmar minningar vegna magakveisu valda því að ég er ekki að flýta mér þangað aftur.
Að lokum fór ég svo í 16 daga ferð til München og Augsburg að heilsa upp á gamla vini og var það mjög gaman. Nauðsynlegt er að hitta fólkið reglulega til að viðhalda vinskapnum, því miður náði ég ekki að hitta alla. Það var því miður svo að ég gat af persónulegum ástæðum ekki bókað þessa ferð með neinum fyrirvara, svo ég gat ekki miðað við það hvenær fólkið hefði tíma. En þrátt fyrir það heppnaðist ferðin vel og ég náði að hitta flesta og gat notið samvistana við vini og bjórinn og vínið hehe. Nánast eins og í gamla daga.
Veðrið var samt ekki eins gott og ég vonaðist til, það var ansi mikið skýjað og rigning. En þó nokkrir góðir sumardagar. Fór ég meðal annars í 4 ára afmæli við Ammersee vatnið í 29 stiga hita og þrumuveðri að lokum. Svo var götuveisla eitt kvöldið í hverfinu hennar Evu í Munchen. Það var gaman, ábreiðu hljómsveitir að spila, borð og bekkir um allt torg og bjórinn flæddi á skikkanlegu verði 3Evrur (annað en 6 Evrurnar í París f. lítið glas). Svo það var sungið með og dansað og spjallað við fólkið á næstu borðum. Mjög skemmtilegt hverfi sem hún býr í.
Og þrátt fyrir gengið þá gat ég nú verslað eitthvað, hélt þó aðeins aftur af mér, keypti bara hluti sem ég vissi að ég þyrfti og myndi nota. Verst hvað ég var léleg að taka myndir.
Hmm hvað annað hefur gerst merkilegt í sumar. Jú ég fór í smá útilegu um verslunarmannahelgina, ég skrapp í einn sólahring í útilegu til Röggu Saumó, þurfti ekki að fá mér tjald þar sem hún er í húsvagni. Ansi hlýtt og gott að lúlla þar, ekki spillti félagsskapurinn fyrir. Svo fékk ég nokkrar heimsóknir í sumar, Björk og Stjáni komu einu sinni í mat þegar þau voru á ferðalagi. Og Inga María kom með alla fjölskylduna í mat eitt kvöldið stuttu seinna þegar þau voru á ferðalagi.
Mamma ætlar að koma í vikunni og Ragga ætlar að koma næstu helgi með krakkana sína í réttir.
Svo voru þó nokkrar helgar í bænum í góðum félagsskap, s.s. fór ég í Sumarsólstöðugöngu, Jónsmessunæturopnun í Húsdýragarðinum, opið hús í Kjós, og nokkur skemmtileg kvöld og nætur til viðbótar... Jú jú heilmikið átti sér stað í sumar.....

þriðjudagur, apríl 29, 2008
Ömmusystir

Jæja þá er maður orðin gamall, að vera orðin ömmusystir áður en manni tekst að verða móðir. Elsta systurdóttir mín í svíþjóð er orðin móðir, hún eignaðist 20 marka dreng á sumardaginn fyrsta. Ég bíð spennt eftir því að fá að skoða drenginn, við mútta munum skreppa út að kýkja á gripinn í maí/júní. Svo þarf ég að fara að skipuleggja frekari sumarfrí. En hér fylgir mynd af prinsinum.
þriðjudagur, apríl 01, 2008
eitt og annað
Ég er ekki dugleg við að skrifa ég veit það, ég lofa engu með framhaldið. Mig hefur ekki langað neitt sérstaklega mikið til þess að skrifa eitt né neitt. Ég hef meiri áhuga á að hitta fólk í persónu nú eða heyrast í símanum. Hvernig er það eiginlega eru allir hættir að nota símann ?
Ég er að hressast eftir ljótt kvef, enda fékk ég pensílín í gær vegna, eyrna-, ennis- og kinnholubólgu.
Já í dag er 1 apríl, ég hef ekki leikið neinn illa, enginn hefur þurft að hlaupa apríl mín vegna. En þessi dagur er nú engu að síður happadagurinn minn þó ekki hafi neitt spes átt sér stað í dag.
Ég hef bara aldrei kunnað að plata fólk þennan dag, þó mig hafi langað það þegar fólk hefur platað mig þennan dag.
Mikið finnst mér jákvætt og merkilegt að sjá íslendinga taka upp á því að mótmæla af krafti dag, eftir dag og almenningur skilur málstað mótmælanda og tekur undir hann. Hingað til hefur meðal íslendingurinn ekki verið duglegur að standa í mótmælum og álitið flesta sem standa í mótmælum einhverra hluta vegna vera einhverskonar vitleysinga. Á móti kemur að tilefnið er mjög íslenskt, það lítur út fyrir að bíllinn og eldsneytið fyrir hann sé íslendingnum mikilvægari, en maturinn sem hann þarf sem eldsneyti fyrir sjálfann sig.
Reyndar er nú upphafið hjá atvinnubílstjórum sem eiga sitt lifibrauð undir akstrinum og kostnaðurinn kemur beint við pyngjuna hjá þeim sem starfa sjálfstætt.
Og ég er ekki sátt sjálf við þessar bensínhækkanir en óttast að það eigi eftir að versna áður en það skánar, ef það skánar.
En á móti kemur finnast mér margir íslendingar eiga það skilið að bensínið hækki, þar sem viðkomandi eru bjálfar í umgengni við verðmætann dropann. Kannist þið ekki líka við þetta fólk sem drepur ekki á bílnum á meðan bensínið er sett á? Liðið sem lætur bílinn vera í gangi á meðan skroppið er einhverstaðar inn? Og allir þeir sem nota stóra bensínháka í innanbæjarsnatt, leggja bíl sínum algjörlega án tillits til umferðarrelgna eða annarra takmarkana umhverfisins, bara að það sé alveg við dyrnar.
Og við erum ansi mörg sem förum á bílnum stuttar vegalengdir sem við gætum vel gengið eða hjólað, ég viðurkenni að ég geri það líka. En á ekki sök á hinu...... Smá hagkvæmni og sparsemi á ekki að vera neikvæður hlutur.

sunnudagur, febrúar 10, 2008
Röfl
Ég hef ekkert sérstakt að segja, skrapp aðeins í vinnuna í dag, annars hefur ekkert sérstakt átt sér stað í dag. Í gær ekki heldur, hef bara verið að dúlla mér heima við og hlustað á hljóðbók á meðan. Hitti á gamlan vin á msn sem ekki var þar inni fyrir, gaman gaman að ná sambandi við gamla vini á ný. Sem sagt soldið verið að spjalla á netinu.
Og svo eru öll þessi febrúarafmæli, daglega þarf maður að senda afmæliskveðjur hehe.

föstudagur, febrúar 08, 2008
Úti eru veður vond
Úff hvað ég er orðin þreytt á þessu endalausa óveðri þennan vetur. Það væri ekki slæmt að skreppa aðeins eitthvað út í sólina, ekki það að ég vonist til að verða brún á hörund. Það er borin von. En þau áhrif sem sólin getur haft á sálarlífið eru óumdeilanleg og ég er farin að þrá sólskin á sálina. Ekki það að ég sé haldin skammdegisþunglyndi, ég bara þarf smá afslöppun.
Mér finnst yfirleitt snjór betri en grámygluleg rigning, en bara ef hann fæst til að vera á sínum stað og ekki fjúkandi út um allt. Ég fór suður síðustu helgi og það var erfitt að keyra báðar leiðir. Á föstudag var hálka og snjóþekja yfir á einum stað, þegar ég mætti vörubíl á fullri ferð þeyttist allur snjórinn upp og ég sá ekki neitt, ég fann hversu hált var þegar ég reyndi að bremsa. Úff, ég keyrði mjög hægt það sem eftir var. Á leiðinni til baka varð ég vör við það hvað gerist þegar maður keyrir of hægt. Ég sá rétt í stikurnar á heiðinni og var allt í einu búin að festa mig í skafli á miðjum vegi, það var ekkert vandamál ég bara bakkaði og hélt áfram. En ég bara sá ekki neitt nema stikuna og sá ekki að það var heill skafl fyrir framan mig. Þreytandi svona ástand, þreytandi að þurfa að keyra svona. Ég er fegin að ég ætlaði ekki neitt þessa helgi. Hefði ekki nennt því. Ég tek enga sjénsa með veðrið eða ástand vega.
Kannski ég fari að plana einhverja utanlandsferð. Aðra en heimsóknina til svíþjóðar í vor.
Finna eitthvað til að hlakka til.
Annars er ég búin að vera dugleg undanfarnar vikur við að hugsa um heilsuna, ég er búin að borða hollt og tek daglega inn lýsi, fjölvítamín, magnesíum og ginkó biloba. Og mér líður mikið betur. Ég hef aldrei getað vanið mig á að taka inn einhver vítamín áður, en til þess að muna eftir að taka þetta inn daglega geymi ég allt dótið við hliðina á kaffinu. Og það virkar!!

mánudagur, janúar 21, 2008
föstudagur, janúar 18, 2008
Akið varlega í færðinni !!!!
Úff ég var heldur betur heppin í dag. Ég keyrði útaf og lennti sem betur fer í snævifylltum skurði.
Ég var á leiðinni á Skagaströnd og er vegurinn þangað soldið mjór. Ég mætti bíl sem mér fannst vera soldið nálægur miðju og ef ég man rétt á þó nokkrum hraða. Ég vék aðeins til að hann kæmi ekki á mig og þar sem enginn vegakanntur er á þessum stað var ekki við neitt ráðið og ég rann beina leið út í skurðinn. Ég vissi að lendinginn yrði mjúk og var því ekki í neinu panikástandi þó ég hefði enga stjórn á bílnum lengur. Ég hugsaði bara hvernig á ég að koma bílnum út úr þessu. Ég hélt í alvöru að ég gæti kannski bara keyrt upp á veg aftur en því miður bíllinn var pikkfastur enda djúpur skurður undir öllum þessum snjó. Það var allt í lagi með mig, það komu margir að á næstu mínúntum og var reynt að ná mér upp með því að draga bílinn upp með 2 jeppum samtímis en ekkert gerðist, vegurinn var of háll. Ég fékk far á Blönduós og fékk upplýsingar um hvern væri best að hringja í til að fá aðstoð. Pantaði svo trukk með krana til að toga mig upp á veg. Það gekk eftir og virðist bíllinn alveg óskemmdur en ég ætla nú samt að láta líta á hann fljótlega. Þarf hvort eð er að láta laga lásinn á skottinu.
Ég fann ekki fyrir neinu strax á eftir en nú þegar taugarnar ná að slaka aðeins á þá finn ég hvað ég spenntist mikið upp þó ég hafi fundist ég vera alveg slök yfir þessu þegar þetta stóð yfir. Ég var sem betur fer ekki að reyna að stýra á móti þegar ég fann að dekkið rann útaf heldur lét bílinn bara ráða ferð, líklega hefði ég velt hefði ég gert það. Ég var heldur ekki á miklum hraða það hefur eflaust bjargað miklu. Mikið fannst mér ég vera lélegur og klaufalegur ökumaður þegar ég var lennt, en það þarf ekki endilega að vera að ég hafi gert eitthvað rangt. Það gerist margt í hálkunni sem ekki verður ráðið við svo ég segi bara farið varlega í færðinni.
Eftirá að hyggja sé ég eftir að hafa ekki haft vit á því að taka myndir af þessu, fyrst maður er með myndavél í símanum.