sunnudagur, febrúar 25, 2007

Prinsessur og afmæli

Hamingjuóskir í allar átti.
Elsku Linda til hamingju með afmælið, fyrsta afmælið sem mamma... er það ekki bara betra en áður.
Elsku Larissa til hamingju með fallegu prinsessuna þína... njóttu þín.

Bank bank

Nýju auglýsingarnar frá SPRON eru meiriháttar kaldhæðni í mínum augum. Almennt séð er fólk mjög tregt til að skipta um banka, það byrjar í einum og er þar áfram nánast hvað svo sem gengur á. Í þessum auglýsingum frá Spron er verið að sýna fólk sem er við það að segja bankanum sínum upp, með það fyrir augum að reyna við SPRON.
Sem er gott og blessað, bankamál hafa mikið verið í umræðu undanfarnar vikur. Gróði bankanna, áberandi markaðsstarf, nafnabreytingar, stórfenglegar veislur og önnur eyðslusemi sem fólk hefur tekið eftir. Vangaveltur koma upp varðandi það hvort bankarnir ættu ekki frekar að lækka þjónustugjöldin eða gera eitthvað annað fyrir viðskiptavinina frekar en að eyða peningum á þennan hátt. Svo vissulega getur verið sóknarfæri fyrir banka sem ekki hefur verið áberandi fyrir eyðslusemi. En aftur af minni reynslu af SPRON.
Nánast öll fjölskyldan mín hefur verið í viðskiptum við SPRON síðustu 50 ár. Pabbi hafði verið með bankabók þar alla sína æfi þegar hann dó fyrir 20 árum, hann átti allar bækurnar ennþá. Mamma gaf bankanum allar þessar gömlu bækur eftir andlát hans, þær hljóta að vera merkur hluti af sögu bankans. Þegar þau giftu sig fyrir 50 árum varð mamma viðskiptavinur SPRON. Hún persónulega er sem sagt búin að vera í viðskiptum við bankann í 50 ár, hefur alltaf staðið í skilum þ.e.a.s. verið fyrirmyndar viðskiptavinur. Hún varð óánægð með bankann á síðasta ári, hún gerði þá kvöfu að hún gæti fengið sömu þjónustu þar og í öðrum banka, þar sem hún hefur einnig verið í viðskiptum undanfarin ár. Við þeirri ósk var ekki orðið, hún sendi uppsagnarbréf til bankastjórans þar sem hún tók fram hvaða kröfur hún hefði gagnvart bankanum auk þess sem hún tók fram hversu lengi við hefðum verið í viðskiptum við bankann. Hún hefur ekki fengið nein svör við því bréfi. Hún er því búin að segja upp bankanum sínum og komin í viðskipti annarstaðar. Það má einnig taka það fram að hún fékk ekki jólagjöf frá bankanum þegar allir aðrir fengu jólagjafir frá bankanum síðustu ár. Nýji bankinn sendi henni meira að segja afmælisgjöf á 70 afmælinu.
Ég er reyndar ennþá í viðskiptum við SPRON, en það er bara af því að ég er í miklum vandræðum með að finna réttann banka fyrir mig. Einhvern sem ekki er búinn að vera áberandi fyrir eyðslusemi og óhófleg þjónustugjöld. Ég verð að drífa í þessu núna og skoða alla bankana til þess að ákveða mig. Ég hef hugsað mér að segja SPRON upp því þeir ljúga því í auglýsingum sínum að þeir lagi sig að þínum þörfum. Þeir taka ekki mark á gömlum viðskiptavinum og leita frekar að nýjum. Viðskiptatryggð skiptir engu máli.

miðvikudagur, febrúar 07, 2007

Evra eða ekki Evra

Ég hreint út sagt skil ekki þessa umræðu um Evruna, skoðanakönnun sýnir að jafnmargir vilja Evru á Íslandi og hafna henni. Ég lenti í úrtaki og sagði hreinlega að ég bara vissi það ekki, þegar ég var spurð hvort taka ætti upp Evru á íslandi. Þetta er ekki svo einfalt að það að skipta um gjaldmiðil myndi breyta efnahagsmálum á Íslandi. Ég held að skuldinni sé of einfaldlega skellt á krónuna, þegar pólitísk stjórnun efnahagsmála er ábótavant. Sem og íslendingar sem neytendur eru hjarðdýr sem láta bjóða sér hvað sem er...
Það hefur hvergi í umræðunni verið minnst á þær fórnir sem almenningur í Evrópu hefur þurft að færa vegna upptöku Evrunnar. Verðbólga átti sér stað í skugga breytinganna,t.d. í þýskalandi átti hlutfallið á milli Evru og Marks að vera 2 Mörk fyrir eina Evru. Fljótlega fór að bera á því að hlutir sem kostuðu 1 Mark fyrir breytingu kostuðu 1 Evru eftir breytingu. Á þessum hlutum var því 100% hækkun.
Þeir íslendingar sem muna svo langt aftur í tímann sem til ársins 1981 þegar krónan var gjaldfelld og 00 tekin aftan að, hljóta að muna eftir slíkum dæmum. Við erum bara að upplifa það núna að þegar að lækka á virðisaukaskattinn þá eru vörur hækkaðar áður en til þess kemur til að græða alveg örugglega á þessu.
Sem sagt að taka upp Evru er ekki mál sem afgreitt er með einni einfaldri spurningu án þess að fólk sé upplýst um hvað málið snýst.

mánudagur, febrúar 05, 2007

Ferðalög

Jæja árið 2007 lofar að verða ferðaár hið mesta. Allavega eru 3 ferðalög í pípunum hjá mér, en það ætlar ekki að verða sársaukalaust að finna flug og annað tilheyrandi.
Fyrst er af því að segja að mig langar að skreppa til Munchen og Augsburg um páskana en þá eru samgöngur þangað heldur lélegar. Flest lággjaldaflugfélögin sem flugu þangað frá öðrum stórborgum evrópu hafa hætt að fljúga þangað. Expressinn flýgur til Friedrichshafen en bara ekki á þessum tíma... (vetraráætlun líkur miðjan mars, byrja aftur að fljúga í lok apríl) Svo ég er á báðum áttum orðið með þá ferð, nei ég ætla að fara, þó það sé bölvað vesen.
Svo er ég að fara með mömmu í vikuferð til svíþjóðar í seinustu ferminguna þar um miðjan maí, ég veit ekki hvernig stendur á þessu en fermingarnar eru alltaf á sama degi og Eurovision??? Sem er svo sem ekkert slæmt það er gaman að því, ég held ég hafi horft á fleiri Eurovision keppnir erlendis en heima frá því íslendingar hófu keppni, annað hvort í svíþjóð eða þýskalandi.
Last but not least er planið að fara í söngferð með kórnum á Ólafsvöku í færeyjum, síðustu helgina í júlí.
Svo er aldrei að vita nema að maður láti sér detta í hug einhverjar fleiri ferðir svona last minute.

fimmtudagur, janúar 25, 2007

klúður

ég var búin að skrifa helling, fékk blogger ekki til að birta það. Stressaði mig ekki yfir því var svo séð að kópera allt. En gleymdi því svo og kóperaði síðar eitthvað annað án þess að hafa komið öllum textanum einhversstaðar fyrir svo textinn týndist þó að ég hafi passað að kópera. æj æj nenni þessu ekki

þriðjudagur, janúar 23, 2007

Köttur og mús

jæja þá er mín barasta komin með gæludýr, alveg óviljandi. Og er núna algjörlega ósofin og taugatrekkt. Svo er mál með vexti að það er músagangur hjá mér og mýslan vill ekki í gildru svo ég greip til þess ráðs að fá lánaðan kött. Og kötturinn hélt fyrir mér vöku í nótt frekar en tilhugsunin um mýslur.

mánudagur, desember 25, 2006

Gleðileg jól

Gleðileg jól
Mikið er nú gott að eiga góða að þegar eitthvað bjátar á. Á jólum gæti smáatriði sett soldið stórt strik í reikninginn. Svo sem eins og þegar ofninn reynist bilaður kl: 4 á aðfangadag. Hvað gerir fólk þá, fyrir utan hangiketið er nánast allur matur á jólum eldaður í ofni. Sem betur fer kaupa flestir allt of mikinn mat og lítið mál að bæta matargestum við á síðustu stundu. Steikin hennar mömmu fór barasta beina leið í frystinn og við Mamma og Börkur fórum í mat til Hlyns bróður í gær. Svo var planað að fara til þeirra í hangikjöt í dag og gerðum við það. Á morgun er öll fjölskyldan boðin í kalkún til mömmu, svo við verðum að skutlast með fuglinn til Hlyns, steikja hann þar og koma honum svo hingað. Það er mjög hentugt að bræðurnir séu hérna í næsta nágrenni við mömmu. Þá er hægt að redda þessu án þess að maturinn kólni á leiðinni, auk þess sem hægt er að drekka rauðvín með matnum og ganga heim.

fimmtudagur, desember 21, 2006

heimför frestað

Veðurhamurinn lætur ekki að sér hæðast, það er alveg á hreinu. Ég held ég bíði þar til þessi stormur sem spáð er í dag er liðinn hjá. Það breytir engu þó ég hafi bara þorláksmessu til að versla allar jólagjafirnar. Ég verð bara að lifa með því, kannski ég fái einhverstaðar eina róandi til að hafa það af að vera að versla á þessum degi. Mamma á líka allan jólaundirbúning heimilisins eftir, þ.e. fyrir utan það að versla. Hún var nefnilega að koma frá Kanaríeyjum í gærkvöldi, jæja aðalatriðið er nú bara að kaupa í matinn, við getum bara slökkt ljósin og verið með kertaljós eingöngu til þess að fela rykið og skort á öðrum skreytingum. Mútta er eflaust búin að kaupa sér jólasúkkulaðið sitt frá Lindt í fríhöfninni. Þá er um að gera að redda henni nýjum og spennandi glæpasögum og hún er happy camper.

sunnudagur, desember 17, 2006

Blogglestur

Ég er nú ekki manna duglegust að skrifa á þetta blogg, tek mig samt á öðru hvoru sérstaklega þegar ég tek eftir því að þessir pistlar eru lesnir. Þ.e.a.s ég fæ einhver komment. En ég er mikið duglegri við að lesa önnur blogg, það eru fastir liðir í rúntinum sumar eru lesnar daglega aðrar sjaldnar. Það eru ýmsar barnasíður vina og vandamanna, maður fylgist með mörgum einstaklingnum vaxa úr grasi í fjarlægð. Svo er það náttúrulega saumaklúbburinn, vinir erlendis og vinir vina erlendis. En öðru hvoru rekst maður á gamalkunnugt fólk sem maður átti samleið með einhvertímann á lífsleiðinni sem maður er farin að fylgjast með daglega svo sem eins og Silja sem var með okkur í 9 bekk og Lára gömul bernskuvinkona frá Háaleitinu og Álftó. Gyða og Linda ættu að muna eftir þeim, aðrir lesendur láta sér bara fátt um finnast.

fimmtudagur, desember 14, 2006

Öryggi í umferðinni

Jú víst er það Gyða, ég hvíldi mig um leið og ég fann að kaldur gustur var ekki nóg til að hressa mig við. Og þvílíkur munur sem 10 mín. lúr getur gert. Öll fjölskyldan hefur lagst á eitt við að ráðleggja mér um hvað ég þurfi að hafa með í bílnum til að vera örugg á þessum vetrarferðum mínum norður og suður. Svo nú er ég komin með svefnpoka í bílinn, líka loðfóðraðann útigalla, gönguskó, skóflu, keðjur, kerti, vasaljós, heitt vatn á brúsa, harðfisk, húfu og vettlinga. Það má segja að ég sé bara orðin við öllu búin, nema því að hafa farþega í bílnum því á endanum verður ekkert pláss í bílnum. Og héðan í frá fer ég ekki af stað nema úthvíld, ég geri mitt besta til að aka varlega, á viðeigandi hraða, ekki taka framúr nema ástæða og aðstæður bjóði upp á það, ég geri allt í mínu valdi til að vera örugg í umferðinni en ég get ekki ábyrgst það sem aðrir gera. Bíllinn er í góðu standi, ég er með auka brúsa af rúðuvökva og dekkjahreinsi í bílnum. Til skemmtunar hlusta ég svo á hljóðbækur á meðan á ferðinni stendur, engin ástæða til að vera alltaf að skipta um útvarpsrás, annars er útvarpið stillt á gufuna á langbylgju til að missa ekki af fréttum hvar svo sem ég er stödd á leiðinni. Ég held ég sé farin að hljóma eins og Frímann Gunnarsson svei mér þá, hér með er þessum pistli lokið.

föstudagur, desember 08, 2006

desemberstress

Úff, desember er ekki eins ljúfur og ég vildi hafa hann. Stresssið er mann lifandi að drepa. Í fyrsta lagi ætlaði ég aldrei aldrei aftur að flytja í desember, ég hata það að flytja og að gera það ein, en allra mest hata ég að gera það í desember. Maður finnur aldrei neitt, nú finn ég ekki adressubókina mína til að senda kort og pakka út um allt. Og ég fæ ekki svör við sms og email þegar ég óska eftir adressum, hvað er þetta vill enginn tala við mig.
Svo er stress í vinnuni, fullt af fundum, fjárhagsáætlun og svoleiðis vesen. Svo er ég ekki farin að hugsa um aðrar jólagjafir en þær sem fara í póst.
Gleði mánaðarins er að hitta mág minn og yngstu systurdóttur mína sem eru í heimsókn frá svíþjóð núna. Ég gat samt ekki hitt þau fyrr en í kvöld þegar ég kom suður.
Ég var næstum sofnuð undir stýri í dag, ég fékk sjokk þegar ég sá stykki úr fjallinu fyrir framan mig hreyfast, lagði bílnum og lagði mig í 10 mín og hresstist við það, fékk mér svo kaffi við næsta tækifæri. Þetta hefur ekki komið fyrir mig áður.

föstudagur, nóvember 17, 2006

Veður II

Ég er smám saman að læra á það hvernig það er að búa úti á landi og hvernig veður hefur áhrif á allt og þá sérstaklega vetrarveður á norðurlandi. Núna er ég búin að upplifa það að þurfa að breyta öllum ferðaplönum vegna veðurs (maður þekkti það svo sem), að vera veðurteppt heima hjá sér vegna veðurs og komast ekki í vinnuna þess vegna og að vera á ferðinni í veðri sem maður ætti ekki að vera á ferðinni í. Og allt á einni viku. Síðustu helgi fór ég í bæinn á fimmtudegi og til baka á sunnudegi, það var ekki útlit fyrir ferðaveður á föstudegi né á mánudegi. Á mánudaginn komst ég ekki í vinnu vegna veðurs, útidyrahurðin hélt ekki veðrinu svo ég varð að stafla dekkjum upp við hana til að halda henni. Á miðvikudag lennti ég í blindbyl á leið heim úr vinnu og ætlaði að snúa við en það var ansi erfitt þegar maður sá á stundum ekki einu sinni stikurnar hvað þá hvar maður var, í stað þess að snúa við, villtist ég heim! Hvað sem öðru líður þá er ég svo ánægð með bílinn minn sem lætur ekkert á sig fá, drífur allt sem komið er, er stöðugur í allri færð sem við höfum lennt í ennþá. Þetta voru mjög góð kaup.
Í kvöld er svo árshátíð heilbrigðisstofnunar Blönduóss og ég mun syngja með sjúkrahúskórnum uhum, komin tími til að gera sig að fífli.

fimmtudagur, nóvember 09, 2006

Veður

Jæja núna er óveður að skella á þessa helgina eins og þá síðustu og ég veit bara ekki hvað ég á að gera. Planið þessa helgina var að fara suður eftir vinnu í dag, á morgun átti ég að vera á fundi/ráðstefnu í Hvalfirðinum allann daginn. Því er aflýst vegna veðurs. Ég læt mér þá detta í hug að fara þá í vinnuna eins og vanalega á morgun og fara eftir vinnu á morgun. En spáin er ekki góð, óveður allann daginn á morgun. Alls ekkert ferðaveður. What to do... á ég að fara eftir vinnu í dag en þá get ég ekki gert allt það sem ég ætlaði mér að gera á morgun fyrst ég græði þarna vinnudag. Eða bíða og fara ekki fyrr en á laugardag?

þriðjudagur, nóvember 07, 2006

Heima er best

Jæja ég er eflaust að bera í bakkafullann lækinn í bloggheimum með því að taka þetta til umræðu en mig langar til að eyða nokkrum línum í uppákomuna í sjónvarpsþættinum Innlit/Útlit.
Þið sem ekki vitið hvað um ræðir (útlendingarnir ykkar) þá er málið þannig vaxið að fólki ofbauð lýsingarnar á ástandi á íbúð nokkurri sem leit bara þokkalega út í mynd. Ungur maður kaupir sér íbúð og ætlar sér að breyta henni eftir eigin höfði og sjónvarpið fær að kýkja inn fyrir og eftir breytingar. Hmm ég hafði ekki séð þáttin þegar ég las um þetta í blöðunum og varð því að kýkja á þetta þegar ég rakst á endursýninguna í gær. Þess má geta að ég er alveg hætt að nenna að horfa á þennan þátt því magn óbeinna auglýsinga í þættinum er óþolandi.
Og jú ég er sammála því sem ég hef verið að lesa um þetta, dónaskapurinn er yfirgengilegur. Þáttastjórnandi og húseigandi eru sammála um að eldhúsinnréttingin sé algjört ógeð, svo ljót að það væri ekki hægt að bjóða fólki hana gefins. Það væri að gera fólki ógreiða með því. Hmm innréttingin er greinilega ekki eftir smekk allra, en í þokkalegu standi, nýleg meira að segja. Áfram tyggja þeir á orðinu ógeð, þeir gátu ekki einu sinni verið með fjölbreyttan orðaforða í þessum lýsingum sínum. Baðið er ógeð, viðkomandi treystir sér ekki einu sinni til að pissa í klósettið þarna. Allt skal vera rifið út og íbúðin gerð fokheld. Viðarrimlagardínurnar sem voru í íbúðinni voru svo mikill viðbjóður að vinur hans ældi á gólfið yfir því hvað þær væru ljótar. Í mynd var þetta hið þokkalegasta bað kannski ekki það nýjasta og flottasta en ók og hreinlegt á að líta. Ekki eins og á ýmsum staðnum sem maður hefur skoðað um tíðina. Og rimlagluggatjöldin voru þessi dökku breiðu viðarrimlar sem eru svo víða eftir að þeir komust í tísku í kringum 2000.
Ég kann alltaf betur og betur að meta Völu Matt í þessu hlutverki, þó orðaforðinn hafi verið takmarkaður og síendurtekin þegar hún var með þennan þátt, fann hún alltaf eitthvað gott að segja um allt sem hún sá. Ef það var ekki eftir hennar smekk þá var það ekki "augnakonfekt" heldur "áhugavert". Hún hefur eflaust haft í huga að það þarf að hafa áhorfendur góða, sama hvaða smekk þeir hafa. Jafnvel þó hann sé "síðri" en eigin smekkur. Ekki bara vegna þess að þeir kaupa það sem auglýst er í þættinum í meira og minna beinum og óbeinum auglýsingum. Heldur einnig vegna þess að það er fólkið í landinu sem er að hleypa þessu fólki heim til sín og það getur auðveldlega orðið hikandi við að opna dyrnar á heimili sínu. Vill ekki láta dæma sig á þennan veg. Einhver þeirra sem leitað er til síðar gæti allt eins verið sá sem seldi manninum ógeðis íbúðina, hver veit.
En svo er þetta innslag einnig birtingarmynd fyrir tvennt í þessu þjóðfélagi sem ég á erfitt með að umbera: Annarsvegar þessi flottræfilsháttur, henda öllu og kaupa allt nýtt, neytendur fram í fingurgóma, kaupa kaupa kaupa, aldrei nýta, aldrei hugsað um umhverfið og vaxandi ruslahauga heimsins og þverrrandi auðlindir vegna þessa lífstíls. Hins vegar mjög tengt fyrirbæri, þessi persónuleiki sem kallaður er hnakki, sem er svo útlitssinnaður að yfirborðsmennskan yfirtekur allan persónuleikann sem ekki er fær um að setja sig í spor annara. Og á sama tíma er tjáningin einskorðuð við einhæfðan og fordómafullann orðaforða og viljandi ranga málnotkun til að virka töff og flottur á allann hátt, s.s. yfirborðsmennska út í gegn.

föstudagur, september 15, 2006

Föstudagur

Ósköp var síðasta færsla neikvæð, ekki að furða að fólk athugi hvort það sé ekki allt í lagi með mig. Jú jú ég er í lagi.
Tók heldur betur til í símreikningunum í vinnuni, sá símanúmer sem enginn kannaðist við og lét loka þeim. Komst svo að því að annað var vegna adsl tengingarinnar okkar, s.s. ég lét loka fyrir netið og eins og gerist og gengur tók það heila viku að fá þetta í lag aftur. Hreinlega skelfilegt ástand. Þess utan er ég búin að missa nettenginguna heima hjá mér líka, stundum kemst ég á netið og þá helst bara inni á baði. Mér finnst það bara ekki gaman að sitja á klósettinu með lappann svo ég nenni þá yfirleitt ekki á netið.
En nú er ég farin að fara meira út á meðal fólks hér í sveitinni, er komin í kór... he he,nýstofnaðan sjúkrahússkór.
En nú er föstudagur og ég er farin til Reykjavíkur til að vera yfir helgina.

fimmtudagur, ágúst 24, 2006

þreytt

Ég er alveg ónýt, ógeðslega þreytt, sef illa, er kannski að taka vinnuna með mér heim sem er ekki nógu gott, það gerir mig veika.

þriðjudagur, ágúst 22, 2006

húðlöt

Ég verð eiginlega að viðurkenna að ég er húðlöt, ég hafði hugsað mér að skrifa ferðasöguna niður hér, sérstaklega sjálfrar mín vegna svo ég gleymi engu. Ég hef ekkert gert að viti þegar ég er ekki að vinna hangi ég yfir sjónvarpinu, nenni eiginlega hvorki að taka til né gera nokkuð annað að viti. Um helgar fara 6 tímar í akstur og restin í að gera eitthvað meira af viti en ég geri í vikunni.
Ástæðan fyrir því að ég ákvað að skrifa nokkrar línur núna er að ég var að lesa Spiegel Online og fannst algjört æði að sjá að sama umræða og á sér stað hér á sér stað þar. Það er gagnrýni á ofurlaun stjórnenda ég er ekki búin að lesa alla greinina enda er ég í vinnuni og bara renndi svona aðeins yfir hana. Líkar afskaplega vel tónninn í henni um óeðlilega miklar kauphækkanir stjórnenda stórfyrirtækja á verðbréfamarkaði, hækkanir sem ekki er hægt að réttlæta. Það má kannski minna á Enron og fleira í BNA sem átti rót sína í árangurstengdum rosalaunum sem voru hvatning til stjórnenda til að falsa bókhald til að allt liti mikið betur út og launin með.

mánudagur, júlí 24, 2006

Fyrsta heimsóknin

Fyrst í heimsókn til mín hingað norður(fyrir utan Röggu og Steinar sem hjálpuðu mér að flytja) er hann Torfi systursonur minn frá Svíþjóð ásamt spúsu sinni Súsönnu og foreldrum hennar. Sem sagt ég er með fullt hús svía eins og er. Nú er ég í vinnuni á meðan þau skreppa í dagsferð á Akureyri og Mývatn. Þegar ég kem heim ætla ég að hafa grillið til svo að við getum grillað um leið og þau koma aftur úr þessari ferð.
Á morgun fara þau svo í suðurátt, og taka Snæfellsnesið í leiðinni.

sunnudagur, júlí 16, 2006

Netheimar

Ég var að lesa bloggið hennar Ástu úr saumaklúbbnum, þar sem hún talar um 10 hluti sem hún elskar. Þar á meðal að lesa bloggsíður. Ég neyðist til að viðurkenna að ég geri soldið af því líka. Það er fyrst alltaf ákveðinn blogghringur, þau blogg sem ég kýkji á reglulega, vinir kunningjar. En svo kýkir maður á nagportal.net og uppgvötvar margar síðurnar þar. Þar hef ég fundið bloggsíður fólks sem ég hef einhvern tímann eytt tíma með á æfinni. Séu það gamlir vinir, vinnufélagar eða skólasystur eða -bræður sem maður er ekki í neinu sambandi við lengur, kannski ekki séð í 20 ár. Merkilegur andskoti þessi netheimur. Allt í einu er maður að lesa um líf fólks sem maður hefur kannski einhverntímann þekkt eða aldrei þekkt, stundum hef ég það á tilfinningunni að ég sé að njósna. Þessum blogglestri fylgir svolítil sektarkennd, líkt og þegar sést hefur til manns að lesa "Séð og Heyrt" nú eða DV. Maður á ekki að lesa þetta segir samviskan. En á móti kemur að það sem birtist á bloggsíðum er með vilja fólksins gert, það er sjálft að birta þetta, annað en það sem stundum er gert í öðrum miðlum. Þetta hljómar kannski undarlega fyrir þig, að lesa þessar vangaveltur á bloggsíðu. Þversögn kannski, en á móti kemur að síðan þessi er ekki á neinum lista, ekki hjá blogger eða á nagportal. Auk þess er ekki svo auðlæsilegt fyrir aðra en þá sem þekkja mig hver skrifar hér. Þess vegna finnst mér ég vera örugg þó auðvitað er það enginn á þessu sviði. Ég er ekki alveg á útopnu hér, heldur er um að ræða þrengri vettvang en hjá flestum. Auk þess sem ég er ekki að deila hverri einustu gjörð eða hugsun með lesendum. Nú hljóma ég eins og ég sé að réttlæta sjálfa mig útfrá þessum pælingum mínum, þannig hefur vopnið snúist í höndunum á mér. Þetta var Sunnudagshugvekjan mín, nú má "Húsið á sléttunni" byrja.

fimmtudagur, júlí 13, 2006

hmmm

Er bara ekki í mínu besta formi, líður ekki vel. Er leið, sár og sorgmædd og einmana.
Sjáum til hvernig líðanin er á morgun, nú er einn hápunktur vikunnar framundan, Despo húsfrúrnar eftir 10 mín.