fimmtudagur, júní 05, 2003

Ég sá þáttinn Fólk með Sirrý í gær og er það yfirleitt eitthvða sem ég svona lít á með öðru. Þátturinn í gær var hins vegar nokkuð skemmtilegur. Efni þáttarins var frístundir einhleypra!!
Nokkrar manneskjur voru boðnar í spjall í þættinum, í miðpunkti voru 2 konur og einn maður.
Að mér læddist sá grunur að maðurinn sem valinn var til spjalls í þættinum hefði verið valin með það í huga að varpa miður góðu ljósi á karlkynið. Því hann gat engan veginn tjáð sig um það hvernig það væri að vera einhleypur og um kvenkynið yfirhöfuð án þess að það kæmi ein út sem hreinasta karlremba í vörn. Og þess var ekki þörf, þær létu enginn orð um það falla hversu ómögulegt karlkynið væri, en það eina sem hann hafði að segja var að íslenskar konur hefðu farið fram úr sjálfum sér í kvenréttindunum og væru bara að hefna sín, að þær væru of sterkar og sjálfstæðar. Ekki vegna þess að hann væri ennþá einhleypur heldur er hann giftur erlendri konu. Konurnar fóru á kostum, sérstaklega Súsanna Svavarsdóttir. Hún talaði mitt mál, sérstaklega þegar hún talaði um mennina á stefnumóta netsíðunum sem ekki væru færir um að skrifa rétta íslensku, og þar er ég alveg sammála. Það er góð vísbending um gáfnafarið, finnst mér. Annað var þegar hún var að reyna koma manninum í skilning um að hann hefði ekki rangt fyrir sér í sambandi við samskipti kynjana hérlendis. Hún sagði að málið væri það að konur væru bara hreinlega búnar að fatta það að það sé betra að vera ein en í vondu sambandi.

Engin ummæli: