Gleðilegt nýtt ár elsku bloggsíða, ég hef vanrækt þig undanfarið. Lesendur þínir hafa skammað mig fyrir þessa vanrækslu, og krafist þess að ég standi mig í stykkinu þegar kemur að skriftunum.
Svo nú kæra síða og kæri lesandi hef ég hugsað mér að nýtt tímabil hefjist þar sem ég skrifa hreinlega of mikið og enginn nennir að lesa það sem ég skrifa ha ha ha .
Ég lagði tarot fyrir árið fyrir sjálfa mig á nýársdag. Í fyrstu virtist þetta vera hin hrikalegasta spá og var ég ekki sátt við hana að neinu leiti. Mér fannst það ekki sniðugt að öll spilin væru á hvolfi, hmm bíddu nú aðeins öll á hvolfi ekki bara stöku spil. He he he ég hafði snúið stokknum öfugum. Þá las ég úr spilunum eins og þau hefðu snúið rétt og það var allt önnur saga.
Sem sagt þetta ár verður mjög gott hjá mér samkvæmt spilunum. Þá á ég að fá uppskeru erfiðisins ef ég legg mig fram við að fá það sem ég vil.
En það eru náttúrulega ákveðnir hlutir sem ég verð að gera sjálf og verð að vara mig á eigin göllum.
Þessi tarotlögn var að mörgu leiti samvkvæm nokkrum stjörnuspám fyrir árið sem ég hef safnað saman.
Hvað svo sem býður mín, get ég ekki annað er verið bjartsýn á þetta ár. Mér finnst ég bara eiga það skilið.
Ég gerði engin áramótaheit, en ég geri markmið fyrir árið áður en Janúar er liðinn og um leið set ég upp leiðir að markmiðunum.
Kannski skrifa ég eitthvað um þessi markmið hér seinna.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli