Ég var að fá frábærar fréttir, alltaf gaman að heyra af hamingju annara.
Til hamingju dúllan mín, ég veit þú lest þetta. Þið eruð líklega bara tvær sem ´kýkið inn á þetta hjá mér.
Þú átt allt það besta skilið.
Ég hef ekki verið dugleg að skrifa ég veit.
Ég var að taka að mér nýja aukavinnu um daginn, til viðbótar við allar hinar vinnurnar. Ég var að þýða úr þýsku á íslensku og fannst það rosalega gaman. Gyða hringdi í mig því bossinn hennar þurfti að fá þetta þýtt og vantaði einhvern sem kynni þýsku og væri klár. Gaman að hún hugsaði strax til mín.
Eitt verkefni getur alltaf leitt til annars....
Ég hafði einmitt verið að bölva þessum vitleysingum sem þýða fyrir sjónvarpið, sá um daginn þýskan þátt í RÚV sem var einmitt svo ílla þýddur að merkingin snérist upp í algjöra vitleysu.
´Hringdi í dag til að forvitnast um umsókn sem ég sendi rannsóknarstofnun háskólans á Akureyri. Það voru ´víst ekki nema 12 sem sóttu um þessar 2 stöður, mér líkar þessar líkur ágætlega 1 á móti 6. Betra en um það bil 100 um eina eins og oft hefur verið um þessi störf sem ég hef sótt um.
Núna verð ég að klára eina sem ég þarf að skella inn á pr stofu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli