þriðjudagur, mars 01, 2005

degi seinna

Mán 28/2
Tölvuvesen, eins og oft áður. Jæja það var alveg ljóst að greyjið litla þyrfti stærra vinnsluminni, hún var varla starfhæf lengur.
Í ljós kom að það var hreinasta kraftaverk að hún skyldi virka og það var ekki ljóst hvaða forrit og skrár urðu til þess að minnið hvarf. Þetta var allt hið undarlegasta mál þegar nánar var athugað í dag. Og var svo keypt og sett upp meira minni sem og frekari harður diskur sem til var fyrir var settur upp líka. Ekki nóg með það heldur byrjuðu öll önnur drif að stræka í lok síðustu viku og gera enn. Það er 2 cd drif, floppy og USB tengt laust drif (þ.e.a.s. stafræna myndavélin mín). Very weird, því það finnst ekkert að neinu að þessum drifum samkvæmt öllu innan stýrikerfisins. Og Troubleshoot fítusinn í XP er algjörlega ónothæfur. Þetta er furðulegar villur sem ég fæ alltaf, allavega get ég sett upp backup núna á aukadiskinn fyrst ég get ekki gert cd með backup.
Hey hey svo kemur í ljós að einn af stillingartökkunum á skjánum sem er innan við 6 mánaða gamall er bilaður, þannig ef ég vil stilla skjáin af þá get ég bara minnkað ekki stækkað sem þýðir að nú er svört rönd allt í kring og ég get ekki breytt því.
Og ofan á þetta kemur sú staðreynd að símalínan er biluð. S.s. ekkert net eða símasamband í dag. Ég var farin að tengja þetta tölvunni, að það væri ástæðan fyrir símaruglinu. Ekki síst því ég fékk símtal frá Hive í dag um að ADSL tengingin væri komin í gang og að búnaðurinn yrði sendur í kvöld. Shiiiit ég hef bara engann tíma þessa vikuna til að taka við þessum búnaði. Ekki nema að ég fari til þeirra að sækja hann í fyrramálið, til að setja hann upp sjálf, en þá er ég að bíða eftir símamanninum.
Þetta er bara ekki að ganga, sumar vikur eru tómar á meðan aðrar eru way too much.
Ok ég er í dagvinnu við verðupptöku í verslunum fyrir HS þri, mið og fim. Og í kvöldvinnu þar líka, þrið. og miðv. Og þyrfti að vera fim líka en þá er ég að fara á fund í fagdeild FL: Í kvöld var aðalfundur sem gekk vel, en var ástæða þess að ég gat ekki unnið mína venjulegu vakt í HS í kvöld. Miðvikudagskvöld er svo skipulagssaumó vegna sumarbústaðaferðar, en ég verð að vinna. Ég hef ekki efni á að missa meir en eina vakt á viku.

Dreymdi að ég eignaðist tvíbura, alveg óvænt, ég vissi að ég væri að fara að eiga. Fann ekki fyrir neinu en svo þreifaði ég og fann að kollurinn var komin út. Og áður en ég vissi af var barnið komið í heiminn og svo fann ég fyrir öðrum kolli og seinna barnið kom. Börnin voru sitt af hvoru kyninu. Hvað skyldi þetta þýða, tilfinningin sem ég hafði var að allt yrði gott.
Svo ég leit í Draumaráðningabókina eftir Þóru Elfu Björnsson (Skjaldborg, Reykjavík 1987) og sjá:

?Tvíburar. Það boðar mikla gleði ef þig dreymir að þú hafir eignast tvíbura. Að leika við tvíbura merkir að gæfan leiki við þig? S:146

?Fæðing. Að vera viðstaddur fæðingu þar sem allt gengur vel er fyrir góðu...Að sjá tvíbura eða þríbura fæðast er fyrir mikilli aukningu veraldlegra gæða.? S: 63

?Barn. ... Flestir draumar þar sem börn koma við sögu þykja ekki fyrir góðu, sbr. ?Böl er ef barn dreymir nema sveinbarn sé og sjálfur eigi? ... Að eignast tvíbura í draumi er fyrir tvöföldum erfiðleikum.? S: 35

Og hvaða merkingu kýs ég að taka mark á ??

Jæja nóg í bili þetta er náttúrulega skrifað með uppfærslu seinna í huga.


.

Engin ummæli: