Jæja Linda klukkaði mig svo nú verð ég að svara með einhverjum 5 staðreyndum um sjálfa mig.
1. Ég á erfitt með að tala um sjálfa mig, vissi hreinlega ekki hvað í ósköpunum ég ætti að skrifa niður hér, er laumu feimnispúki.
2. Það þurfti 6 ár til að rétta tennurnar mínar, ég var svo óheppin að þær skekktust aftur svo að ég fékk teina á ný ári eftir að ég losnaði við þá, og þurfti því að nota góm til tvítugs.
3. Það var fleira í mínu lífi sem ég þurfti að ganga í gegnum tvisvar svo sem eins og bílprófið, ég féll á hringtorginu á gatnamótum Snorrabrautar/Hringbrautar. Mér til mikils léttis var þetta tákn niðurlægingar minnar fjarlægt stuttu seinna.
4. Fyrsti bíllinn minn var Mazda 363 árgerð ?78, við kölluðum hann Fredda fretara vegna aumingjalegrar flautu. Hann var gjöf frá systur minni og mági stuttu eftir bílpróf. Við upplifðum nokkur ævintýri saman svo sem eins og aukaflautur sem byrjuðu að flauta um miðjar nætur á rúntinum eða það að bensíntankurinn féll undan bílnum á Miklubrautinni á háannatíma.
5. Ég hef ekki átt bíl síðan 1989.
Ég get ekki annað en klukkað saumaklúbbinn og þar með talið Ingu Maríu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli