föstudagur, nóvember 28, 2003

Fór á blind date í gær, stórfínt, líkar hann vel.

Fer á annað á sunnudag líka.
Mín bara orðin karlaóð??
Fór á kaffihúsadeit í gær, alveg stórfínt.
Leist mjög vel á drenginn, 33, háskólamenntaður, greindur, gaman að tala við hann og sprorðdreki eins og ég líka. Á íbúð og er barnlaus. Getur varla verið betra, sjáum nú til.
Svo er annað svona deit á sunnudag, hvað er að gerast ??

fimmtudagur, nóvember 27, 2003

blind date í kvöld, reyndar búin að sjá mynd af honum en þetta er samt hálf stressandi.
jamm sjáum til

miðvikudagur, nóvember 26, 2003

Ég er svo stressuð og upptjúnnuð, að það er alveg að fara með mig.
Vinnan er mjög stressandi þessa dagana, þetta er sá tími og lagast ekki aftur fyrr en í febrúar.
Í dag var svo líka annað að pirra mig og það var veitingahúsið Argentína.
Hið árlega jólahlaðborð saumaklúbbsins míns ætlaði þangað á laugardaginn var. Við pöntuðum borð í september og héldum að við værum örruggar með borð. En nei, þegar ég svo hringi til að láta vita að okkur fækkaði úr 13 manna hóp í 10 manna hóp kemur í ljós að borðapöntunin okkar var týnd.
Og nú er málið að reyna að redda þessu einhvern veginn á þann hátt að það henti öllum. Sem er stressandi, hringja í alla og reyna að finna út úr því hvernig, hvar og blahhh. Garg. Ég vildi gjarnan losa um einhverja kergju við fólkið þarna á Argentínu. En yfirþjónninn (hún, nota bene) var bara svo næs í símann að það var ekki hægt að vera algjört bitch við hana.
Jæja nú fer ég á hlaupunum heim í gegnum snjóinn og reyni að losa mig við pirringin með því að þrífa heima hjá mér.

þriðjudagur, nóvember 25, 2003

og annað á sunnudag, christ hvað er ég að gera ?

mánudagur, nóvember 24, 2003

fer á kaffihúsadeit á fimmtud. kannski annað í vikunni líka.

miðvikudagur, nóvember 19, 2003

Argg, maður getur stundum verið úr hófi fram klaufalegur.
Ákvað í gær að taka af mér hárin á efri vörinni með vaxi.
Mæti í vinnuna í morgun eins og ég hafi verið á svaka sjens og var spurð að því hvað ég hafi verið að gera því ég líti út eins og ég sé skeggrifinn.
Já einmitt, ég er það í annari merkingu en ætlaðri. Ég var sem sagt að rífa af mér skeggið, ég hefði líklega átt að láta þetta vera þarna áfram. Enda ekki sjáanlegt nema við ákv. birtuskilyrði. Mér fannst samt keyra um þverbak þegar mamma sá þetta á mér, þá hlyti þetta að vera orðið meira áberandi því hún er hálf sjónlaus eiginlega.
Bólgan hlytur að hjaðna þegar líður á daginn.

þriðjudagur, nóvember 18, 2003

Það er heilmikið að gera hjá mér núna´. Mála fyrir mömmu og heilmikil yfirvinna. Mjög fínt þá get ég kannski horfst í augu við yfirlitið frá bankanum um næstu mánaðarmót. En ég verð ansi þreytt á því í leiðinni og þarf smá tíma fyrir mig.

mánudagur, nóvember 17, 2003

Feel neglected and forgotten
Vil ekki þurfa að minna fólk á mig, en hefði þótt vænt um nokkrar línur í maili. Eða bara netkort, þó að afmælið mitt gleymist, þá má senda slíkt einhverjum dögum síðar. Það þurfa ekki allir að hringja í mann, þó það væri gaman.

föstudagur, nóvember 14, 2003

Ég hef ekki verið að skrifa neitt hér, í heldur langan tíma.
Hélt upp á afmælið á einfaldan hátt, mútta og bræðurnir komu í kaffi. Saumó kom í gær. Fékk færri símtöl en ég átti von á, kannski er það ekki meir en ég átti skilið. Ég er sjálf ekki alltaf sú duglegasta að halda sambendi.
Nú fer ég að koma þessari tölvu minni loksins á netið. Búin að fá staðfestingu á grun mínum að það hefði ekki verið neitt módem hvort eð var. Fæ nýtt. Fer að koma þessu í gang.