Ég náði ekki upp í nefið á mér fyrir reiði þegar ég las þetta í mogganum.
Munið eftir lörfunum
Maður nokkur, sem sakaður hafði verið um að berja konu sína, var sýknaður af öllu slíku fyrir spænskum rétti, sem kvað upp þann úrskurð, að konan væri allt of vel klædd til að geta verið fórnarlamb heimilisofbeldis.
Konan, Latifa Daghdagh, marokkósk að uppruna, sagði, að hún hefði nauðug verið gefin manni sínum 17 ára gömul og flutt til Spánar. Þar hefði hún verið læst inni á heimili þeirra og eiginmaðurinn misþyrmt henni í hálft ár eða þar til hún komst út og leitaði á náðir kvennaathvarfs. Sagði frá þessu í spænska dagblaðinu El Mundo.
Dómsorðið var á þessa leið: "Útlit Latifu, vel snyrt og vel klædd, með hringa, armbönd, eyrnalokka og stór gleraugu, passar ekki við lýsinguna á konum, sem hafa verið beittar ofbeldi á heimili sínu."
Þótt fram kæmi í læknaskýrslu, að Latifa bæri mörg merki misþyrminga á líkama sínum, þá taldi rétturinn "ekkert" benda til, að eiginmaður hennar hefði átt sök á þeim.
Hvað finnst ykkur???
Engin ummæli:
Skrifa ummæli