Nú er nokkur tími liðinn síðan ég skrifaði hér síðast, á morgun fæ ég loksins að skrifa undir kaupsamningin að fyrstu íbúð minni. Sjálfri mér sé lof, (guðleysingi eins og ég ætti nú ekki alltaf að lofa guð, en það er bara svo fast í málinu) ég er ósköp fegin að þetta sé nú allt að sigla í höfn. En það kemur sér samt illa að þetta var ekki komið fyrir síðustu helgi, því ég verð bara að gera allt í þessari viku. Ég er soldið í tímaskorti þessa vikuna og næstu helgi er ég upptekin í sumarbústað.
Júhú, ég verð bara að fara strax eftir vinnu á morgun að kaupa málningu og að byrja á að þrífa og spasla. Fá svo bræðurna til að mála á miðvdkv. og ég svo eftir kl. 10. Á fimmtud. verð ég svo að ná í húsgögnin og dótið til Ástu. Svo verð ég að vera tilbúin til ferðalaga strax á fimmtudkv. því við förum bara strax eftir vinnu á föstud. Svo í vikunni þar á eftir get ég svo flutt restina yfir smám saman.
Svo að ég kvarti nú svolítið og kveini, þá er þetta búið að vera ansi hreint leiðinlegur og erfiður dagur. Tölvuvesen og leiðindafólk sem er með hálfan heila að mínu mati.
Ég hef bara verið svo pirruð og örg í allann dag að það hálfa hefði verið nóg.
Ég ætla ekki að taka það skap með mér heim, ég á skilið frí frá leiðindum dagsins þegar ég er farin heim úr vinnuni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli