mánudagur, september 19, 2005

Klukk klukk

Jæja Linda klukkaði mig svo nú verð ég að svara með einhverjum 5 staðreyndum um sjálfa mig.

1. Ég á erfitt með að tala um sjálfa mig, vissi hreinlega ekki hvað í ósköpunum ég ætti að skrifa niður hér, er laumu feimnispúki.
2. Það þurfti 6 ár til að rétta tennurnar mínar, ég var svo óheppin að þær skekktust aftur svo að ég fékk teina á ný ári eftir að ég losnaði við þá, og þurfti því að nota góm til tvítugs.
3. Það var fleira í mínu lífi sem ég þurfti að ganga í gegnum tvisvar svo sem eins og bílprófið, ég féll á hringtorginu á gatnamótum Snorrabrautar/Hringbrautar. Mér til mikils léttis var þetta tákn niðurlægingar minnar fjarlægt stuttu seinna.
4. Fyrsti bíllinn minn var Mazda 363 árgerð ?78, við kölluðum hann Fredda fretara vegna aumingjalegrar flautu. Hann var gjöf frá systur minni og mági stuttu eftir bílpróf. Við upplifðum nokkur ævintýri saman svo sem eins og aukaflautur sem byrjuðu að flauta um miðjar nætur á rúntinum eða það að bensíntankurinn féll undan bílnum á Miklubrautinni á háannatíma.
5. Ég hef ekki átt bíl síðan 1989.

Ég get ekki annað en klukkað saumaklúbbinn og þar með talið Ingu Maríu.

miðvikudagur, ágúst 24, 2005

hmmmm

fór á spámaður.is, náði í spil varðandi vinnu og þetta fékk ég út úr því!

7 sverð

Vitsmunir þínir eru meiri en þú gerir þér grein fyrir. Öflugar hindranir eru yfirstíganlegar á sama tíma og þú ert fær um að koma í veg fyrir hverskyns vandræði.

Framhaldið verður sniðið að þínum þörfum ef þú leggur þig fram við að skapa þína eigin framtíð með vali þínu og ásetningi. Stattu föstum fótum í þekkingu þinni á sjálfinu og þar með getur þú fært þér í nyt nánast allt sem verður á vegi þínum.

ha ha ha þýðir þetta að ég verð að fara að gera eitthvað í staðinn fyrir að gera ekki neitt og vorkenna sjálfri mér, he he

mánudagur, ágúst 22, 2005

Menningarnótt

Ég hafði nú hugsað mér að skreppa eitthvað í bæinn á menningarnótt, svona kýkja á mannlífið og hætta að vera félagsskíturinn sem hangir heima yfir vonlausri sjónvarpsdagskrá. Og svo þurfti ég á endanum að vinna alla helgina hvort eð er, svo ég hélt mig bara heima. Fékk samt flugeldasýningu heima hjá mér um nóttina. Ég hrökk upp af værum svefni við það að sprengingar og læti áttu sér stað fyrir framan gluggann minn um miðja nótt. Mér brá það mikið að hjartað var alveg uppi í hálsi og ætlaði ég aldrei að geta sofnað aftur. Það þarf bara eina flugeldasýningu til að kveikja í brennuvargnum í mörgum íslendingnum sem þá fattar að hann á flugelda inni í geymslu frá síðustu áramótum...............

miðvikudagur, júní 29, 2005

bugger

Ég finn þörf hjá mér að skrifa einmitt þegar tölvan mín gaf upp öndina. Sit nú með tölvuna hennar múttu því mín var að fá dánarvottorðið, kannski er hægt að fá hana aftur í það hálflamaða ástand sem hún er búin að vera í lengi. Það er eitthvað sem reynt verður á morgun. En nú er ástandið þannig að ég get ekki verið tölvulaus nema hálfan dag. Spurningin er hvort það er raunverulega svo eða er þörfin mest þegar ekki er hægt að verða við henni.
Er búin að vera að vinna mikið við leiðsögn það sem af er sumri.3 dagar eru fráteknir fyrir annað ;0)og hlakkar mig mikið til. Hlakka til að sjá þig á morgun.
Fram að síðasta laugardag fór ég bara í ferðir á þýsku, síðan þá 5 ferðir á ensku, úff var ég orðin ryðguð en þetta er að koma hjá mér. Æfingin skapar meistarann. Í dag fór ég í 2 ferðir með breta af skemmtiferðaskipum.
Ég er mikið að spá í að skreppa á tónleikana á morgun ef enn eru til miðar. En kannski ætti ég að spara mér peningin ef ég verð nú að fjárfesta í nýrri tölvu. Það bölvanlega er að vegna bilana var mér ekki fært að gera backup. Hvorki á harða diskinn né á nokkurn annan hátt. Öll diskadrif óvinnufær nema harði diskurinn, og svo var ekki hægt að gera backup á aukadisknum heldur. Vonandi verður einhverju bjargað á morgun.
Fór í bowling í gær með Siggu og Söndru systurdætrum mínum, ég var mun skárri en síðast þegar ég fór með þeim, en léleg var ég fyrir því. Gaman samt.
Verð að klára 2 umsónir núna.

mánudagur, júní 06, 2005

segir einhver að ég sé ekki samkvæm sjálfri mér huhh??YOU ARE 100% SCORPIO

You are 100% Scorpio


How much do you match your zodiac sign?

mánudagur, maí 30, 2005

Nafnagiftir eru erfiðar

Afkvæmið lítur dagsins ljós og foreldrar, vinir og vandamenn eru himinlifandi, það er að segja svona í flestum tilfellum. En tíminnlíður og að því kemur að gefa þarf barninu nafn, en þá vandast nú málið.Móðirin vill láta barnið heita t.d. Guðmund, en faðirinn Jón. Ömmur og afar ætlast til að látið verða heitið eftir sér og foreldrarnir verða andvaka þegar líður að því að barnið skuli skírt. Sem betur fer er mjög hagkvæm lausn á þessum vanda, en þar sem tiltölulega fáir foreldrar hafa komið auga á hana vil ég nú gera þessu máli dálítið nánari skil. Lausnin er sú að gera eitt nafn úr tveim eða fleiri nöfnum afa eða ömmu, eða þeirra forfeðra og ættingja sem bráðnauðsynlegt er að láta heita eftir.Ef barnið er drengur er hagkvæmt að láta hann heita eftir báðum öfunum.Svo heppilega vill til að meiri hluti íslenskra nafna eru samsett úr tveimur hlutum, forskeyti og venjulegu nafni svo sem Ás-geir, Þor-kell, Guð-finnur o.s.frv. Í ljós kemur að þetta er mjög hreyfanlegt og má fá margar útgáfur eins og t.d. Guð-geir, Ás-kell, Þor-finnur o.s.frv.Og nú skal taka nokkur dæmi:
Afi 1 heitir Sturlaugur Afi 2 heitir Starkaður barnið er skírt Sturlaður
Skammkell ---------------- Eilífur -------------------Skammlífur
Ísleifur --------------------- Sigurbjörn --------------Ísbjörn
Þjóðólfur ------------------ Konráð ----------------- Þjóðráð
Andrés-------------------- Eiríkur ------------------ Andríkur
Albert--------------------- Ársæll ------------------ Alsæll
Viðar---------------------- Jörundur --------------- Viðundur
Hringur------------------ Guttormur ---------------Hringormur
Stórólfur---------------- Friðþjófur ----------------Stórþjófur

Nú, svo eru ýmsir möguleikar að slá ömmu- og afanöfnum saman:
Amman heitir Kolfinna, afinn heitir Dagbjartur, barnið er skírt Kolbjartur
Vilborg ---------------- Þórhallur --------------Vilhallur
Málfríður------------- Sigfús -------------------Málfús
Afinn heitir Hákon, amman heitir Margrét ----------------- Hágrét
Haraldur ------------------- Monika -----------------Harmonika
Kormákur ------------------- Albertína --------------Kortína

miðvikudagur, maí 18, 2005

Ung í anda ha ha ha

You Are 26 Years Old
26

Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe.
13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world.
20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences.
30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more!
40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax.

What Age Do You Act?

sunnudagur, maí 15, 2005

lasin

Ég er soldið lasin og kvíði því að fara í flug á fimmtudag. Það er ekki gott að fljúga með eyrnabólgu og hálsbólgu. Og svo að keyra í 6 tíma, því mamma vill helst að ég keyri. Ég læt mér batna þangað til.
Vonandi

hmmm interesting

You scored as Materialist. Materialism stresses the essence of fundamental particles. Everything that exists is purely physical matter and there is no special force that holds life together. You believe that anything can be explained by breaking it up into its pieces. i.e. the big picture can be understood by its smaller elements.

Materialist

75%

Postmodernist

69%

Cultural Creative

63%

Modernist

56%

Existentialist

50%

Romanticist

50%

Fundamentalist

44%

Idealist

25%

What is Your World View?
created with QuizFarm.com

laugardagur, maí 14, 2005

minn innri evrópumaður

Your Inner European is Italian!



Passionate and colorful.
You show the world what culture really is.

föstudagur, maí 13, 2005

Busy

það er gott að vera soldið busy, sérstaklega eftir undangengið ár, "annus horribilis" svo vitnað sé í Betu bretadrollu.
Ég er á námskeiði í stofnun og rekstri smáfyrirtækja hjá Iðntæknistofnun, sem er náttúrulega alveg frábært, hvað svo sem ég geri við vitneskjuna að því loknu.
Ég er á fullu í félagsstörfunum, að setja efni á heimasíður tveggja félaga. Svo eru náttúrulega aðrir hlutir eins og skipulagning viðburða og útgáfa félagsskýrteina. Þegar því líkur fer ég að leita eftir afsláttarkjörum fyrir félagsmenn. Sem dæmi fer helgin í að læra á publisher til að leita leiða til að gera útgáfu skýrteina skilvirkari og hagkvæmari.
Ég er líka á fullu að senda inn umsóknir. Á þriðjudag er ég að fara í atvinnuviðtal hjá góðgerðarfélagi, það starf myndi henta mér mjög vel. Svo ég bið alla að hugsa vel til mín á þriðjudag.
Líka var verið að bjóða mér ferðir og líklega bóka ég mig í nokkrar ferðir í júní, þar til annað kemur í ljós.

laugardagur, apríl 09, 2005

Kringlan

Ég fór í Kringluna með stelpunum hennar systur minnar á fimmtudag, daginn fyrir minningarathöfnina. Við þurftum að skoða nánast hverja einustu bleiku flík í Kringlunni, sem sagt við fórum inn í allar verslanir Kringlunnar. Mikið er það nú þreytandi enda nenni ég aldrei inn í allar þessar verslanir. Við vorum búnar að fara í margar verslanir þegar ég ákvað að nýta tækifærið á meðan þær skoðuðu enn fleiri bleika boli og skrapp á klósettið við Stjörnutorgið, við hlið ísbúðarinnar. Það er nú vanalega ekki í frásögur færandi, nema hvað !! Þegar ég kem svo af klósettinu gengur til mín myndarlegur ungur maður. Hann spurði hvort hann mætti trufla mig í smástund. Jú jú segi ég enda er maðurinn ekki ómyndarlegur og geri ráð fyrir einhverskonar spurningakönnun eða jafnvel kynningu á einhverri góðgerðarstarfsemi. En nei það var ekki svo. Hann upplýsir mig um það að það sé falin myndavél á salerninu og hvort ég sé samþykk því að myndskeiðið af mér yrði notað í sjónvarpsþátt um venjur íslendinga sem sýna eigi í sjónvarpinu í haust. Mín fyrstu viðbrögð voru að spyrja hvort þetta væri löglegt. Jú hann sagði svo vera að það hefði fengist leyfi frá Kringlunni fyrir þessu og hvort að ég vildi ekki endilega leyfa birtingu á þessu. Hah oh nei, ekki það að ég hefði slæma samvisku yfir því að hafa ekki þvegið hendurnar næginlega vel eða eitthvað slíkt, ef ég fæ einhverju um það ráðið, þá sést ég ekki í fjölmiðlum nema þá fyrir eitthvað merkilegra en það eitt að fara á klósettið. Haldiði það nú falin myndavél á klósetti Kringlunnar. Nema að um félagsfræðilega/fjölmiðlafræðilega rannsókn hafi verið að ræða um hversu langt fólk vill ganga til að komast í sjónvarpið?
Ef þetta væri ekki svona fyndið hefði ég orðið alveg tjúll.

miðvikudagur, apríl 06, 2005

Myndir segja meir en 1000 orð

Mæðgur Posted by Hello
Systur  Posted by Hello

mánudagur, apríl 04, 2005

engin löngun

til að skrifa eitthvað að viti, er ekki tilbúin til þess.
1/2 fjölskyldan kemur á morgun hinn helmingurinn á fimmtudag. Minningarathöfn á föstudag.
En ég hvet aðra sem eru í betra standi til að standa sig betur í blogginu. Ég vil endilega hafa eitthvað að lesa. ;0)

miðvikudagur, mars 30, 2005

vesen

hmmp,
Það fer allt í hönk þegar maður dettur úr daglega lífinu.
Gleymdi að skila skattinum, atvinnuleysisbætur detta niður vegna þess ég gat ekki mætt. Missti af atvinnutilboði og gat ekki sótt um neitt núna nýlega.
Hvenær gerist eitthvað gott?

miðvikudagur, mars 23, 2005

coming home

Ég kem heim á laugardag og verður ágætt að fá smá tíma ein þar til familían kemur í viku.
Tilfinningalega í flækju, en hver skilur það ekki.
Eitt er víst, maður verður að nýta þann ´tíma sem maður hefur á þessari jörð.

laugardagur, mars 12, 2005

Lífið er stutt

L'ifið er stutt, örstutt.
Inn á milli svo ósköp erfitt.
Fer á mán til sverige.

miðvikudagur, mars 09, 2005

Þreyttur

Það er þreyttur Ausi sem skrifar þetta. Síðustu 2 nætur voru mér of stuttar, en samt góð og gild ástæða fyrir því. Ég þurfti nátturulega að eyða tíma með lindinni.
Heyrði frá gömlum vini í þýskalandi í dag og var mjög ánægð með það því ég taldi hann týndann.
Mikið hlakkar mig til helgarinnar, það er nefnilega stöðugt áreyti þessa vikuna og ég er að gera meira stress úr sumum hlutum sem veldur mér vöðvabólgu og öðrum óþægindum.
Sumarbústaður með Saumó er einmitt lausnin.
Vonandi gengur allt upp á morgun.

þriðjudagur, mars 01, 2005

degi seinna

Mán 28/2
Tölvuvesen, eins og oft áður. Jæja það var alveg ljóst að greyjið litla þyrfti stærra vinnsluminni, hún var varla starfhæf lengur.
Í ljós kom að það var hreinasta kraftaverk að hún skyldi virka og það var ekki ljóst hvaða forrit og skrár urðu til þess að minnið hvarf. Þetta var allt hið undarlegasta mál þegar nánar var athugað í dag. Og var svo keypt og sett upp meira minni sem og frekari harður diskur sem til var fyrir var settur upp líka. Ekki nóg með það heldur byrjuðu öll önnur drif að stræka í lok síðustu viku og gera enn. Það er 2 cd drif, floppy og USB tengt laust drif (þ.e.a.s. stafræna myndavélin mín). Very weird, því það finnst ekkert að neinu að þessum drifum samkvæmt öllu innan stýrikerfisins. Og Troubleshoot fítusinn í XP er algjörlega ónothæfur. Þetta er furðulegar villur sem ég fæ alltaf, allavega get ég sett upp backup núna á aukadiskinn fyrst ég get ekki gert cd með backup.
Hey hey svo kemur í ljós að einn af stillingartökkunum á skjánum sem er innan við 6 mánaða gamall er bilaður, þannig ef ég vil stilla skjáin af þá get ég bara minnkað ekki stækkað sem þýðir að nú er svört rönd allt í kring og ég get ekki breytt því.
Og ofan á þetta kemur sú staðreynd að símalínan er biluð. S.s. ekkert net eða símasamband í dag. Ég var farin að tengja þetta tölvunni, að það væri ástæðan fyrir símaruglinu. Ekki síst því ég fékk símtal frá Hive í dag um að ADSL tengingin væri komin í gang og að búnaðurinn yrði sendur í kvöld. Shiiiit ég hef bara engann tíma þessa vikuna til að taka við þessum búnaði. Ekki nema að ég fari til þeirra að sækja hann í fyrramálið, til að setja hann upp sjálf, en þá er ég að bíða eftir símamanninum.
Þetta er bara ekki að ganga, sumar vikur eru tómar á meðan aðrar eru way too much.
Ok ég er í dagvinnu við verðupptöku í verslunum fyrir HS þri, mið og fim. Og í kvöldvinnu þar líka, þrið. og miðv. Og þyrfti að vera fim líka en þá er ég að fara á fund í fagdeild FL: Í kvöld var aðalfundur sem gekk vel, en var ástæða þess að ég gat ekki unnið mína venjulegu vakt í HS í kvöld. Miðvikudagskvöld er svo skipulagssaumó vegna sumarbústaðaferðar, en ég verð að vinna. Ég hef ekki efni á að missa meir en eina vakt á viku.

Dreymdi að ég eignaðist tvíbura, alveg óvænt, ég vissi að ég væri að fara að eiga. Fann ekki fyrir neinu en svo þreifaði ég og fann að kollurinn var komin út. Og áður en ég vissi af var barnið komið í heiminn og svo fann ég fyrir öðrum kolli og seinna barnið kom. Börnin voru sitt af hvoru kyninu. Hvað skyldi þetta þýða, tilfinningin sem ég hafði var að allt yrði gott.
Svo ég leit í Draumaráðningabókina eftir Þóru Elfu Björnsson (Skjaldborg, Reykjavík 1987) og sjá:

?Tvíburar. Það boðar mikla gleði ef þig dreymir að þú hafir eignast tvíbura. Að leika við tvíbura merkir að gæfan leiki við þig? S:146

?Fæðing. Að vera viðstaddur fæðingu þar sem allt gengur vel er fyrir góðu...Að sjá tvíbura eða þríbura fæðast er fyrir mikilli aukningu veraldlegra gæða.? S: 63

?Barn. ... Flestir draumar þar sem börn koma við sögu þykja ekki fyrir góðu, sbr. ?Böl er ef barn dreymir nema sveinbarn sé og sjálfur eigi? ... Að eignast tvíbura í draumi er fyrir tvöföldum erfiðleikum.? S: 35

Og hvaða merkingu kýs ég að taka mark á ??

Jæja nóg í bili þetta er náttúrulega skrifað með uppfærslu seinna í huga.


.

fimmtudagur, febrúar 24, 2005

mæ oh mæ er ég hér á ný

Ég er búin að taka að mér ýmislegt undanfarið. Ekki nóg um allt það sem ég geri í félagi L. Þar sem ég er að leitast við að gera félagsskýrteinið, leita eftir aflsláttartilboðum, hugmyndavinna vegna nýrrar heimasíðu. Heldur er ég komin í verkefni hjá Félagi félagsfræðinga, ég tók að mér að sjá um heimasíðuna. Auk þess að samþykkja að vera í vinnuhóp um fræðslumál/málþing, með gömlum skólabróður Snorra.
Svo vil ég komast í ný verkefni hjá RK í staðinn fyrir það sem ég gerði áður en get ekki gert lengur.
Svo er ég að leita eftir styrkjum eða öðrum framlögum sem geta auðveldað systur minni að koma til Íslands í heimsókn næsta sumar, hana vantar eitthvað slíkt til að halda sér í. En ennþá án árangurs.
Sem sagt það er nóg að gera hjá mér í félagsmálum, vonandi leiðir sú vinna á endanum raunverulega atvinnu af sér.
Sóttist líka eftir námskeiðum sem eru í boði hjá vinnumiðlun. Og er að skoða önnur námskeið sem gætu breytt núverandi stöðu minni. Stöðnun er sama og dauði.
Hlakka til að fá loksins adsl í næstu viku, en þarf samt að laga tölvuna fyrir þann tíma. Það er eitthvað bögg í gangi í henni þessa stundina.
Svo er ég að fara á Árshátíð hjá HS á morgun, svo fer ég í sumarbústaðaferð 11/3 með saumaklúbbnum. Það verður algjört æði.

Annað alveg óskilt öllu öðru, ég uppgvötvaði að ég hef ennþá ákveðna hæfni á sviði spegilskriftar. Ef ég set mig í stellingar get ég skrifað í spegilskrift og lesið líka. Hins vegar er skriftin hroðalega ljót. Enda hef ég enga æfingu haft á þessu sviði síðan ég var vanin af þessu á frekar ónærgætin hátt hjá henni Jónínu forðum daga.
Mér finnst þetta soldið fyndið.

fimmtudagur, febrúar 10, 2005

ditten og datten

Loksins fór ég aftur í atvinnuviðtal, en fannst mér ég ekki sýna mig frá minni bestu hlið.
Ég á nú ekki von á að fá þetta starf, en það gerir manni gott að fá að komast í viðtal.
Í þetta skipti sóttu 60 um en 7 fengu viðtal, það er gott að vita.
Annars á túr, datt í mat og nammi og maginn er að launa mér misnotkunina, oj.
Kláraði að lesa da vinci lykilinn, so what's all the fuss about?? Þetta er bara ágætur jón spæjó af hverju er allt þetta vesen.
Mútta í svíþjóð, ég með bílinn fínt.
Fatahengið í forstofunni hjá mér hrundi í gærkvöldi, sem betur fer var ég inni í stofu því hillan er þung og hefði farið illa með hausinn á mér hefði ég lent undir þessu. Ég hafði víst ekki notað nógu veigamiklar skrúfur, hum hum ég er bara byrjandi á þessu sviði. Ég er búin að laga þetta núna.
see jah

föstudagur, febrúar 04, 2005

svo sem ekkert

hæ hæ
Ég tók aukavakt vegna veikinda í sjálfboðastarfinu í dag, er á því að ég geti sem stendur ekki staðið vaktir þarna alein. Svo ég mun biðja um að vera með öðrum á vakt.
Ég veit ég er þunglynd sem stendur en það var þolanlegt þar til ég tók eftir að kvíðinn er að koma líka, það get ég ekki höndlað. Svo nú er ég að hugsa um að fara til læknisins.
það verður árshátíð í vinnuni í HS bráðlega. Ég ætlaði ekki að fara, vegna þess hvernig aðrar skemmtanir hafa farið hjá mér þarna. En nú er ég ekki lengur á því að slá hendinni á móti þriggja rétta máltíð og balli með Millunum í boði stofnunarinnar. Ég verð bara að halda aftur af mér varðandi karlmenn. EASY.....
Búin að bíða í 13 mín. eftir að ná að hlaða niður maili. Það hlýtur að vera einhver rosa stærð á viðhenginu, ég nenni þessu ekki lengur.

mánudagur, janúar 31, 2005

eftir langa þögn

Ég er svo leiðileg þessa dagana og ekki líkleg til að skrifa mikið þessa dagana. Ég er greinilega ekki týpan til að skrifa frá mér allar tilfinningar mínar, þó það gerði mér eflaust gott. En hvernig getur maður það í algjörri deyfð. Janúar er nógu deprimerandi mánuður fyrir svo ekki sé öllum vondum hlutum dembt á mann í leiðinni. Ekki furða að flest fólk deyji á veturna.
Allavega á ég erfitt með að halda mér frá rúmminu, sef of mikið ef færi er til. Gæti allt eins sofið í
16 af 24. Reyni að drusla mér áfram. Drifkrafturinn enginn, umsóknirnar færri en ættu að vera. Rembist við að gera eitthvað af viti með að vinna eins mikið og HS leyfir. Er í sjálfboðavinnuni áfram, fór á námskeið hjá RK um síðustu helgi. Sat við hliðina á framkvæmdastýru RK og spurði hana í leiðinni eftir vinnu. Greinilega ekki daufari/dofnari en svo að ég gat það. En því miður er ekkert þar þessa stundina. Can't blame a girl for trying!
Mútta flýgur til Sverige á mið. og verður í óákveðinn tíma. Ég veit ekki með mig hvernær ég kýki næst. Í seinasta lagi um hvítasunnu í ferminguna.
Svo er ég líka að vesenast í fél. leið. til að nýta tímann og að gera eitthvað .
Verð að vinna dag og kvöld næstu 2 daga, þetta er svo óþolandi sveiflast frá engu í allann tímann sem dagurinn veitir manni. Ég nenni þessu lífstíl ekki mikið lengur. Verð að komast í fasta vinnu allavega um tíma sem allra fyrst.
Thats all folks
A






sunnudagur, desember 19, 2004

Bakverkur

Ég ákvað að takast á við þunglyndispúkann með því að hafa nóg fyrir stafni og eyddi laugardagskvöldinu í þrif. Skúra skrúbba bóna. Dúkurinn var orðinn soldið slæmur, skúraði 4 sinnum yfir gólfið svo það væri almennilega hreint áður en ég bónaði. Afraksturinn er fínt gólf en líka hryllilegur bakverkur. Ég veit ekki hvernig ég fór svona með bakið á mér ég er alveg að drepast. En samt má ég ekki vera að því að slaka á því ég er ekki búin að versla nokkurn skapaðann hlut til jólanna. Hvorki gjafir mat né skraut.
Hlynsi kom áðan að setja upp eldhúsviftu sem ég fékk frá þeim, þegar þau skiptu út. Hann kom líka með kommóðu sem þau voru að losa sig við, gat samt ekki tekið með sér kommóðuna sem átti að fara í Sorpu í staðinn. Sem var kannski eins gott því ég fann annan stað fyrir þessa kommóðu og nú á borð að hverfa á Sorpu í staðinn. Stundum er betra að hugsa málið. Hann kom líka með gömlu ryksuguna hennar mömmu, og ég veit ekki hvar ég á að geyma hana. Geymslan er troðfull. Ég þarf að endurskipuleggja þetta allt, en allavega þarf ég ekki lengur að stelast í ryksugu húsfélagsins.

fimmtudagur, desember 16, 2004

jólahvað

Börkur bróðir minn er 50 ára í dag, oh my god, hvað maður er orðinn gamall ef systkini manns eru orðin þetta gömul. Hálfrar aldar gamall drengurinn, hann lítur nú ekki út fyrir að vera svo gamall heldur sér vel kallinn.

Annars er ég ekkert svo kát þessa dagana, melanchólian að drepa mig. Nenni ekki neinu jólaveseni, best að ljúka þessu dæmi af sem fyrst.

Minnimáttarkenndin líka að fara ílla með mig, orðin þetta gömul og hef engu áorkað. Bla bla bla.

sunnudagur, desember 12, 2004

hummpf

best að gleyma þessu sem allra fyrst :0(
Karlmenn hummpf gleyma þeim.

mánudagur, desember 06, 2004

Aha

Aftur eru liðnar vikur milli frásagna, en ég leiðinleg.
Er að druslast í jólaundirbúningin, það verða economisk jól þetta árið.
Fékk litlu frændurna í gistingu á föstud. kv. gaman gaman, ég bakaði meira að segja með þeim jólasmákökur. Það er nebbnilega ekkert gaman að gera það ein. Svo var bara hammari í kvöldmat og horft á spólur til kl 1. Þeim fannst gaman og mér líka.
Ég var að hengja upp jólaljós í eldhúsgluggann, það er alltaf jafn kósí að setja upp ljósin.
Byrjaði á að skrifa jólakortin í kvöld, það er alltaf sama málið, allar adressur út um allt skrifaðar í hina og þessa dagbókina eða adressubókina eða staka miða, uhum hvar eru miðarnir?? Ég var svo dugleg í fyrra að setja allt í tölvuna sem svo hrundi of coarse. hihi corse. Sem minnir mig á það Backup ;0)
Þarf að skipuleggja mig betur what else is new.


þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Snjór

Já nú er sko farið að snjóa, ég ætla í göngutúr á eftir í nýföllnum snjónum. Það er best að njóta á meðan hann er ferskur og svo veit maður ekki hversu lengi hann endist.

mánudagur, nóvember 15, 2004

Og það er farið að snjóa, en það er samt engin afsökun fyrir jólalögum í útvarpinu 14/11 Posted by Hello

laugardagur, nóvember 13, 2004

uhum

feel half forgotten!!!!

föstudagur, nóvember 12, 2004

12.Nóv

í tilefni dagsins fór ég inn á spámaður.is og hugleiddi hvað dagurinn í dag byði upp á.
Fyrt dró ég venjuleg spádómsspil og fékk þetta:

XIII - Breytingar
Samhliða spili þessu ættir þú ávallt að hafa hugfast að hugsýn þín er andlegur veruleiki, og allt það sem til er í veröld þinni var fyrst til á andlegu sviði. Fyrst kemur hugmyndin eða óskin og síðan fylgir hið þykka efni á eftir. Að baki hugsýna þinna er mikill kraftur. Þessi kafli er á enda og nýr um það bil að hefjast. Tilefni er til fagnaðar þegar breytingarnar eiga sér stað. Umtalsverðar breytingar munu fyrr en síðar eiga sér stað. Hér eru á ferðinni breytingar til batnaðar. Brúðkaup, nýtt starf eða flutningar gætu verið svarið við spurningu þinni en mundu að breytingar geta verið erfiðar til að byrja með og aðlögunarhæfni þín gæti komið sér vel. Þú tekur breytingunum með gleði í hjarta. Ekki verður aftur snúið þar sem þú gefur fortíðina upp á bátinn og tekur opnum örmum utan um framtíðina og tækifærin sem bíða þín

Svo dró ég ástarspil og fékk að heyra þetta:

mynt
Hér heldur þú huga þínum opnum og fordæmir ekki gjörðir annarra. Þú kannt að vera feimin/n við einhvern sem þú umgengst hér en hleypir viðkomandi ekki inn í skel þína því þú kýst af einhverjum ástæðum ekki að kynnast manneskjunni náið. Hér kemur fram að þú bæði vilt og óttast náin kynni og óttast þau án efa vegna hættunnar á að afhjúpa þig og missa jafnvel stjórnina á eigin tilfinningum.Taktu þinn tíma og ekki hika við að starfa í þágu fólks af sanngirni og auðmýkt. Hógværð þín getur reynst þér vel þegar fram í sækir og er án efa heillandi eiginleiki í fari þínu. Innra auga þitt sér og skilur að náunginn skiptir ekki ávallt mestu máli þegar stærra samhengi er skoðað.

Funny en hér eru sannleikskorn á ferð að einhverju leiti.

Stjörnuspá dagsins er svohljóðandi:
Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)Lánið eltir fólk fætt undir stjörnu sporðdreka. Hér birtist fyrirboði um að þú sért laus við vandamál og fjárhagurinn verði rýmri þegar líða tekur á lok ársins. Þér mun takast að snúa aðstæðum þér í hag þegar þú hlustar á huga þinn og hjarta þegar kemur að verkefni sem tengist starfi þínu eða áhugamáli jafnvel. - Hlustaðu gaumgæfilega og horfðu betur í kringum þig.

Ég hef líklegast ekki ástæðu til annars en að vera í góðu skapi í dag. eller hur
Enjoy your day.
Peace love and understanding
Ausinn

fimmtudagur, nóvember 11, 2004

hó hó

Fyrst það eru þvílík tíðindi að ég bloggi eitthvað að viti að lesendur fái hreinlega sjokk þá er um að gera að halda þessu uppi.
En varla sjokkera ég mikið núna, mér er runnin reiðin og viðkvæmnin tók við. Bögger, kann betur við reiðina, hún er betri meðal almennings.
Ég var að skrá mig atvinnulausa í dag og þurfti pappíra frá gamla vinnustaðnum, svo ég heilsa upp á fólk í leiðinni og fæ mér kaffi. Ég fer ekki í kaffi þangað á næstunni.
Merkilegt hversu mikið ein spurning getur verið átakanleg. "Ertu búin að fá vinnu" verður að óþolandi poti og staðfestingu á því að maður sé ömurlegur. Þegar ég var að reyna að ýta þessu frá mér kom "já þú ert bara að sækja um sérstaka vinnu" grrr get lost.
Hvað varð um "sæl!" eða "hvað segirðu!" eða jafnvel "hvernig gengur". Og verandi á þessu tímapunkti klukkutímanum áður en túrinn byrjaði, vöknaði mér um augu ég er soddan vælukjói og þoli það ekki við sjálfa mig. Að lokum þegar hálft fyrirtækið var búið að heilsa mér á þennan hátt, þá bað ég fólk um að spurja ekki lengur og forðaði mér.
Bölvaður dónaskapur er þetta, eins og að spyrja fólk sem er að koma úr meðferð, "ennþá þurr??" Eða hjón í hjónabandserfiðleikum "hangið þið enn saman?" Eins og að maður myndi ekki láta það fréttast um leið og tækifæri gæfist að maður væri komin í alvöru vinnu. Ég vil nú ekki þykjast eitthvað, því allt kemur upp um síðir, eins og sannaðist með eina sem hætti að vinna þarna og mátti víst ekki segja frá nýja vinnustaðnum og reyndist vera farin í vændið.
En ósköp langar mig til að segjast gera eitthvað flott, nei come on ég er yfir það hafin hvort eð er. Ég var of góð fyrir þennan stað og er það enn, ég verð bara að vera grimmari.

miðvikudagur, nóvember 10, 2004

rambling on and on

Ég verð víst seint tilnefnd sem bloggari ársins. Lazy ass!!
Í atvinnumálum er ekkert að frétta. Sæki um ýmislegt osfrv. Ekki meir um það.
Ég hef verið að fikta í endurbótum heima hjá mér, stundum held ég að ég sé biluð. Hvað í andsk. var ég að hugsa að eyða svona miklum tíma í eitthvað sem mun aldrei líta vel út hvort eð er. Hver dáist að klósettsetum svo sem?? Ég keypti cheap furu klósettsetu, pússaði af henni lakkið, hvíttaði og lakkaði aftur. Fjandans lakkið var frekar gulleitt svo það er gul slykja á þessu helv., smekklegt huh. En ég nenni ekki að gera neitt meira við þetta helv., svo ég verð að sætta mig við þetta eins og þetta er.
Næst er að smíða baðhillur og svo bókahillu. En ætli ég sé ekki að fara á túr, ég man aldrei hvenær, en það er besta skýringin á bölv. skapinu í mér núna í augnarblikinu. Shh ekki segja neinum að ég fái PMS. Best að ég taki bara til og framkvæmi ekki nokkurn skapaðann hlut, endar bara í vitleysu í þessu skapi.
Fór á djammið á föstud., doldið dúllerí í gangi en as always fær mann bara til að hætta að vilja meir. Trainwreck
Nú fer ég á næstu dögum að fá mér ADSL þetta er óþolandi tenging orðið.
Ég keypti mér myndavél í köben en er ekki farin gera mikið með hana ennþá, núna ætla ég að prufa að setja myndir á bloggið í fyrsta sinn.

Jetzt kriegt man schwarze Kerzen, endlich Posted by Hello
Kopenhagen wo ich die Kamera gekauft habe.  Posted by Hello
klósettsetan fræga bleh Posted by Hello
bara sama myndefni og aðrir vink ;0) Posted by Hello

mánudagur, nóvember 08, 2004

You are Marilyn Monroe!
You're Marilyn Monroe!

What Classic Pin-Up Are You?
brought to you by

mánudagur, nóvember 01, 2004

long time no see!!

Ég er sem sagt að byrja að skrifa aftur, enda komin tími til. Ég hef þetta ekki langt að sinni því ég á að fara að sofa á skikkanlegum tíma.
Ég var að fá íbúðina metna svo ég geti fengið lífeirissjóðslán, hún er metin á 8,4 ég keypti hana í mars 03 á 6,55. Það er ansi mikil hækkun á þetta stuttum tíma og ég er ekki byrjuð á breytingunum sem ég búin að plana. Eignarhlutfall mitt í íbúðinni hefur þá hækkað svakalega.

Annars er ekkert komið hjá mér í atvinnuleitinni, ég var í verkefni hjá Hagstofunni í 3 vikur af oktober. Nú vil ég endilega gæda eitthvað á meðan ekki er neitt annað, en þetta er kannski ekki besti árstíminn. Ég fór nú samt í Gullfoss í gær 12-22:30, með alþjóðlegan hóp frá rauða krossinum sem var á fundi hérna. Endað var með kvöldmat á Valhöll. Smá peningur þar.
Svo komst ég í samband við þjóðverja sem er að vinna fyrir þýsk-íslenska verslunarráðið í gegnum vefsíðuna open buissness club (openbc.com) og getur verið að ég fái einhver verkefni við þýðingar. Þannig að ég get haldið mér á floti eitthvað áfram. En helvítis óöryggið og það að þurfa að selja sjálfa sig til "mögulegra atvinnuveitenda" er þreytandi.

miðvikudagur, september 22, 2004

Tölvur eru algjört drasl

tölvan mín er í lamasessi, get ekkert gert í bili. Bíð eftir að fá hana í gang aftur, maður er handa og fótalaus þegar maður er tölvulaus. Skrepp með Mömmu í 2 daga til köben í næstu viku. Hún er að fara til systir minnar til að hugsa um hana næstu mánuðina, ég fékk 5000 króna inneign hja´Icelandexpress og ákvað að nota það svona. 15 þús í flug mamma borgar hótel og mat.

laugardagur, september 11, 2004

Hmmmm

Jamm, ekki búin að ráða mig í vinnu ennþá. En það kemur, ég er ekki með miklar áhyggjur bara smá.
Það er hálfgerður bjáni sem er atvinnulaus og heldur áfram að eyða peningum eins og ekkert sé, búin að versla soldið undanfarið. En ég er ekki að fara á hausinn alveg strax, ætla að fá lán hjá lífeyrissjóðnum til að lagfæra skammtíma skuldastöðuna, ég tími ekki að endurfjármagna húsnæðislánin, þrátt fyrir lægri vexti, kostnaðurinn er of hár.

Fyndið ég hætti í fyrradag og þurfti að koma við aftur í dag því að sú sem tók við af mér fann ekki einhver skjöl í tölvunni, ok við tékkuðum á tölvunni sem ég hafði verið með og náttúrulega var búið að loka fyrir aðganginn. Það er fljót gert, strax engin merki um mann lengur.
Ég fékk fallega kveðjugjöf frá starfsfélögunum og ferðatösku í kveðjugjöf frá fyrirtækinu, mjög viðeigandi "hit the road" skilaboð.
Er með meiri áhyggjur af öðrum í umhverfi mínu, þetta fer alveg með mig.


föstudagur, september 03, 2004

Atvinnulaus

ég er atvinnulaus frá og með næstu viku!!

mánudagur, ágúst 16, 2004

Frábært

Ég var að fá frábærar fréttir, alltaf gaman að heyra af hamingju annara.
Til hamingju dúllan mín, ég veit þú lest þetta. Þið eruð líklega bara tvær sem ´kýkið inn á þetta hjá mér.
Þú átt allt það besta skilið.

Ég hef ekki verið dugleg að skrifa ég veit.

Ég var að taka að mér nýja aukavinnu um daginn, til viðbótar við allar hinar vinnurnar. Ég var að þýða úr þýsku á íslensku og fannst það rosalega gaman. Gyða hringdi í mig því bossinn hennar þurfti að fá þetta þýtt og vantaði einhvern sem kynni þýsku og væri klár. Gaman að hún hugsaði strax til mín.
Eitt verkefni getur alltaf leitt til annars....
Ég hafði einmitt verið að bölva þessum vitleysingum sem þýða fyrir sjónvarpið, sá um daginn þýskan þátt í RÚV sem var einmitt svo ílla þýddur að merkingin snérist upp í algjöra vitleysu.

´Hringdi í dag til að forvitnast um umsókn sem ég sendi rannsóknarstofnun háskólans á Akureyri. Það voru ´víst ekki nema 12 sem sóttu um þessar 2 stöður, mér líkar þessar líkur ágætlega 1 á móti 6. Betra en um það bil 100 um eina eins og oft hefur verið um þessi störf sem ég hef sótt um.

Núna verð ég að klára eina sem ég þarf að skella inn á pr stofu.


mánudagur, júlí 05, 2004

Veikur leiðsögumaður

Ég er drulluveik, m. hita og beinverki og kvef dauðans í hringferð með austurríkismenn.
Djö. langar mig heim í rúmmið mitt. En kemst ekki fyrr en eftir 3 daga, verð að harka þangað til.

þriðjudagur, júní 29, 2004

Þreyttur

Er eitthvað ansi þreyttur í dag, uhu!!

föstudagur, júní 25, 2004

Rigningarsuddi

Helv. rigningarsuddi er þetta!
Ég er að fara á Reykjanesið með Skipafarþega á eftir og þarf að hjóla niður á bryggju í þessu vatnsveðri. Svo ætlaði ég í skemmtisiglingu í kvöld ég vona að veðrið skáni. Það er hópur tengdur aukavinnuni að fara í hvalaskoðunarferð í kvöld þar sem áhersla er lögð á að skemmta sér, og svo verður kannski stoppað á barnum í Viðey. Ansi mikið að gera er hér og í Hagstofunni og í ferðum til skiptis. Svo fer ég í viku hringferð 1-7 júlí.

þriðjudagur, júní 22, 2004

mánudagur, júní 14, 2004

óróleg

Í dag á systir mín að máta hárkollur, ég bauðst til að láta klippa mitt og senda það til Sverige í hárkollugerð. En það er víst ekki neitt sem borgar sig að láta gera, hún velur hvort eð er líklegast ljóst til að vera áfram eins.

Svo var gömul vinkona að dúkka upp sem ég veit ekki alveg hvernig ég á að höndla. Undir lok háskólans rann vinskapur okkar út í sandinn. Ég kynntist Nadine og Sylviu saman en ég og Sylvia áttum svo enga samleið með Nadine lengur. Vinskapurinn endaði án nokkurs konar riflildis eða þess háttar. Við vorum fúlar út af ýmsu í hennar fari og hegðun gagnvart okkur. Svo var e-r dropi sem fyllti mælinn og við ákváðum að láta hana taka næsta skref. Í stað þess að við færum að eltast við hana þá átti hún að hringja í okkur. Sem sagt við töluðum ekki meir við hana.
Allavega var ég að fá mail frá henni núna þar sem hún spyr hvers vegna hlutirnir hafi runnið út í sandinn. Þó að 4 ár séu liðin þá ergir hún mig mjög með þessari spurningu.

Það fyndna við alla söguna er að mjög svo sjálfhverf manneskja sem hún nú reyndist vera við nánari skoðun, er farin að halda fyrirlestra og námskeið fyrir stjórnendur um samskipti, líkamstjáningu og önnur " soft skills". Kannski viðeigandi að hún vinni fyrir sér með því að segja fólki hvað það eigi að gera og hvernig það eigi að vera. En þar sem að hún var alltaf í vandræðum sem voru oftast nær komin til af því hversu ófær hún var til að sjá eða skynja viðbrögð annara við sér og sínu háttarlagi, veit ég ekki hversu nothæf þessi kennsla er.

Allavega þetta saman er að pirra mig og gera mig órólega.

föstudagur, júní 11, 2004

Italíano??





You Should Date An Italian!


You love for old fashioned romance, with an old fashioned guy

An Italian guy is the perfect candidate to be your prince charming

If your head doesn't spin enough, just down another espresso with him

Invest in a motorcycle helmet - and some carb blocker for all that pasta!




Which Foreign Guy Should You Date? Take This Quiz :-)




Find the Love of Your Life
(and More Love Quizzes) at Your New Romance.


fimmtudagur, júní 10, 2004

Too Shy shy





You Don't Have a Boyfriend Because You are Too Shy


When a guy gets to know you, he finds a great catch

Problem is... you're too shy for most guys to get to know.

From meeting someone to dating, you usually have your guard up.

And while you're just holding back, it makes you seem like you've got something to hide.




Why Don't You Have a Boyfriend Take This Quiz :-)




Find the Love of Your Life
(and More Love Quizzes) at Your New Romance.


fimmtudagur, júní 03, 2004

fann fyrirsögnina

Að lokum tókst mér að rambla inn á fyrirsögnina, hi hi
May you live in interesting times

Það er engin lygi að við lifum á áhugaverðum tímum. Stjórnmálin tóku áhugaverðum breytingum hér í dag.
Ég hef ekki heyrt í neinum enn, sem er óánægður með ákvörðun forsetans í dag. Alveg burtséð frá almennum stjórnmálaskoðunum fólksins sem og almennum skoðunum varðandi lagasetningu á eignarhald á fjölmiðlum. Það sem ofbauð fólki,voru vinnubrög lagasetningarinnar og allur sirkusinn þar í kring.
Það verður spennandi að sjá hvernig framhaldið verður.

miðvikudagur, júní 02, 2004

fuck fuck fuck
var búin að skrifa og það kom eitthvað helv. upp svo það birtist ekki. Sjæt nenni ekki að endurtaka leikinn.

mánudagur, maí 31, 2004

Hvernig geri ég fyrirsögn??

föstudagur, maí 07, 2004

Ég hef ekki nennt að skrifa mikið undanfarið.
Ég þarf að fara í sjúkraheimsókn til svíþjóðar í skyndi, mjög alvarlegt ástand.
Tala við ykkur seinna

þriðjudagur, apríl 13, 2004

miðvikudagur, mars 31, 2004

Framhaldsaðalfundur félags Leiðsögumanna er í kvöld. Merkilegt að fletta í gegnum fréttablaðið og sjá viðtal við nýkjörin formann félagsins og svo heilsíðuauglýsingu frá Kynnisferðum á síðunni á móti. Það er strategía á bak við staðsetninguna hmm.


kermit.jpeg
You are Kermit the Frog.
You are reliable, responsible and caring. And you
have a habit of waving your arms about
maniacally.

FAVORITE EXPRESSIONS:
"Hi ho!" "Yaaay!" and
"Sheesh!"
FAVORITE MOVIE:
"How Green Was My Mother"

LAST BOOK READ:
"Surfin' the Webfoot: A Frog's Guide to the
Internet"

HOBBIES:
Sitting in the swamp playing banjo.

QUOTE:
"Hmm, my banjo is wet."


What Muppet are you?
brought to you by Quizilla

fimmtudagur, mars 25, 2004

Hæ
Ég er búin að vera heima veik í meira og minna heila viku og ég er að verða brjáluð af því. Ég fór á læknavaktina í gær og er komin með sýkingu í ennisholurnar í fyrsta sinn og er því komin á fúkkalyf. Ég vona að ég fari þá loksins að skána. Það verður ekki gaman að koma í vinnuna með allt á haus, það leysir mig enginn af þegar ég er í burtu. En samt nenni ég nú ekki að hanga hér lengur með grænan hor í nös.
kv.
Auður

laugardagur, mars 20, 2004

Jæja langt síðan síðast hmm.
Það er ýmislegt áhugavert í atvinnuauglýsingunum núna, for a change. yippy
Ég er hrikalega upptekin þessa dagana og þyrfti kannski að draga saman seglin. Nýja aukavinnan hefur tekið upp mikinn tíma minn það sem af er mánuðinum. Núna er ég lasin í annað sinn í þessum mánuði. Fyrst magapest nú kvef ársins.
Það er kannski ekki sniðugt að vinna 12 tíma 3-4 daga í viku, 2 duga. Annars er ég nokkuð ánægð, það er gaman í þessari vinnu, fínt fólk.
Ég er óvenjulega bjartsýn þessa dagana, ég er sannfærð um að ég fái skemmtilega vinnu sem ég fíla fyrir sumarið.
Ég ímynda mér líka að ég fái hærri laun og fari að geta lifað í leiðinni.
Whatever kemur í ljós.
Tíhí, var að chatta við 12 ára frænku mína á msn, á sænsku nota bene. Hún er alltaf með skilaboð um kærastana sína í nikkinu sem poppar upp. Nú tók ég eftir að það var nýtt nafn og spurði hana. Þá hafði gæjinn hætt með henni á miðvikudag og hún byrjað með nýjum í dag. Tíhí að vera 12 getur verið æði.
Vildi óska að ég hefði verið svona frjálsleg á þessum aldri en ekki svona mikið komplexa case.

föstudagur, febrúar 27, 2004

Er í sjokki var sagt upp vinnuni.

miðvikudagur, febrúar 18, 2004

í skeytastíl í dag

Vinnan er orðin frekar leiðileg í dag, skemmtilegasta fólkið var að flytja inn í annað herbergi innan skrifstofunar.
Fólkið getur skipt sköpum í vinnugleðinni.
Námskeið í sálrænni skyndihjálp er rosalega skemmtilegt. Er á námskeiðum nánast alla vikuna.
Mútta fer að koma heim 24/2.
Verð að hugsa mér til hreyfings og gera meira í atvinnumálum mínum.

föstudagur, febrúar 13, 2004

Thank god it's friday!!!
Og föstudagurinn 13 í ofanálag, júhú. Ég hef alltaf haldið því fram að þetta hlyti að vera lukkudagur fyrir mig, sný sem sagt hjátrúnni í andhverfu sína. Verð að kaupa lottó í dag hi hi.

Sá auglýsingu um netsmell flugLEIÐA til Glasgow og langar allsvakalega að skella mér til Lindu í helgarferð, hmm. Fjármálin leifa það ekki eins og er en ef lukkan er mín megin og ég hef ástæðu til að ætla að fjárhagurinn muni batna á næstunni þá myndi ég skella mér umsvifalaust.

Næsta vika verður frekar busy, námskeið hjá Rauða krossinum í 4 daga í þeirri viku. En gaman held ég, mig hlakkar til.

Ég ætla að klára ýmislegt dútl heimavið áður en þetta byrjar svo að ég þurfi ekki að spá í það seinna meir, þegar tíminn er ekki lengur fyrir hendi.
Tölvan enn´þá í viðgerð.
kv.
Auður

fimmtudagur, febrúar 12, 2004

angela davis
You are Angela Davis! You were the THIRD WOMYN IN
HISTORY to appear on the FBI's Most Wanted
List. You are a communinist, black power-lovin'
lady who shook up the United States when you
refused to lie down quietly to oppression. You
WENT TO JAIL! Wow. You kick so much more ass
than Foxxy Brown.


Which Western feminist icon are you?
brought to you by Quizilla
Ég er soldið slegin yfir þessu morðmáli á Neskaupsstað. Þó ég sé aðdáandi góðra morðgátu og sérlega breskra krimma þá kæri ég mig ekki um neitt jafn svakalegt og þetta hér á landi svona nálægt manni.
Flest önnur morð á íslandi eru augljósari, oftast í hita augnarbliksins.Oftast á heimili og líkið skilið eftir á staðnum. Þegar lík er falið vandilega þá er um meiri yfirvegun að ræða og það er það sem er creepý.

fimmtudagur, febrúar 05, 2004

Mér líður vel í dag er bjartsýn og full af orku, þó svo að tölvuræksnið sem ég keypti í nóvember hafi hreinlega dáið.
Ég er að byrja sjálfboðastarf hjá Rauða krossinum, það er eitthvað sem ég hef hugsað lengi um en einhvern vegin hefur alltaf vantað drifkraftinn í að framkvæma það. Nú er skrefið tekið og ég er svo ánægð með það. Margir í kringum mig hafa haft það á orði að þetta væri eitthvað sem þau hefðu íhugað að gera. Ég er ekki byrjuð í raun ennþá en ég vil endilega hvetja alla til að kynna sér málið, það geta langflestir gefið 6 tíma á mánuði af sér. Sleppt því að horfa á TV eitt kvöld eða svo.
Allavega þá fór ég á 1 námskeiðið af 3 í gærkvöldi, svo mun ég fara á 2 til viðbótar áður en ég get farið að svara í hjálparsímann. Þetta var grunnnámskeið rauða krossins, um starfsemi samtakana og uppbyggingu. Næst er svo sálræn skyndihjálp og að lokum viðtalstækni.
Ég er mjög svo spennt að fara að gera eitthvað nýtt og að kynnast nýju fólki, þó að verkefnið sjálft sé eflaust mjög svo krefjandi og erfitt, þá held ég líka að það sé mjög gefandi.
Svo var stjörnuspáin mín svo góð í dag að ég get bara ekki annað en verið bjartsýn.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Endalausir möguleikar einkenna stjörnu þína hér. Hér bíða tækifæri eftir því að vera uppgötvuð og framkvæmd en þú átt það stundum til að forðast þau og trúna á getu þína til afreka. Þegar þú hefur sæst við sjálfið eflist orka þín og ekki síður framkvæmdasemi þín. Horfðu til stjarnanna og sannfærðu sjálfið að heillastjarna þín skín skærust þeirra allra. Óskaðu þér og sjá, birtan eltir þig uppi.

föstudagur, janúar 30, 2004

quite result
Quiet Girl


What kind of little girl were YOU?
brought to you by Quizilla

fimmtudagur, janúar 22, 2004

Ég náði ekki upp í nefið á mér fyrir reiði þegar ég las þetta í mogganum.


Munið eftir lörfunum
Maður nokkur, sem sakaður hafði verið um að berja konu sína, var sýknaður af öllu slíku fyrir spænskum rétti, sem kvað upp þann úrskurð, að konan væri allt of vel klædd til að geta verið fórnarlamb heimilisofbeldis.
Konan, Latifa Daghdagh, marokkósk að uppruna, sagði, að hún hefði nauðug verið gefin manni sínum 17 ára gömul og flutt til Spánar. Þar hefði hún verið læst inni á heimili þeirra og eiginmaðurinn misþyrmt henni í hálft ár eða þar til hún komst út og leitaði á náðir kvennaathvarfs. Sagði frá þessu í spænska dagblaðinu El Mundo.

Dómsorðið var á þessa leið: "Útlit Latifu, vel snyrt og vel klædd, með hringa, armbönd, eyrnalokka og stór gleraugu, passar ekki við lýsinguna á konum, sem hafa verið beittar ofbeldi á heimili sínu."

Þótt fram kæmi í læknaskýrslu, að Latifa bæri mörg merki misþyrminga á líkama sínum, þá taldi rétturinn "ekkert" benda til, að eiginmaður hennar hefði átt sök á þeim.

Hvað finnst ykkur???

þriðjudagur, janúar 20, 2004

Ég er greinilega að hrista af mér doðann, ég er soldið æst og spennt og full tilhlökkunar. ´
Mér verður æ skýrara hversu dofin ég hef verið. Spurningin er hvort neikvæðu hliðarnar fari ekki að láta á sér kræla fljótlega þá líka.
Allt í einu er svo margt að gerast og í hrifningunni upplifi ég ýmsar tilfinningar sem ég hef ekki fundið til mjög lengi.
Margt í býgerð og plön smíðuð.
Mútta er farin til Kanarí og ég er á bílnum á meðan, sé fyrir mér að ýmislegt verði við það auðveldara í framkvæmd og vil endilega hrinda hlutunum strax í framkvæmd.
Öllum í einu helst.
- er að leita að annari vinnu
- er að leita að aukavinnu
- er að hugsa um að gerast sjálfboðaliði hjá Rauða Krossinum
- er að hugsa um að breyta lausaskuldunum mínum í lífeyrissjóðslán
- er að hugsa um að fara til Króatíu í sumarfrí., en langar samt að skreppa til UK, Sverige og Deutschland líka.
Ég er hálf óðamála hérna.
Ég var beðin af húsfélaginu að taka að mér þrifin á stigaganginum, á erfitt með að neita þeim um það á penan hátt. Ég sé ekki fram á að nenna þessu. En þau vilja helst að einhver í húsinu taki þetta að sér og ég er yngst, crap. Sagðist hugsa málið til að losna undan því.
Fasteignamat íbúðarinnar hefur hækkað heilmikið, s.s. verðmeiri eign en líka hærra fasteignagjald.
Það var sett upp smá íþróttaaðstaða í ganginum við hliðina á íbúðinni minni. Það voru settir upp rimlar og svo er eitthvað orbitreck eða eitthvað annað svona líkamsræktartæki þarna líka. Ég gæti svo sem skotist í 15 mín. upphitun á þessu tæki til að koma mér í gang á morgnanna. Ég get stefnt á það, spurning er með efndir.



sunnudagur, janúar 18, 2004

Hangi ennþá veik heima, er ekki hrifin.
Með hausverk, svima og beinverki ennþá. Booring, vonandi skárri á morgun.
Ætla í sturtu og skipta á rúminu svo ég sé ekki áfram í sýklunum.
Allt á kafi í snjó úti, fallegt útsýni sunnanmeginn, þessi ónýtu grenitré sem eru dauð vegna lúsar, eru allt í einu falleg með sjónum á sér. Norðanmegin er bara drullugur snjór og bílar að spóla á planinu.
Annað hef ég ekki að segja núna.
Linda áttir þú ekki að bæta úr blogginu líka?

föstudagur, janúar 16, 2004

Ég fór í vinnu í gær en varð að fara fyrr heim því ég var ekki búin að ná mér almennilega. Var því heima í dag líka og er orðin ansi leið á þessu hangsi.
Úti er stormur og snjór fýkur um allt. Mann myndi ekki langa neitt sérlega mikið út í þetta veður en ég er bara orðin svo leið á að hangsa heima. Sjónvarpið er leiðinlegt, og ég vil komast út. Íhuga að skreppa út í sjoppu, en þyrfti þá samt að dúða mig gagnvart þessu veðri, sem er nú eiginlega spennandi, svona alvöru vetrarveður hefur ekki komið í mörg ár.
Skipulagning er eitt af því sem ég er að taka í gegn í lífi mínu.
Þarf að forgangsraða og gera eitthvað í því að framkvæma þau markmið sem ég hef sett mér.
Það fyrsta sem ég hafði hugsað mér að gera og hefði gert ef ég hefði verið aðeins skárri í dag, er að breyta ferilsskránni. Auk þess að hringja á nokkra staði vegna umsókna. Ég vil ekki kynna mig með kvefaðri og veiklulegri röddu. Svo að ég tek þetta fyrir í hádeginu í vinnuni á næstu vikum.
Nýja mottóið er " act not react"

fimmtudagur, janúar 15, 2004

Æj æj
Fór heim úr vinnuni veik í gær um hádegi, var heima í allann dag líka. Þetta er ekki einu sinni almennileg flensa, blahh.
Svona hálfgerð flensa, finn í fyrsta sinn á ævinni fyrir ennisholunum og er allt stíflað þó ég geti hálf andað í gegnum nefið. Smá hiti og almennur veikleiki.
Held samt að ég nái í vinnuna á morgun.
Mútta fer til Kanarí í næstu viku, þá verð ég með bílinn á meðan, lovely.

mánudagur, janúar 12, 2004

Gleðilegt nýtt ár elsku bloggsíða, ég hef vanrækt þig undanfarið. Lesendur þínir hafa skammað mig fyrir þessa vanrækslu, og krafist þess að ég standi mig í stykkinu þegar kemur að skriftunum.
Svo nú kæra síða og kæri lesandi hef ég hugsað mér að nýtt tímabil hefjist þar sem ég skrifa hreinlega of mikið og enginn nennir að lesa það sem ég skrifa ha ha ha .
Ég lagði tarot fyrir árið fyrir sjálfa mig á nýársdag. Í fyrstu virtist þetta vera hin hrikalegasta spá og var ég ekki sátt við hana að neinu leiti. Mér fannst það ekki sniðugt að öll spilin væru á hvolfi, hmm bíddu nú aðeins öll á hvolfi ekki bara stöku spil. He he he ég hafði snúið stokknum öfugum. Þá las ég úr spilunum eins og þau hefðu snúið rétt og það var allt önnur saga.
Sem sagt þetta ár verður mjög gott hjá mér samkvæmt spilunum. Þá á ég að fá uppskeru erfiðisins ef ég legg mig fram við að fá það sem ég vil.
En það eru náttúrulega ákveðnir hlutir sem ég verð að gera sjálf og verð að vara mig á eigin göllum.
Þessi tarotlögn var að mörgu leiti samvkvæm nokkrum stjörnuspám fyrir árið sem ég hef safnað saman.

Hvað svo sem býður mín, get ég ekki annað er verið bjartsýn á þetta ár. Mér finnst ég bara eiga það skilið.

Ég gerði engin áramótaheit, en ég geri markmið fyrir árið áður en Janúar er liðinn og um leið set ég upp leiðir að markmiðunum.

Kannski skrifa ég eitthvað um þessi markmið hér seinna.

miðvikudagur, desember 31, 2003

Ég er að spá í árið sem er framundan um leið og ég hugsa til þess sem er að líða.
Óljós áramótaheit skulu ekki vera strengd þetta árið. Nú verða raunhæf markmið sett og þeim náð!!
Það eru mörg markmiðin sem mig langar til að ná en fyrst vil ég setja þau niður á blað á skipulegan hátt.
Gleðilegt nýtt ár!!!

mánudagur, desember 29, 2003

Það er blindbylur úti og er búinn að vera í allann dag. Hef ekki lennt í svona veðri í mörg ár. Soldið spennandi. Fór á bílnum hennar Mömmu og átti að skila honum í morgun en veðrið var of vont til þess. Svo ég þarf að moka hann út núna og skutla honum niður á Skúlagötu til hennar þegar ég er búin að vinna. Ég hef ekki lennt í því að moka bíl út síðan ég veit ekki hvenær.
Fór á djammið á fös og laug núna um helgina. Það er helv. mikið fyrir mig nú orðið. var gaman.
Endaði á að gamna mér með einum sem var ekki vel til þess fallinn. Má ekki drekka svona mikið, alla vega var ég ekki þunn.

miðvikudagur, desember 24, 2003

GLEÐILEG JÓL !! <;0)

Úti er allt hvítt, drauma jólaveðrið. Eða næstum því, ef það væri aðeins lygnara.
Ég var náttúrulega á spaninu í allt gærkvöld, en náði samt ekki að klára allt. Verð því að hlaupa af stað eftir vinnu og ná í eina bók sem ég var búin að láta taka frá fyrir mig.

Peace, love and happyness!!

mánudagur, desember 22, 2003

Hef ekki verið dugleg að skrifa í desember.
Enginn sérstök ástæða fyrir því svo sem nema þessi venjulegu aðventuannir og vinnan náttúrulega.
Ekkert spes varð úr neinum af þessum deitum hjá mér. Legg það allt á ís þar til eftir áramót.
Líka atvinnuleitina og öll önnur góð fyrirheit og áætlanir.

Stundum tekur hugsun hjá mér allt aðra stefnu en ætlað var. Ég var í heimsókn um daginn og yfir kvöldkaffinu og jólasmákökunum, vorum við að tala um þá staðreynd lífsins að alltaf skuli maður finna frábærustu hlutina þegar maður hefur ekki efni á þeim.
Ég var að reyna að nota annað hvort orðatiltækið "að eiga ekki krónu með gati" eða "að eiga ekki bót fyrir boruna á sér" og út úr mér vellur "þegar maður á ekki krónu fyrir gatið á sér".
hi hi sumir eru ekki enn hættir að hlæja.

þriðjudagur, desember 09, 2003

Sá fína mynd í gær Purely Belter.

mánudagur, desember 08, 2003

Sejum svo að fólk sé að hittast í annað skiptið, date 2. Video heima hjá honum. Konan á að velja myndina, hann segir bara eitthvað létt en mikið er ekki vitað um hvað hann hefur séð áður né á hverju hann hefur áhuga. Þá verður frú að vera vandlát á myndina sem hún kemur með. Þetta gæti útlagst sem nokkurskonar persónleika próf. Smekkur fólks fyrir kvikmyndum getur sagt manni heilmikið, eitthvað í léttari kantinum. Já gamanmyndir eru oftast nær einhverskonar, rómantík kómedía. Sem gefur of mikið til kynna er ekki hentugt upphafi kynna.
Þá eru það heimskulegu heimskupörin, sem segja lítið um mann, er gæti verið túlkað sem innsýn í gáfnafarið. Ef maður hefur kannski alltof gaman að einhverjum bandarískum skólavitleysum.
Þá er úr vöndu að ráða, Það er vonandi að leigan hafi skemmtilegt úrval af viti.

fimmtudagur, desember 04, 2003

Sauður get ég verið, ég ´fór að bræða kertavax fyrir kerti í gærkvöldi og var svo klaufaleg að u.þ.b 1/2 af bræddu kertavaxi helltist niður og út um allt.
Þvílíkt vesen, eyddi stórum part kvöldisins í að hreinsa þetta af gólfinu og innréttingunni.
Sleppti að hreinsa fötin mín, það þarf ég að gera þegar ég kem heim. Lovely, ég set hérmeð allt kertavesen í bið þar til eftir jól.

miðvikudagur, desember 03, 2003

Brrrr, það er ansi mikið rok úti og það er svo gott að vera komin heim og geta haft það bara nokkuð huggó heima. Kveikja á kertum og elda (til tilbreytingar).
Nenni ekki að taka til eins og planið var fyrir þetta kvöldið.

mánudagur, desember 01, 2003

Helgin viðburðarík svona miðað við þær flestar hjá mér. Sat heima yfir sjónvarpinu á föstudag. Fór og keypti mér jólakjól á laugardag fór svo á Jólahlaðborð með saumaklúbbnum.
Blind date á Ara Í ögri í gærkvöldi.
Mjög myndarlegur maður 5 árum yngri en ég. Okkur gekk ágætlega að tala saman, ekki eins auðveldlega og það gekk þegar ég hitti hinn á fimmtudag.
Þetta hófst nú samt allt saman, ég spurði og hann svaraði, það er pirrandi. Honum tókst mjög vel að tala um sjálfan sig en gat ekki spurt mig þess sama.

föstudagur, nóvember 28, 2003

Fór á blind date í gær, stórfínt, líkar hann vel.

Fer á annað á sunnudag líka.
Mín bara orðin karlaóð??
Fór á kaffihúsadeit í gær, alveg stórfínt.
Leist mjög vel á drenginn, 33, háskólamenntaður, greindur, gaman að tala við hann og sprorðdreki eins og ég líka. Á íbúð og er barnlaus. Getur varla verið betra, sjáum nú til.
Svo er annað svona deit á sunnudag, hvað er að gerast ??

fimmtudagur, nóvember 27, 2003

blind date í kvöld, reyndar búin að sjá mynd af honum en þetta er samt hálf stressandi.
jamm sjáum til

miðvikudagur, nóvember 26, 2003

Ég er svo stressuð og upptjúnnuð, að það er alveg að fara með mig.
Vinnan er mjög stressandi þessa dagana, þetta er sá tími og lagast ekki aftur fyrr en í febrúar.
Í dag var svo líka annað að pirra mig og það var veitingahúsið Argentína.
Hið árlega jólahlaðborð saumaklúbbsins míns ætlaði þangað á laugardaginn var. Við pöntuðum borð í september og héldum að við værum örruggar með borð. En nei, þegar ég svo hringi til að láta vita að okkur fækkaði úr 13 manna hóp í 10 manna hóp kemur í ljós að borðapöntunin okkar var týnd.
Og nú er málið að reyna að redda þessu einhvern veginn á þann hátt að það henti öllum. Sem er stressandi, hringja í alla og reyna að finna út úr því hvernig, hvar og blahhh. Garg. Ég vildi gjarnan losa um einhverja kergju við fólkið þarna á Argentínu. En yfirþjónninn (hún, nota bene) var bara svo næs í símann að það var ekki hægt að vera algjört bitch við hana.
Jæja nú fer ég á hlaupunum heim í gegnum snjóinn og reyni að losa mig við pirringin með því að þrífa heima hjá mér.

þriðjudagur, nóvember 25, 2003

og annað á sunnudag, christ hvað er ég að gera ?

mánudagur, nóvember 24, 2003

fer á kaffihúsadeit á fimmtud. kannski annað í vikunni líka.

miðvikudagur, nóvember 19, 2003

Argg, maður getur stundum verið úr hófi fram klaufalegur.
Ákvað í gær að taka af mér hárin á efri vörinni með vaxi.
Mæti í vinnuna í morgun eins og ég hafi verið á svaka sjens og var spurð að því hvað ég hafi verið að gera því ég líti út eins og ég sé skeggrifinn.
Já einmitt, ég er það í annari merkingu en ætlaðri. Ég var sem sagt að rífa af mér skeggið, ég hefði líklega átt að láta þetta vera þarna áfram. Enda ekki sjáanlegt nema við ákv. birtuskilyrði. Mér fannst samt keyra um þverbak þegar mamma sá þetta á mér, þá hlyti þetta að vera orðið meira áberandi því hún er hálf sjónlaus eiginlega.
Bólgan hlytur að hjaðna þegar líður á daginn.

þriðjudagur, nóvember 18, 2003

Það er heilmikið að gera hjá mér núna´. Mála fyrir mömmu og heilmikil yfirvinna. Mjög fínt þá get ég kannski horfst í augu við yfirlitið frá bankanum um næstu mánaðarmót. En ég verð ansi þreytt á því í leiðinni og þarf smá tíma fyrir mig.

mánudagur, nóvember 17, 2003

Feel neglected and forgotten
Vil ekki þurfa að minna fólk á mig, en hefði þótt vænt um nokkrar línur í maili. Eða bara netkort, þó að afmælið mitt gleymist, þá má senda slíkt einhverjum dögum síðar. Það þurfa ekki allir að hringja í mann, þó það væri gaman.

föstudagur, nóvember 14, 2003

Ég hef ekki verið að skrifa neitt hér, í heldur langan tíma.
Hélt upp á afmælið á einfaldan hátt, mútta og bræðurnir komu í kaffi. Saumó kom í gær. Fékk færri símtöl en ég átti von á, kannski er það ekki meir en ég átti skilið. Ég er sjálf ekki alltaf sú duglegasta að halda sambendi.
Nú fer ég að koma þessari tölvu minni loksins á netið. Búin að fá staðfestingu á grun mínum að það hefði ekki verið neitt módem hvort eð var. Fæ nýtt. Fer að koma þessu í gang.

föstudagur, október 17, 2003

Ég er að taka til í tölvuræksninu hjá mömmu. Hreinsa út yfir 1000 mail til mín. Fara í gengum þetta og hreinsa út allt rusl og vista á diskum allt mikilvægt.
Kella er nefnilega á tölvunámskeiði fyrir eldri borgara. Eins gott að setja tækið upp á sem einfaldastan hátt svo að hún hræðist ekki að eyðileggja eitthvað fyrir mér.
Djö.mikið drasl safnast fyrir á svona dóti ef maður hugsar ekki um það.

Allavega hefur þessi seta fyrir framan tölvuna aukið hjá mér löngun til að fá mér alvöru tölvu aftur. Ég bara verð að fá mér nothæfa tölvu heim, þetta ástand gengur ekki lengur. Þarf ekki að vera það allra nýjasta bara skikkanlegt, það sem er nýlega orðið úrelt.

miðvikudagur, október 15, 2003

Sybbinn og þreyttur Ausi mættur enn á ný, svefninn er mér afar mikilvægur eins og hægt hefur verið að lesa hér á þessari síðu oft áður.
Dreymdi illa, kunnugur maður dó og margt var í uppnámi í þessum draumi. Það er ekki sniðugt að vakna á REM stiginu. Líklega verð ég að tímasetja það
betur með því að fara fyrr að sofa en vanalega.
Ég hef margoft reynt að lifa með minni svefn en 7 tíma á nóttu. Margir segjast ekki þurfa meir en 5-6 tíma svefn á nóttu, í tímaþröng vil ég það líka.
En það hefur bara slæm áhrif á einbeitinguna og annað. Ég hef reynt að þjálfa þetta upp hjá mér, sérstaklega þar sem ég er hvað athafnamest á kvöldin. Sannkölluð B manneskja en á móti krefst samfélagið þess að maður hegði sér sem A manneskja og taki þátt í lífinu á morgnana, mæti í vinnu og annað eins. Ekki hefur þetta gengið upp enn. 'Eg bara er algerlega óhvíld og ílla upplögð af því að fara á fætur eftir 5-6 tíma svefn. Baugar eru snemma komnir fram hjá mér, sem og önnur þreytumerki.
Ég verð bara að gefast upp á þeirri hugmynd að ég geti þjálfað mig í annað mynstur en líkami minn fer fram á.
Hvað svefnin varðar í það minnsta.

Ég er enn að drepast í hnénu eftir fallið´fyrir viku, í vinstra hnéð verkjar mig líka. Það er samt eingöngu mar.

Ég var nú samt að vinna alla helgina við leiðsögn, nú er ég að reyna að komast í sem mest af helgarferðum til að næla mér í aukapening.
Ég ætla að klára allan aukakostnað vegna íbúðarinnar í mars. Þá er komið ár og ég á þá 30 % íbúðarinnar sjálf, þá er þetta bara piece of cake það sem eftir er. Lægra en leiga, í það minnsta. Ég vonast til að hafa efni á breytingunum svona upp úr miðju næsta ári. Kannski eftir sumarið. Og jafnvel fyrr ef ég kemst loksins í alvöru vinnu sem borgar mér í hlutfalli við verðleika.

fimmtudagur, október 09, 2003

Ég er öll lemstruð eftir að hafa dottið í fyrstu hálku haustins á hjólinu. Á leiðinni í vinnuna í gærmorgun rann hjólið undann mér og ég féll framfyrir mig á svellið á bílastæði FÁ.
Afleiðingin er sú að ég meiddi mig íllilega á hægra hnénu, ég kramdi og marði einhvern liðpoka. Nú er ég aftur mætt í vinnuna eftir að hafa tekið 1/2 dag í veikindafrí. Eftir slysó í gær lá ég heima með kælingu á hnénu það sem eftir var dags. Það var það eina sem hægt er að gera. Kæla fyrsta daginn en ekki lengur, svo bara bíða og þjást. Þetta er helv. vont. aðallega ef ég beygji hnéð sem ég forðast að gera. En svo koma stundum svona surprise stingir án þess að ég hreyfi mig. Bölvað #$%#$&//($$$#&$% grrrr.
Svo til að bæta gráu ofan í svart, komst líklega við höggið eitthver hreyfing á rófubeinið svo ég er kvalinn þar líka. Sem sagt ekki mín besta hlið sem ég sýni á mér núna.

miðvikudagur, október 01, 2003

Hmm er að drepa sjálfa mig úr hvítlauksfýlu. Ég fékk mér spagettí í gær með slatta af hvítlauk útí. Það böggar mig ekki neitt yfirleitt, en ég held ég þjáist útaf þessu núna vegna þess að hann var orðinn gamall. Enda helst svona ekki lengi ferskt í venjulegum ískáp.
Ég hef ekki skrifað neitt lengi, ég viðurkenni það alveg að ég er ekki að standa mig í þessu.
Ástæðan er ekki sú að það sé bara ekkert að frétta, því það er enginn afsökun. Né heldur að ég hafi of mikið að gera, því svo mikið er það ekki búið að vera. Hmm ég er kannski bara í leit að innblástri. Ég vil ekki eingöngu skrifa upp lista einfaldra daglegra verka og atburði hvunndagsins. Ég vil nýta þetta sem tækifæri til að hverfa frá hvunndeginum að einhverju leyti.
Mig vantar ennþá eiginlegan innblástur til þess.
Linda mín ef þú lítur inn þá er ég farin að sakna þín en að sjálfsögðu ertu á kafi í breytingum lífs þíns og bloggar þegar þú mátt vera að. Bara að þú vitir það þá bíð ég spennt eftir frásögninni af nýju íbúðinni og nýju vinnuni.
Nú þegar Larissa er farin er ég soldið einmana, ég var svo glöð að fá að hafa hana í nokkrar vikur. Nú bíð ég bara eftir að Linda komi heim um jólin.
Ég bauð Larissu og Sollu í brunch áður en L fór. Það var ágætis dagstund, maður þarf ekki endilega að bjóða fólki í kaffi& Kökur eða kvöldmat. Maður getur boðið upp á aðra möguleika.
Sari mágkona mín gaf mér 3 af listaverkum sínum, þau eru að tæma kjallarann hjá sér. Það er svo lágt til lofts þar og nú ætlar brósi að brjóta upp gólfið og skapa þannig betur nýtanlega lofthæð. Þannig að þau þurftu að losna við ýmislegt. Ég er þakklát fyrir verkin og geymi nokkur í viðbót fyrir þau líka.