fimmtudagur, febrúar 24, 2005

mæ oh mæ er ég hér á ný

Ég er búin að taka að mér ýmislegt undanfarið. Ekki nóg um allt það sem ég geri í félagi L. Þar sem ég er að leitast við að gera félagsskýrteinið, leita eftir aflsláttartilboðum, hugmyndavinna vegna nýrrar heimasíðu. Heldur er ég komin í verkefni hjá Félagi félagsfræðinga, ég tók að mér að sjá um heimasíðuna. Auk þess að samþykkja að vera í vinnuhóp um fræðslumál/málþing, með gömlum skólabróður Snorra.
Svo vil ég komast í ný verkefni hjá RK í staðinn fyrir það sem ég gerði áður en get ekki gert lengur.
Svo er ég að leita eftir styrkjum eða öðrum framlögum sem geta auðveldað systur minni að koma til Íslands í heimsókn næsta sumar, hana vantar eitthvað slíkt til að halda sér í. En ennþá án árangurs.
Sem sagt það er nóg að gera hjá mér í félagsmálum, vonandi leiðir sú vinna á endanum raunverulega atvinnu af sér.
Sóttist líka eftir námskeiðum sem eru í boði hjá vinnumiðlun. Og er að skoða önnur námskeið sem gætu breytt núverandi stöðu minni. Stöðnun er sama og dauði.
Hlakka til að fá loksins adsl í næstu viku, en þarf samt að laga tölvuna fyrir þann tíma. Það er eitthvað bögg í gangi í henni þessa stundina.
Svo er ég að fara á Árshátíð hjá HS á morgun, svo fer ég í sumarbústaðaferð 11/3 með saumaklúbbnum. Það verður algjört æði.

Annað alveg óskilt öllu öðru, ég uppgvötvaði að ég hef ennþá ákveðna hæfni á sviði spegilskriftar. Ef ég set mig í stellingar get ég skrifað í spegilskrift og lesið líka. Hins vegar er skriftin hroðalega ljót. Enda hef ég enga æfingu haft á þessu sviði síðan ég var vanin af þessu á frekar ónærgætin hátt hjá henni Jónínu forðum daga.
Mér finnst þetta soldið fyndið.

Engin ummæli: