laugardagur, apríl 09, 2005

Kringlan

Ég fór í Kringluna með stelpunum hennar systur minnar á fimmtudag, daginn fyrir minningarathöfnina. Við þurftum að skoða nánast hverja einustu bleiku flík í Kringlunni, sem sagt við fórum inn í allar verslanir Kringlunnar. Mikið er það nú þreytandi enda nenni ég aldrei inn í allar þessar verslanir. Við vorum búnar að fara í margar verslanir þegar ég ákvað að nýta tækifærið á meðan þær skoðuðu enn fleiri bleika boli og skrapp á klósettið við Stjörnutorgið, við hlið ísbúðarinnar. Það er nú vanalega ekki í frásögur færandi, nema hvað !! Þegar ég kem svo af klósettinu gengur til mín myndarlegur ungur maður. Hann spurði hvort hann mætti trufla mig í smástund. Jú jú segi ég enda er maðurinn ekki ómyndarlegur og geri ráð fyrir einhverskonar spurningakönnun eða jafnvel kynningu á einhverri góðgerðarstarfsemi. En nei það var ekki svo. Hann upplýsir mig um það að það sé falin myndavél á salerninu og hvort ég sé samþykk því að myndskeiðið af mér yrði notað í sjónvarpsþátt um venjur íslendinga sem sýna eigi í sjónvarpinu í haust. Mín fyrstu viðbrögð voru að spyrja hvort þetta væri löglegt. Jú hann sagði svo vera að það hefði fengist leyfi frá Kringlunni fyrir þessu og hvort að ég vildi ekki endilega leyfa birtingu á þessu. Hah oh nei, ekki það að ég hefði slæma samvisku yfir því að hafa ekki þvegið hendurnar næginlega vel eða eitthvað slíkt, ef ég fæ einhverju um það ráðið, þá sést ég ekki í fjölmiðlum nema þá fyrir eitthvað merkilegra en það eitt að fara á klósettið. Haldiði það nú falin myndavél á klósetti Kringlunnar. Nema að um félagsfræðilega/fjölmiðlafræðilega rannsókn hafi verið að ræða um hversu langt fólk vill ganga til að komast í sjónvarpið?
Ef þetta væri ekki svona fyndið hefði ég orðið alveg tjúll.

Engin ummæli: