Nú er að setja sig í stellingar og skrifa eitthvað þó ekki sé maður endilega í stuði fyrir það, það þýðir ekki að ásaka aðra um að skrifa ekki þegar maður stendur sig ekki sjálfur.
Ég fór í 2 vikna sumarfrí og var á ferðalagi með vinum frá Þýskalandi og má segja að við höfum farið vítt og breitt, nánast allt nema Vestmannaeyjar, firðina og hálendið.
Við gerðum ýmislegt skemmtilegt eins og að fara í siglingu um Breiðafjörð, Flúðasiglingar, Snjósleðaferð og náttúrulega í siglingu um Jökulsárlón. Í þessari ferð urðu til hreint ótrúlega flottar myndir yfir 2000 stykki. Mig langar alveg einstaklega mikið í góða myndavél, ég þarf að afla mér upplýsinga um slík tæki til að vita hvað ég vil. Annars fer að verða minni tími fyrir svoleiðis þegar ég fer að byrja í náminu nú í september. Jæja ég sé til hvernig gengur.
fimmtudagur, ágúst 02, 2007
Upptaka frá færeyjum
Grr var búin að gera fína færslu sem hvarf þegar ég ætlaði að bæta mynd inn á færsluna. En jæja, ég var að hlusta á upptöku frá tónleikum okkar á ráðhúströppunum í færeyjum. Ég verð að segja að þetta tókst bara ágætlega upp þrátt fyrir allar truflanirnar sem ég var alveg búin að gleyma. Fyrst var það fjöllistahópur með eldgleypi og ásláttarhljóðfæri hinu megin við götuna sem truflaði, það heyrist í þeim á upptökunni. Svo kom barasta heil lúðrasveit niður götuna, það var bara ekki hægt að syngja yfir það svo það varð að gera hlé. Þetta var meinfyndið, okkur fannst það hins vegar ekki fyndið að hann skyldi halda að við værum í fiskverkakvenna búningi en ekki hjúkkubúningi. Ég bara skil þetta ekki, hvítir sloppar og kappar, hver skilur ekki hvað það þýðir. En gaman var þetta, ég reyni að skella einni mynd inn með.
miðvikudagur, ágúst 01, 2007
Færeyjar
Jæja þá er maður komin aftur í heim í heiðardalinn eftir að hafa verið á Ólafsvökunni í Færeyjum. Það var einfaldlega æðislega gaman í þessari ferð. Mikið hlegið og mikið gaman, mikil stemmning í hópnum. Ég skemmti mér konunglega þrátt fyrir kvef og magapest að auki.