Thank god it's friday!!!
Og föstudagurinn 13 í ofanálag, júhú. Ég hef alltaf haldið því fram að þetta hlyti að vera lukkudagur fyrir mig, sný sem sagt hjátrúnni í andhverfu sína. Verð að kaupa lottó í dag hi hi.
Sá auglýsingu um netsmell flugLEIÐA til Glasgow og langar allsvakalega að skella mér til Lindu í helgarferð, hmm. Fjármálin leifa það ekki eins og er en ef lukkan er mín megin og ég hef ástæðu til að ætla að fjárhagurinn muni batna á næstunni þá myndi ég skella mér umsvifalaust.
Næsta vika verður frekar busy, námskeið hjá Rauða krossinum í 4 daga í þeirri viku. En gaman held ég, mig hlakkar til.
Ég ætla að klára ýmislegt dútl heimavið áður en þetta byrjar svo að ég þurfi ekki að spá í það seinna meir, þegar tíminn er ekki lengur fyrir hendi.
Tölvan enn´þá í viðgerð.
kv.
Auður
Engin ummæli:
Skrifa ummæli