Úff hvað maður verður nú að fara varlega í hálkunni, ég rann til í gær og lenti beint á hausnum. Er að drepast í hnakkanum og bakinu. En mér til mikillar gleði fékk ég jólagjöf frá þýskalandi í póstinum í dag. Þar á meðal slakandi meðal í baðið. Gott fyrir auma vöðva. Það er margt sem ég sakna frá þýskalandi, þar á meðal svona ýmislegt jurtalyfjatengt. En nóg um það, þetta var góð tímasetning að fá pakkann sem sendur var 17.12 ekki fyrr en í dag 19.1. Hvað segir þetta um póstþjónustuna??
Ég hef ekki frá miklu að segja, stressið fer vaxandi í vinnuni. Óvenjumikið að gera í einu, meira en hingað til. Ég verð að læra betur að slaka á meðvitað, til að halda heilsu. Ég hef verið að kynna mér aðferðir til að vinna hraðar og skilvirkar en ég geri nú þegar. Mjög skemmtileg hljóðbók sem ég hef hlustað á "Get thing done, the art of stress free productivity" eftir David Allen. Erfiðara er að framkvæma hlutina svona kerfisbundið. En ég trúi því að ég nái því einhvern daginn að tileinka mér þetta. Einn mikilvægasti hluturinn sem kemur fram í þessari bók, er að hætta að stressa sig yfir hlutum sem þú getur ekkert gert í, þá stundina. Það græðir enginn neitt á því að þú hugsir um vinnuna komin upp í rúm á kvöldin. Ekki vinnan og ekki þú sjálfur.
En aðalatriðið er að nota tímann í vinnuni betur svo maður komist fyrr heim, ekki alltaf að eyða tímanum í óþarfa. Það dugar að kýkja á mbl einu sinni á vinnudegi.
Ég ákvað að leyfa mér smá óþarfa svona í kreppunni, ég fékk mér sjónvarp í gegnum ADSL núna þegar hægt er að fá fleiri stöðvar en í fyrra. En núna er ég með Evrópu pakkann og skemmti mér konunglega yfir skandinavisku og þýsku stöðvunum. Ég hef ekki gaman að því að horfa á ítalskar, franskar eða spænskar, hvað þá heldur Poker Channel. En allaveganna þá er nú margt eins í dagskránum þeirra og okkar. Nú horfði ég t.d. á fyrsta þáttinn í næstu seríu af Desperate Housewifes á þýsku, hehe ég segi ekkert um hvað gerðist. En ég sver það ég tek ekki einu sinni eftir því að það sé dubbað. Þetta venst alveg ótrúlega.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli