miðvikudagur, nóvember 10, 2004

rambling on and on

Ég verð víst seint tilnefnd sem bloggari ársins. Lazy ass!!
Í atvinnumálum er ekkert að frétta. Sæki um ýmislegt osfrv. Ekki meir um það.
Ég hef verið að fikta í endurbótum heima hjá mér, stundum held ég að ég sé biluð. Hvað í andsk. var ég að hugsa að eyða svona miklum tíma í eitthvað sem mun aldrei líta vel út hvort eð er. Hver dáist að klósettsetum svo sem?? Ég keypti cheap furu klósettsetu, pússaði af henni lakkið, hvíttaði og lakkaði aftur. Fjandans lakkið var frekar gulleitt svo það er gul slykja á þessu helv., smekklegt huh. En ég nenni ekki að gera neitt meira við þetta helv., svo ég verð að sætta mig við þetta eins og þetta er.
Næst er að smíða baðhillur og svo bókahillu. En ætli ég sé ekki að fara á túr, ég man aldrei hvenær, en það er besta skýringin á bölv. skapinu í mér núna í augnarblikinu. Shh ekki segja neinum að ég fái PMS. Best að ég taki bara til og framkvæmi ekki nokkurn skapaðann hlut, endar bara í vitleysu í þessu skapi.
Fór á djammið á föstud., doldið dúllerí í gangi en as always fær mann bara til að hætta að vilja meir. Trainwreck
Nú fer ég á næstu dögum að fá mér ADSL þetta er óþolandi tenging orðið.
Ég keypti mér myndavél í köben en er ekki farin gera mikið með hana ennþá, núna ætla ég að prufa að setja myndir á bloggið í fyrsta sinn.

Engin ummæli: