mánudagur, janúar 31, 2005

eftir langa þögn

Ég er svo leiðileg þessa dagana og ekki líkleg til að skrifa mikið þessa dagana. Ég er greinilega ekki týpan til að skrifa frá mér allar tilfinningar mínar, þó það gerði mér eflaust gott. En hvernig getur maður það í algjörri deyfð. Janúar er nógu deprimerandi mánuður fyrir svo ekki sé öllum vondum hlutum dembt á mann í leiðinni. Ekki furða að flest fólk deyji á veturna.
Allavega á ég erfitt með að halda mér frá rúmminu, sef of mikið ef færi er til. Gæti allt eins sofið í
16 af 24. Reyni að drusla mér áfram. Drifkrafturinn enginn, umsóknirnar færri en ættu að vera. Rembist við að gera eitthvað af viti með að vinna eins mikið og HS leyfir. Er í sjálfboðavinnuni áfram, fór á námskeið hjá RK um síðustu helgi. Sat við hliðina á framkvæmdastýru RK og spurði hana í leiðinni eftir vinnu. Greinilega ekki daufari/dofnari en svo að ég gat það. En því miður er ekkert þar þessa stundina. Can't blame a girl for trying!
Mútta flýgur til Sverige á mið. og verður í óákveðinn tíma. Ég veit ekki með mig hvernær ég kýki næst. Í seinasta lagi um hvítasunnu í ferminguna.
Svo er ég líka að vesenast í fél. leið. til að nýta tímann og að gera eitthvað .
Verð að vinna dag og kvöld næstu 2 daga, þetta er svo óþolandi sveiflast frá engu í allann tímann sem dagurinn veitir manni. Ég nenni þessu lífstíl ekki mikið lengur. Verð að komast í fasta vinnu allavega um tíma sem allra fyrst.
Thats all folks
A






Engin ummæli: