sunnudagur, desember 17, 2006

Blogglestur

Ég er nú ekki manna duglegust að skrifa á þetta blogg, tek mig samt á öðru hvoru sérstaklega þegar ég tek eftir því að þessir pistlar eru lesnir. Þ.e.a.s ég fæ einhver komment. En ég er mikið duglegri við að lesa önnur blogg, það eru fastir liðir í rúntinum sumar eru lesnar daglega aðrar sjaldnar. Það eru ýmsar barnasíður vina og vandamanna, maður fylgist með mörgum einstaklingnum vaxa úr grasi í fjarlægð. Svo er það náttúrulega saumaklúbburinn, vinir erlendis og vinir vina erlendis. En öðru hvoru rekst maður á gamalkunnugt fólk sem maður átti samleið með einhvertímann á lífsleiðinni sem maður er farin að fylgjast með daglega svo sem eins og Silja sem var með okkur í 9 bekk og Lára gömul bernskuvinkona frá Háaleitinu og Álftó. Gyða og Linda ættu að muna eftir þeim, aðrir lesendur láta sér bara fátt um finnast.

2 ummæli:

Björk sagði...

það er alltaf gaman að lesa það sem þú skrifar sjáumst

Lindin sagði...

Fyndinn þessi heimur, svo á bloggi Silju fann ég link á lötustelpuna, verkefni sem Elín frænka tók þátt í síðasta sumar. Ekki stór.