Góð kjör í fjölbreyttu starfi
Þetta er sú auglýsing sem helst vakti athygli mína,
Upplýsingastjóri BHM
BHM (www.bhm.is) er heildarsamtök 24ra stéttarfélaga háskólamanna og reka samtökin einnig orlofssjóð, starfsmenntunarsjóð, sjúkrasjóð og styrktarsjóð með sjálfstæðum stjórnum. Á skrifstofunni starfa nú framkvæmdarstjóri, fjármála- og rekstrarstjóri, bókari, deildarstjóri styrkveitinga, orlofs- og þjónustufulltrúi og upplýsingastjóri.
Bandalag háskólamanna (BHM) auglýsir laust til umsóknar starf upplýsingastjóra sem heyrir undir framkvæmdarstjóra. Starfið er fjölbreytilegt og krefjandi og felur einkum í sér
· upplýsingamiðlun og
· upplýsingastjórnun.
Upplýsingamiðlun
Starf upplýsingastjóra felur í sér miðlun upplýsinga - innan samtakanna og utan - um starf og stefnu bandalagsins og starfsemi sjóðanna. Helstu miðlar sem upplýsingastjóri hefur umsjón með, auk námskeiða, eru:
· heimasíða
· vefrit sem nú kemur út mánaðarlega og
· BHM-tíðindi sem nú koma út 3svar á ári
· auk útgáfu á trúnaðarmannahandbók og bæklingum.
Upplýsingastjórnun
Upplýsingastjóri hefur einnig umsjón með stjórnun upplýsinga, þ.m.t. vörslu og skráningu gagna í samræmi við auknar kröfur um verndun persónuupplýsinga.
Hæfisskilyrði
Áskilið er háskólapróf og reynsla sem nýtist í starfi, svo og góð tölvukunnátta. Hlutaðeigandi þarf að hafa til að bera áhuga, frumkvæði, ritfærni, sjálfstæði og samskiptahæfileika.
Um kjör fer eftir kjarasamningi hlutaðeigandi stéttarfélags háskólamanna við fjármálaráðherra en starfið raðast í launaramma C. Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst nk. og er þess vænst að upplýsingastjóri hefji störf sem fyrst. Skriflegar umsóknir berist til Bandalags háskólamanna, Lágmúla 7, 108 Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Gísli Tryggvason framkvæmdarstjóri í síma 581 20 90 # 4 eða tölvupósti gt@bhm.is. Öllum umsóknum verður svarað bréflega þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli