fimmtudagur, janúar 29, 2009

Vinna vinna vinna

Ég er endalaust að vinna. Og ég hló þegar ég las stjörnuspánna mína rétt í þessu.

Sporðdreki: Þú þarft að gæta þess að ganga ekki fram af þér með vinnu. Mundu bara að gjalda líku líkt þegar þar að kemur. Nýttu þér andlegt og líkamlegt atgervi þitt til hins ítrasta.

Mér finnst þetta vera frekar þversagnarkennd spá, annarsvega að passa sig á að ganga ekki fram af sér en að nýta sér andlegt og líkamleg atgerfi til hins ítrasta??

Allavega er gríðarlega mikið að gera og aldrei virðist koma endir á þau verkefni sem ég er að reyna að vinna. Enda vantar mig sárlega starfsmann í 75% starf. Greinilega ekki atvinnuleysi í þessum geira.

Engin ummæli: