fimmtudagur, nóvember 11, 2004

hó hó

Fyrst það eru þvílík tíðindi að ég bloggi eitthvað að viti að lesendur fái hreinlega sjokk þá er um að gera að halda þessu uppi.
En varla sjokkera ég mikið núna, mér er runnin reiðin og viðkvæmnin tók við. Bögger, kann betur við reiðina, hún er betri meðal almennings.
Ég var að skrá mig atvinnulausa í dag og þurfti pappíra frá gamla vinnustaðnum, svo ég heilsa upp á fólk í leiðinni og fæ mér kaffi. Ég fer ekki í kaffi þangað á næstunni.
Merkilegt hversu mikið ein spurning getur verið átakanleg. "Ertu búin að fá vinnu" verður að óþolandi poti og staðfestingu á því að maður sé ömurlegur. Þegar ég var að reyna að ýta þessu frá mér kom "já þú ert bara að sækja um sérstaka vinnu" grrr get lost.
Hvað varð um "sæl!" eða "hvað segirðu!" eða jafnvel "hvernig gengur". Og verandi á þessu tímapunkti klukkutímanum áður en túrinn byrjaði, vöknaði mér um augu ég er soddan vælukjói og þoli það ekki við sjálfa mig. Að lokum þegar hálft fyrirtækið var búið að heilsa mér á þennan hátt, þá bað ég fólk um að spurja ekki lengur og forðaði mér.
Bölvaður dónaskapur er þetta, eins og að spyrja fólk sem er að koma úr meðferð, "ennþá þurr??" Eða hjón í hjónabandserfiðleikum "hangið þið enn saman?" Eins og að maður myndi ekki láta það fréttast um leið og tækifæri gæfist að maður væri komin í alvöru vinnu. Ég vil nú ekki þykjast eitthvað, því allt kemur upp um síðir, eins og sannaðist með eina sem hætti að vinna þarna og mátti víst ekki segja frá nýja vinnustaðnum og reyndist vera farin í vændið.
En ósköp langar mig til að segjast gera eitthvað flott, nei come on ég er yfir það hafin hvort eð er. Ég var of góð fyrir þennan stað og er það enn, ég verð bara að vera grimmari.

Engin ummæli: