miðvikudagur, mars 26, 2003

Ausinn er þreyttur í dag, fór ekki í bólið fyrr en 1 og sofnaði ekki fyrr en löngu seinna. Ég þori aldrei að líta á klukkuna við svona tækifæri því þá gæti ég stressast upp og átt enn erfiðara með að sofna. Ég hefði hins vegar þurft að fara fyrr að sofa því ég vaknaði kl. 6 til að fara í ræktina kl. 6:30. Ég þarf hins vegar alla vega 7 tíma svefn,til að lifa daginn af.
Mikið er ég farin að hlakka til að fara út til þýskalands og hitta alla aftur. Ég var farin að panikka smá um að allir vildu frekar vera á ferðalagi á þessum tíma, ég var ekki búin að heyra nema frá Evu vinkonu minni en engum öðrum og hún sagði mér í gær að hún ætlaði til Ítalíu á þessum tíma. Þannig að ég sendi smá panik mail á Alenku og Petru og sms á Sebastian og Sylviu. Alen svaraði mér í dag og hún verður í bænum svo að það er ekki svo slæmt. Þannig að ég held ég fari. Ég ræði frí og þessháttar við Óla í dag. Svo sæki ég um Visa og kaupi mér svo miða.Það eru allir að panikka fyrir mína hönd að ég fái engann miða á lágu fargjaldi. En ég óttast það svo sem ekki. En þetta er að verða raunverulegt, ég trúi því ekki hvað ég hef fjarlægst þessa vini mína og hvað ég hef verið lengi hérna heima. Ég fór frá Augsburg í desember 2000 og nú er mars 2003 það eru að verða komin 2 1/2 ár síðan ég fór. Sniff.

Engin ummæli: