Mig dreymdi undarlegann draum í morgun, eftir fyrsta hanagal (ha ha). Ekki að ég muni það nákvæmlega en í megindráttum var málið það að það voru áramót. Stemmningin var mjög undarleg, það virtist vera sem enginn böll væru haldinn og engum flugeldum skotið á loft.Nema af obinberum aðilum og það var einhver smásýning. Ég var ekki með það á hreynu hvað væri að gerast. Ég spurði einhvern, hvers vegna það væru hvorki böll né að almenningur skyti upp flugeldum. Ég hefði bara alls ekkert verið að fylgjast með og bara alveg gleymt því að þetta væri hluti af hátíðarhöldum áramótanna en nú þegar áramótin væru hefði ég tekið eftir því að þetta vantaði sárlega.
Viðkomandi svaraði því að það hefði bara ekki þótt við hæfi með tilliti til ástandsins sem væri.
Ég samþykkti það en fannst þetta samt vera alveg ómögulegt. Ég fór þá í nokkrar heimsóknir og tók eftir þrúgaðri stemmningu á öllum heimilum sem ég kom inn á.
Fyrsta pælingin um meiningu þessa draums var að einhverjar breytingar munu eiga sér stað hjá mér. Breytingar sem koma mér á óvart því þær eiga sér stað hægt og rólega. Ég er greinilega ekki sátt við þessar breytingar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli