miðvikudagur, júní 29, 2005

bugger

Ég finn þörf hjá mér að skrifa einmitt þegar tölvan mín gaf upp öndina. Sit nú með tölvuna hennar múttu því mín var að fá dánarvottorðið, kannski er hægt að fá hana aftur í það hálflamaða ástand sem hún er búin að vera í lengi. Það er eitthvað sem reynt verður á morgun. En nú er ástandið þannig að ég get ekki verið tölvulaus nema hálfan dag. Spurningin er hvort það er raunverulega svo eða er þörfin mest þegar ekki er hægt að verða við henni.
Er búin að vera að vinna mikið við leiðsögn það sem af er sumri.3 dagar eru fráteknir fyrir annað ;0)og hlakkar mig mikið til. Hlakka til að sjá þig á morgun.
Fram að síðasta laugardag fór ég bara í ferðir á þýsku, síðan þá 5 ferðir á ensku, úff var ég orðin ryðguð en þetta er að koma hjá mér. Æfingin skapar meistarann. Í dag fór ég í 2 ferðir með breta af skemmtiferðaskipum.
Ég er mikið að spá í að skreppa á tónleikana á morgun ef enn eru til miðar. En kannski ætti ég að spara mér peningin ef ég verð nú að fjárfesta í nýrri tölvu. Það bölvanlega er að vegna bilana var mér ekki fært að gera backup. Hvorki á harða diskinn né á nokkurn annan hátt. Öll diskadrif óvinnufær nema harði diskurinn, og svo var ekki hægt að gera backup á aukadisknum heldur. Vonandi verður einhverju bjargað á morgun.
Fór í bowling í gær með Siggu og Söndru systurdætrum mínum, ég var mun skárri en síðast þegar ég fór með þeim, en léleg var ég fyrir því. Gaman samt.
Verð að klára 2 umsónir núna.

Engin ummæli: