Afkvæmið lítur dagsins ljós og foreldrar, vinir og vandamenn eru himinlifandi, það er að segja svona í flestum tilfellum. En tíminnlíður og að því kemur að gefa þarf barninu nafn, en þá vandast nú málið.Móðirin vill láta barnið heita t.d. Guðmund, en faðirinn Jón. Ömmur og afar ætlast til að látið verða heitið eftir sér og foreldrarnir verða andvaka þegar líður að því að barnið skuli skírt. Sem betur fer er mjög hagkvæm lausn á þessum vanda, en þar sem tiltölulega fáir foreldrar hafa komið auga á hana vil ég nú gera þessu máli dálítið nánari skil. Lausnin er sú að gera eitt nafn úr tveim eða fleiri nöfnum afa eða ömmu, eða þeirra forfeðra og ættingja sem bráðnauðsynlegt er að láta heita eftir.Ef barnið er drengur er hagkvæmt að láta hann heita eftir báðum öfunum.Svo heppilega vill til að meiri hluti íslenskra nafna eru samsett úr tveimur hlutum, forskeyti og venjulegu nafni svo sem Ás-geir, Þor-kell, Guð-finnur o.s.frv. Í ljós kemur að þetta er mjög hreyfanlegt og má fá margar útgáfur eins og t.d. Guð-geir, Ás-kell, Þor-finnur o.s.frv.Og nú skal taka nokkur dæmi:
Afi 1 heitir Sturlaugur Afi 2 heitir Starkaður barnið er skírt Sturlaður
Skammkell ---------------- Eilífur -------------------Skammlífur
Ísleifur --------------------- Sigurbjörn --------------Ísbjörn
Þjóðólfur ------------------ Konráð ----------------- Þjóðráð
Andrés-------------------- Eiríkur ------------------ Andríkur
Albert--------------------- Ársæll ------------------ Alsæll
Viðar---------------------- Jörundur --------------- Viðundur
Hringur------------------ Guttormur ---------------Hringormur
Stórólfur---------------- Friðþjófur ----------------Stórþjófur
Nú, svo eru ýmsir möguleikar að slá ömmu- og afanöfnum saman:
Amman heitir Kolfinna, afinn heitir Dagbjartur, barnið er skírt Kolbjartur
Vilborg ---------------- Þórhallur --------------Vilhallur
Málfríður------------- Sigfús -------------------Málfús
Afinn heitir Hákon, amman heitir Margrét ----------------- Hágrét
Haraldur ------------------- Monika -----------------Harmonika
Kormákur ------------------- Albertína --------------Kortína
mánudagur, maí 30, 2005
miðvikudagur, maí 18, 2005
Ung í anda ha ha ha
| You Are 26 Years Old |
Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe. 13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world. 20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences. 30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more! 40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax. |
What Age Do You Act?
sunnudagur, maí 15, 2005
lasin
Ég er soldið lasin og kvíði því að fara í flug á fimmtudag. Það er ekki gott að fljúga með eyrnabólgu og hálsbólgu. Og svo að keyra í 6 tíma, því mamma vill helst að ég keyri. Ég læt mér batna þangað til.
Vonandi
Vonandi
hmmm interesting
You scored as Materialist. Materialism stresses the essence of fundamental particles. Everything that exists is purely physical matter and there is no special force that holds life together. You believe that anything can be explained by breaking it up into its pieces. i.e. the big picture can be understood by its smaller elements.
What is Your World View? created with QuizFarm.com |
laugardagur, maí 14, 2005
minn innri evrópumaður
| Your Inner European is Italian! |
![]() Passionate and colorful. You show the world what culture really is. |
föstudagur, maí 13, 2005
Busy
það er gott að vera soldið busy, sérstaklega eftir undangengið ár, "annus horribilis" svo vitnað sé í Betu bretadrollu.
Ég er á námskeiði í stofnun og rekstri smáfyrirtækja hjá Iðntæknistofnun, sem er náttúrulega alveg frábært, hvað svo sem ég geri við vitneskjuna að því loknu.
Ég er á fullu í félagsstörfunum, að setja efni á heimasíður tveggja félaga. Svo eru náttúrulega aðrir hlutir eins og skipulagning viðburða og útgáfa félagsskýrteina. Þegar því líkur fer ég að leita eftir afsláttarkjörum fyrir félagsmenn. Sem dæmi fer helgin í að læra á publisher til að leita leiða til að gera útgáfu skýrteina skilvirkari og hagkvæmari.
Ég er líka á fullu að senda inn umsóknir. Á þriðjudag er ég að fara í atvinnuviðtal hjá góðgerðarfélagi, það starf myndi henta mér mjög vel. Svo ég bið alla að hugsa vel til mín á þriðjudag.
Líka var verið að bjóða mér ferðir og líklega bóka ég mig í nokkrar ferðir í júní, þar til annað kemur í ljós.