Mér líður vel í dag er bjartsýn og full af orku, þó svo að tölvuræksnið sem ég keypti í nóvember hafi hreinlega dáið.
Ég er að byrja sjálfboðastarf hjá Rauða krossinum, það er eitthvað sem ég hef hugsað lengi um en einhvern vegin hefur alltaf vantað drifkraftinn í að framkvæma það. Nú er skrefið tekið og ég er svo ánægð með það. Margir í kringum mig hafa haft það á orði að þetta væri eitthvað sem þau hefðu íhugað að gera. Ég er ekki byrjuð í raun ennþá en ég vil endilega hvetja alla til að kynna sér málið, það geta langflestir gefið 6 tíma á mánuði af sér. Sleppt því að horfa á TV eitt kvöld eða svo.
Allavega þá fór ég á 1 námskeiðið af 3 í gærkvöldi, svo mun ég fara á 2 til viðbótar áður en ég get farið að svara í hjálparsímann. Þetta var grunnnámskeið rauða krossins, um starfsemi samtakana og uppbyggingu. Næst er svo sálræn skyndihjálp og að lokum viðtalstækni.
Ég er mjög svo spennt að fara að gera eitthvað nýtt og að kynnast nýju fólki, þó að verkefnið sjálft sé eflaust mjög svo krefjandi og erfitt, þá held ég líka að það sé mjög gefandi.
Svo var stjörnuspáin mín svo góð í dag að ég get bara ekki annað en verið bjartsýn.
Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Endalausir möguleikar einkenna stjörnu þína hér. Hér bíða tækifæri eftir því að vera uppgötvuð og framkvæmd en þú átt það stundum til að forðast þau og trúna á getu þína til afreka. Þegar þú hefur sæst við sjálfið eflist orka þín og ekki síður framkvæmdasemi þín. Horfðu til stjarnanna og sannfærðu sjálfið að heillastjarna þín skín skærust þeirra allra. Óskaðu þér og sjá, birtan eltir þig uppi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli